Ársrit um starfsendurhæfingu - 2024, Síða 24

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2024, Síða 24
Um 81% aðspurðra töldu starfsendur- hæfingarferlið vel skipulagt (mynd 8) og svipað hlutfall taldi að úrræðin sem þeim buðust í starfsendurhæfingunni hafi hentað þeim vel (mynd 9). Mikill meirihluti aðspurðra telja líklegt að þeir myndu mæla með VIRK við þá vini og kunningja sem gætu nýtt sér þjónustuna samkvæmt umreiknaðri með- mælaeinkunn (NPS) á kvarðanum 0 til 10. Í könnuninni nú er hægt að líta svo á að VIRK fái meðaleinkunnina 8,8 borið saman við 8,3 árið 2017 (sjá mynd 10). Afstaða til ráðgjafans Líkt og fyrri ár eru nær allir svarendur þjónustukönnunar VIRK ánægðir með ráðgjafann sinn. 94% aðspurðra segja að viðmót og framkoma ráðgjafans hafi verið gott (mynd 11), 90% segjast hafa fengið frekar eða mjög mikla hvatningu frá ráðgjafanum (mynd 12) og 88% segja að ráðgjafanum hafi tekist vel að virkja þau til þátttöku í mótun endurhæfingaráætlunar um endurkomu til vinnu (mynd 13).   Mat á árangri starfsendur- hæfingarinnar Svarendur voru beðnir um að meta ávinn- inginn af starfsendurhæfingunni sem og eigin líðan í upphafi og lok þjónustunnar. Alls sögðu um 82% að þjónustan og úrræðin á vegum VIRK hafi aukið starfs- getu þeirra að nokkru eða miklu leyti (mynd 14) og samtals 87% töldu að þjónusta VIRK hefði bætt lífsgæði þeirra að nokkru eða miklu leyti (mynd 15). Þátttakendur voru beðnir um að meta starfsgetu sína, andlega og líkamlega líðan og sjálfsmynd í upphafi þjónustu og við lok þjónustu á kvarðanum 0 til tíu. Á mynd 15 má sjá að þátttakendur upplifa bætingu í þessum fjórum þáttum en sem dæmi má nefna þá gáfu þeir starfsgetu sinni einkunnina 2,2 í upphafi þjónustu en 5,9 í lok þjónustu að jafnaði (sjá mynd 16). Hversu vel eða illa þóttu þér úrræðin sem þér buðust henta þinni starfsendurhæfingu? Mynd 9 0% 10% 20% 30% 40% 50% 60% 70% 80% 90% 100% IllaHvorki né Vel 80% 12% 9% Hversu gott eða slæmt fannst þér almennt viðmót og framkoma ráðgjafa þíns hjá VIRK? Mynd 11 0% 10% 20% 30% 40% 50% 60% 70% 80% 90% 100% SlæmtHvorki né Gott 94% 4% 3% Hversu mikla eða litla hvatningu fékkst þú frá ráðgjafa þínum í starfsendurhæfingunni? Mynd 12 90% 6% 4% 0% 10% 20% 30% 40% 50% 60% 70% 80% 90% 100% LitlaHvorki né Mikla Hversu líklegt eða ólíklegt er að þú munir mæla með VIRK við þá vini og kunningja sem þú telur að gætu nýtt sér þjónustuna? Mynd 10 2022/ 2023 2017 90% 5 5,5 6 6,5 7 7,5 8 8,5 9 9,5 10 8,8 8,3 24 virk.is

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.