Ársrit um starfsendurhæfingu - 2024, Blaðsíða 58
– svo sem að fólk þurfi að vera hundrað
prósent vinnufært. En á hinn bóginn taka
ýmsir vinnustaðir oft mjög vel á móti fólki,
eða það var að minnsta kosti mín reynsla
þegar ég var atvinnulífstengill.“
Er endurhæfing erfið, almennt?
„Já, hún getur verið það. Það þarf stundum
að breyta viðhorfi og venjum. Að meðaltali
tekur starfsendurhæfing hjá VIRK um eitt
ár. Það var margt í atvinnutengingunni sem
mér fannst spennandi, ekki síst sú aðlögun
sem felst í því þegar viðkomandi fer í nýtt
starf. Þar geta margir þættir skipt máli og
sumir vel faldir. Og einmitt földu þættirnir
hafa kannski úrslitaáhrif á hvort viðkomandi
endist í vinnu eða ekki. Líkamlegar hindranir
geta verið augljósari en hinar andlegu. Oft
getur verið erfitt að útskýra andlegan vanda.
Fólk getur verið hrætt við að missa vinnuna
en veit ekki af hverju. Það getur verið bara
eitt verkefni af mörgum sem vefst fyrir fólki
en það er nóg til að skapa hindrun. Fólk
hikar við að leita aðstoðar og enginn kemur
auga á hvar vandinn liggur. Svo getur fólk
verið í afneitun, er ekki vant að greina eigin
huga á þennan hátt og skilur því ekki hvar
það þarf hjálp. Loks er sjálfmyndin stundum
að trufla, sumir eiga erfitt með að segja: „Ég
get þetta ekki.“ Þá þarf að aðstoða fólk við
að yfirstíga slík vandkvæði. Að ná tökum á
starfi getur verið töluvert mál.“
Hefur margt breyst hjá VIRK á þeim tíma
sem þú hefur unnið þar?
„Já, ýmislegt hefur breyst. Starfsendur-
hæfing er mjög ungt fag. Hluti af af mínu
fagi sem iðjuþjálfi er af efla hæfni og getu
fólks og síðan að skoða hvers störfin
krefjast af viðkomandi. Starfsumhverfið
er líka alltumlykjandi. Þessir þrír þættir
þurfa að ganga upp til þess að fólki líði vel
í vinnunni. En reynsla í starfsendurhæfingu
er sífellt að aukast. Ráðgjafar og ýmsir aðrir
starfsmenn VIRK hafa á undanförnum árum
öðlast æ betri þekkingu á helstu atriðum
starfsendurhæfingar.“
Starf VIRK hefur skilað miklum
árangri
Hvar þurfa ráðgjafarnir helst stuðning?
„Þegar framgangur er hægur, málin eru
flókin eða fólk er ekki að taka ábyrgð á
eigin endurhæfingu þá snúa ráðgjafarnir
Finni fólk starf við
sitt hæfi þá slaknar
oft á vandamálum.
sér til sérfræðinganna sem leitast þá við
að sjá málið í víðara samhengi. Vandkvæði
þjónustuþega eru stundum slík að ráð-
gjafinn þarf stuðning.“
Finnst þér starf VIRK hafa skilað íslensku
samfélagi miklu?
„Svo sannarlega hefur starf VIRK skilað
miklum árangri en ekki síður er mikil-
vægt að VIRK hafi sett fókusinn á starfs-
endurhæfinguna. Það er dýrt andlega og
fjárhagslega þegar fólk getur ekki unnið fyrir
sér. VIRK hefur lagt höfuðáherslu á að fólk
geti tekið þátt og stundað vinnu – það er
risastór hluti af lífi hvers manns.“
Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir
Mynd: Lárus Karl Ingason
VIRK hefur lagt
höfuðáherslu á að
fólk geti tekið þátt og
stundað vinnu – það
er risastór hluti af lífi
hvers manns.
58 virk.is