Ársrit um starfsendurhæfingu - 2024, Side 31
VIÐTAL
tók á. Ég var dálítinn tíma að ná því að bjarga
mér sjálfur, geta klætt mig og komist í sturtu.
Þessi veikindi tóku gríðarlega á andlega sem
líkamlega og ekki síður á fjölskyldu mína
sem á tímabili beið milli vonar og ótta um
hvernig þetta færi. Ég á konu og fimm börn.
Áhyggjurnar hjá mér komu ekki fyrr en eftir
á. Ég gerði mér í fyrstu ekki almennilega
grein fyrir hve veikindi mín voru mikil. Svo á
ég eitt barnabarn sem fæddist í nóvember
2020 og annað á leiðinni. Ég fékk að vita
þegar ég vaknaði upp á Landspítalanum að
ég væri að verða afi, það lífgaði mikið upp á
tilveruna á þessum erfiða tíma.“
Hvernig fór þetta með þig og atvinnu þína?
„Ég var óvinnufær í tvö ár. Ég var að vinna
hjá Örnu, mjólkurfélaginu, þegar ég veiktist
og gat ekki snúið aftur til þeirra starfa. Ég
þoli ekki kuldann sem nauðsynlegur er í því
vinnuumhverfi.
Í byrjun árs 2021 fór ég í endurhæfingu á
Reykjalundi í sex vikur og eftir að ég kom
heim sendi heimilislæknirinn minn beiðni
fyrir mig til VIRK. Ég komst þar að um vorið
2021. Ég fór í viðtal við ráðgjafa VIRK á
Vestfjörðum og þegar búið var að samþykkja
umsókn mína fór ég í starfsendurhæfingu
hjá VIRK. Það hófst með því að mæta í viðtal
og þar var farið yfir það sem var í boði og
hvað væri hægt að gera fyrir mig.
Meiriháttar gott að komast að
hjá VIRK
Það var meiriháttar gott að komast inn í
þjónustu hjá VIRK. Ég fór í göngutúra og
sótti fyrirlestra og æfingar. Svo var ég líka
á námskeiði í handmennt til þess að þjálfa
fínhreyfingar handanna. Ég var rosalega
máttfarinn og lítill bógur.
Svo komst ég inn hjá sjúkraþjálfara líka,
það hjálpaði mikið. Ég fékk einnig sálfræði-
þjónustu í gegnum VIRK, fyrst á Reykjalundi,
það var óskaplega gott og svo fékk ég tíma
hjá sálfræðingi sem var að vinna á vegum
VIRK á Ísafirði. Það hjálpaði mikið.
Ég fékk alla þjónustu hér fyrir vestan og
þurfti ekkert að sækja suður, það fannst
mér afskaplega gott. Þá gat ég verið hjá
fjölskyldunni. Mér þótti þó mjög gott að vera
á Reykjalundi. Elstu strákarnir voru í skóla í
Reykjavík og ég gat hitt þá um helgar. Það
lyfti mér alveg helling upp.“
Setti frá upphafi stefnuna á
vinnumarkaðinn
Hvenær fórstu að hugsa til endurhæfingar
hvað vinnu snerti?
„Stefnan hjá mér var frá upphafi að komast
inn á vinnumarkaðinn aftur og það lagði ég
ríka áherslu á í samtali mínu við ráðgjafa
VIRK. Ég var svo heppinn að mér bauðst
starf í sundlauginni í Bolungarvík. Þar hóf
ég störf 1. mars 2022, það vantaði þá einn
mánuði upp á að ég hefði verið frá vinnu í
tvö ár. Ég byrjaði í sjötíu prósent vinnu og hef
verið í því starfshlutfalli síðan og ætla mér að
vera það áfram. Þetta hentar mér ágætlega.“
Þú hefur sem sagt verið vel syndur?
„Já, ég get synt, ég stóðst allavega sund-
prófið fyrir ári síðan,“ segir Jóhann Áskell og
hlær.
Höfðu þessi miklu veikindi mikil áhrif
á líf þitt?
