Ársrit um starfsendurhæfingu - 2024, Page 35

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2024, Page 35
 VIRK Skipting þjónustuaðila Fjölmennasti hópur þjónustuaðila er sem fyrr sálfræðingar en VIRK var í samstarfi við 160 sálfræðinga eða fyrirtæki tengd sálfræðiþjónustu á árinu 2023. Fast á hæla sálfræðinga koma sjúkraþjálfarar en VIRK var í samstarfi við 129 aðila tengdum sjúkraþjálfun. Þriðji fjölmennasti hópur meðal þjónustuaðila var í flokknum heilsu- efling og líkamsrækt eða 114 aðilar. Þá hefur orðið talsverð aukning í kaupum á úrræðum hjá þjónustuaðilum sem bjóða upp á ráðgjöf og þjónustu sem eykur daglega virkni og stuðlar að félagslegri kjölfestu einstaklinga, en um er að ræða fagaðila sem sinna margskonar einstaklingsbundinni ráðgjöf til einstaklinga, t.d. iðjuþjálfun, félagsráðgjöf, næringarráðgjöf, náms- og starfsráðgjöf, fíkniráðgjöf, fjölskylduráðgjöf o.fl. Þá býður fjölbreyttur hópur þjónustu- aðila upp á úrræði sem stuðla að aukinni þátttöku einstaklinga en um 40 fræðslu- og símenntunaraðilar veittu ráðgjöf og fræðslu sem eykur möguleika á vinnumarkaði. Árlega bætast nýir samstarfsaðilar í raðir þjónustuaðila og stöðugar umbætur eiga sér stað við þróun úrræða í takti við þarfir einstaklinga í þjónustu hverju sinni. Sérfræðingar VIRK funda með þjónustu- aðilum eftir þörfum vegna þróunar nýrra úrræða og heldur úrræðasvið VIRK utan um þau samskipti. Fjarúrræðum fjölgaði talsvert á Covid ár- unum og er slík fjarþjónusta komin til að vera í úrræðaflóru VIRK. Ráðgjafar VIRK á Á árinu voru gerðar tæplega 24 þúsund pantanir á úrræðum í upp- lýsingakerfi VIRK í samanburði við rúmar 21 þúsund pantanir árið á undan. Árlega bætast nýir samstarfsaðilar í raðir þjónustuaðila og stöðugar umbætur eiga sér stað við þróun úrræða í takti við þarfir einstaklinga í þjónustu hverju sinni. landsbyggðinni og þjónustuþegar sem búa í dreifbýli eða utan höfuðborgarsvæðisins eru sérlega ánægðir með betra aðgengi að ýmsum sértækum úrræðum. Eins hafa þjónustuaðilar sem búa utan höfuð- borgarsvæðisins aðgengi að stærri markhópi, þar sem þjónustuaðilar sem bjóða upp á fjarþjónustu eru staðsettir um land allt. Þjónustuaðilar sem vilja bjóða upp á einstaklingsviðtöl í gegnum fjar- heilbrigðisþjónustu þurfa að sækja um starfsleyfi hjá embætti landlæknis áður en opnað er fyrir slíka þjónustu hjá VIRK. Útlendingum fjölgar í þjónustu VIRK og mikilvægt að til séu úrræði við hæfi fyrir þann hóp. Áfram verður lögð áhersla á þróun úrræða fyrir útlendinga á árinu. Veita þarf þjónustu við hæfi, tækifæri til að læra og tala íslensku og fjölga tækifærum til atvinnuþátttöku. 1.800 1.600 1.400 1.200 1.000 800 600 400 200 0 Útgjöld í millj. kr. 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 2022 2023 Ár Þróun útgjalda vegna aðkeyptrar þjónustu frá fagaðilum um allt land 2010-2023 á föstu verðlagi Mynd 1 Sálfræðiþjónusta + hópsálfræði Sjálfsefling Sjúkraþjálfun + hópstoðkerfisröskun Sérhæfð starfsendurhæfingarúrræði Nám og námskeið Heilsuefling / líkamsrækt Atvinnutengd úrræði Önnur ráðgjöf og þjónusta Túlkaþjónusta 25% 8% 4% 49% 7%2% 1%1%%3% Hlutfallsleg skipting útgjalda á árinu 2023 vegna aðkeyptrar þjónustu frá samstarfsaðilum Mynd 2 35virk.is

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.