Ársrit um starfsendurhæfingu - 2024, Qupperneq 20

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2024, Qupperneq 20
af brúninni. En þá var ég í raun löngu dottin niður af brúninni. Ég hélt svo áfram í vinnunni í eina viku en ég fann að ég hafði misst einhverja undirstöðu. Ég var búin að horfaðst í augu við hvernig ástand mitt var. Ég mætti á fundi en sat stjörf. Í lok þessarar viku brotnaði ég alveg saman. Ég sat á kaffistofu í miðju rými og fullt af fólki í kringum mig og allt í einu þá spýttust tárin fram, ég byrjaði að gráta og gat ekki hætt. Þetta var mjög óþægilegt þarna í miðju rými kaffistofunnar. Mér leið eins og ég væri að missa stjórn bæði á líkama og sál. Ég held að svona lagað sé dæmigerð kulnun.“ Kom einhver og hjálpaði þér? „Já. Það komu samstarfsmenn sem tóku mig afsíðis og ég var send heim. Fólkið sem ég átti samtal við vikuna áður áttaði sig á hvað var að gerast. Ég fékk strax leiðbeiningar um að hafa samband við lækni. Ég fékk ekki tíma hjá heimilislækni mínum fyrr en mörgum vikum seinna. Ég lá í rúminu grátandi, mjög verkjuð um alla líkamann, var lasin, alls staðar. Ég var í miklu áfalli og fannst þetta allt saman mjög óraunverulegt. Ég trúði ekki að svona væri komið fyrir mér. Ég var í daglegu sambandi við fyrrnefnda vinkonu mína. Hún benti mér á að það þýddi ekkert að bíða svona lengi eftir tímanum hjá heimilislækninum. Ég yrði að komast til læknis strax. Það tókst og ég fékk læknisvottorð. Þetta var í byrjun árs 2021. Ég var með grímu vegna kóvíd í þessari læknisheimsókn og átti mjög erfitt með að tala við lækninn um þetta. Kom varla orðunum frá mér. Læknirinn skynjaði hvernig mér leið og setti mig strax í fjögurra vikna veikindaleyfi og lét mig hafa svefntöflur, því ég var hætt að geta sofið. Ég fékk svo annan tíma hjá lækninum. Þetta voru mjög erfiðar vikur. Áfallið var mikið, ég átti erfitt með svefn og að borða – bara allt þetta venjulega.“ Ákvað að gera allt til að komast til heilsu Hvernig tók maðurinn þinn þessu? „Hann skildi þetta að ákveðnu marki. Þeir sem ekki hafa upplifað þetta á eigin skinni eiga erfitt með að skilja þetta fullkomlega. En vinkona mín skildi mig vel. Eigi að síður sýndi maðurinn minn mér mikinn stuðning og var mjög góður við mig.“ Hvenær komstu að hjá VIRK? „Strax og ég hafði jafnað mig á versta áfallinu var ég staðráðin í að nýta úrræði sem til væru, gera allt til að komast aftur til heilsu. Þegar ég hitti svo lækninn aftur bað ég sjálf um að lögð yrði inn beiðni um starfsendurhæfingu hjá VIRK. Eg vissi að vinnustaðurinn minn væri í samstarfi við VIRK og þar væru að finna margvísleg úrræði. Ég komst að eftir fjórar vikur. Ég hitti ráðgjafa VIRK hjá VR. Ráðgjafinn var yndisleg kona, sem tók mér rosalega vel. Um leið og ég hitti hana þá fann ég mikla hlýju og fékk góða tilfinningu fyrir þessu samstarfi. Ráðgjafinn var með mér í liði og það var rosalega gott að hitta hann en ég var eigi að síður sú sem stjórnaði ferðinni. Það kom mér á óvart. Ég hafði ímyndað mér að ég færi bara í sama prógram og allir aðrir, kannski í Þegar leið á þá átta mánuði sem ég var í þjónustu hjá VIRK fór ég að fara í heimsókn á vinnustaðinn til að halda sambandi við fólkið. 20 virk.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.