„Já, þau höfðu það. Ég hafði svo lítið þrek
og þol eftir þau. Ég fór þá leið að ræða um
veikindi mín og afleiðingar þeirra og það
hjálpaði mér mikið andlega. Ég lokaðist
ekkert inni með mín mál. Fjölskylda mín
var vissulega undir miklu álagi á þessu
tímabili vegna veikinda minna, sérstaklega
reyndi þetta á konuna mína. Hún stóð sig
frábærlega í þessu öllu saman. Hún hjálpaði
mér dyggilega í gegnum þetta. Hún fékk líka
kóvid og öll börnin okkar um svipað leyti og ég
veiktist en þau urðu ekki fárveik eins og ég.“
Glímir enn við þreytu og þrekleysi
Sástu eftir þínu fyrra starfi?
„Já, þetta var ágætis vinna en ég er líka í
mjög góðu starfi núna. Það þýðir ekkert
annað en horfa fram á við þegar svona
atburðir verða.“
Hvað viltu segja um þjónustu VIRK?
„Það er ekki annað hægt en dásama það
sem gert var fyrir mig þar. Það var allt gert
fyrir mig sem mögulegt var. Bæði var haldið
utan um starfsendurhæfinguna og alla
pappírsvinnu sem henni fylgdi – hún var
mikil.
Ég fékk endurhæfingarlífeyri. Fyrst fékk ég
framlög úr sjúkrasjóði verkalýðsfélagsins
sem ég á aðild að. Þá var ég í Verk Vest,
verkalýðsfélagi Vestfirðinga. Núna er ég í
Verkalýðs- og sjómannafélagi Bolungarvíkur
eftir að ég hóf störf í sundlauginni. Endur-
hæfingarlífeyri hjá Tryggingastofnun ríkisins
fékk ég fljótlega eftir að réttindum mínum í
Verk Vest lauk. Peningaáhyggjur mínar voru
því ekki miklar, þetta hafðist allt saman.“
Hvernig er staðan hjá þér núna?
„Ég er enn að glíma við þreytu og þrekleysi
og er óskaplega viðkvæmur fyrir öllum
kvefpestum sérstaklega. Ég er til dæmis
búinn að vera undanfarna tíu daga með
slæmt kvef og er lengi að jafna mig. Ég fann
greinilega hvað þrekið minnkar hjá mér
við slík veikindi. Maður fer þá óneitanlega
í „bakkgír“ um tíma. En það er ekki annað
í boði en halda áfram. Veikindin höfðu þó
ekki áhrif á búsetu fjölskyldunnar, við höfum
búið í Bolungarvík síðan við fluttum vestur
í ágúst 2013. Við eru bæði hjónin ættuð
af Ströndum. Það er fínt að búa hér fyrir
vestan, maður hefur allt til alls hér.“
Fékkstu eftirfylgni eftir að þú laukst
formlegri þjónustu hjá VIRK?
„Já, ráðgjafar VIRK fylgdust með mér í
nokkra mánuði eftir að starfsendurhæfingu
lauk, ég skrapp í kaffi til þeirra og ræddi
málin, hvernig mér leið og hvernig gengi.
Það var mér alltaf opið að kíkja inn í spjall.“
Reynsla mín af VIRK er frábær
Hvaða úrræði reyndist þér best?
„Þjónusta VIRK skipti mig höfuðmáli, að
geta hitt fólk og fengið andlega og líkamlega
aðstoð. Reykjalundur var einnig mjög
mikilvægur, auk endurhæfingarinnar hitti
maður þar fólk sem svipað var ástatt fyrir
og gat þá rætt um sameiginlega glímu við
afleiðingar af slæmum kovidveikindum.
Bæði þar og hjá VIRK eignaðist maður góða
vini sem ég hef samband við enn í dag.
Úrræðin sem komu mér best voru göngu-
ferðir úti og námskeiðin sem ég sótti á
vegum VIRK. Einnig vinna sem ég stundaði
sem úrræði hjá VIRK, til dæmis í gróðurhúsi.
Sálfræðiþjónustan reyndist mér líka vel.“
Hvernig er svo sjálfsmyndin þín núna?
„Ég er fimmtíu og níu ára núna en óneitan-
lega gæti heilsan verið betri. Ég var ágætlega
á mig kominn fyrir veikindin og það er satt
að segja mesta furða hvað ég er. Ég er
viðkvæmur og þreklítill en andlega heilsan
er bara nokkuð góð. Reynsla mín af VIRK er
frábær. Það var meiriháttar að komast þar
inn. Hjá VIRK starfar fagfólk sem reyndist
mér mjög vel.“
Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir
Mynd: Ágúst Atlason
31virk.is