Ársrit um starfsendurhæfingu - 2024, Page 42

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2024, Page 42
ATVINNUTENGING Atvinnutenging einstaklinga sem luku þjónustu hjá atvinnulífstenglum VIRK árið 2023 Þjónustuþegum VIRK sem gætu nýtt sér aukna aðstoð við að komast inn á vinnu- markaðinn stendur til boða að fá sérstaka aðstoð frá atvinnulífstenglum VIRK. Margir þessara einstaklinga eru með skerta starfsgetu og stefna á hlutastörf við lok starfsendurhæfingar. Hinsvegar, eins og sjá má á myndinni „Hlutfallsleg skipting starfa eftir starfs- hlutfalli“ sem finna má á síðunni hér til hægri, þá eru margir sem fara í fullt starf við lok þjónustu eða 32% af einstaklingunum. Þjónustu-, umönnunar- og sölustörf Ósérhæfð störf Skrifstofustörf Sérfræðistörf Tæknar og sérmenntað starfsfólk Störf iðnaðarmanna og sérhæfðs iðnverkafólks Störf véla- og vélgæslufólks Hlutfallsleg skipting starfa eftir starfsgreinum Einstaklingar sem luku þjónustu hjá atvinnulífstenglum í starfi árið 2023 Menntun Einstaklingar sem luku þjónustu hjá atvinnulífstenglum 2023 Grunnskóli Framhaldsskóli / Iðnnám Háskólanám Annað nám 35% 32% 26% 7% 45% 16% 15% 10% 7% 4% 3% Árið 2023 var í fyrsta skipti veitt viður- kenning til fyrirtækja og stofnana sem voru í samstarfi við atvinnutengingu VIRK og sinntu þessu samstarfi sérlega vel og sýndu samfélagslega ábyrgð - og eru þannig hvetjandi fyrir önnur fyrirtæki til góðra verka. Össur Iceland og Vista verkfræðistofa voru fyrst til þess að hljóta viðurkenninguna sem VIRKT fyrirtæki og Símstöðin og Hrafnista fengu viðurkenninguna árið 2024. Á myndunum hér á opnunni má sjá áhugaverðar upplýsingar sem tengjast einstaklingum sem luku þjónustu hjá atvinnulífstenglum VIRK árið 2023. Vinnusamningar eru einnig úrræði sem atvinnulífstenglar nýta sér til að auðvelda endurkomu inn á vinnumarkaðinn en árið 2023 voru 23 slíkir samningar gerðir og urðu 78% þeirra að áframhaldandi störfum. Atvinnulífstenglar VIRK leggja mikla áherslu á samstarf við fyrirtæki enda er gott samstarf og samvinna grundvöllur farsællar atvinnutengingar. Nú eru yfir 1600 fyrirtæki og stofnanir skráðar í upplýsingagrunn VIRK og mörg þeirra eru með ákveðna tengiliði sem auðveldar allt samstarf. Árið 2023 bárust 328 tilvísanir til atvinnu- lífstengla en 368 einstaklingar luku þjónustu hjá þeim. Við lok þjónustu voru 74,7% þeirra með vinnugetu og virkir á vinnumarkaði þ.e. fóru í vinnu, nám eða atvinnuleit. Atvinnulífstenglar VIRK nýta sér ýmis úrræði til að auka líkur á endurkomu til vinnu og eru vinnuprófanir eitt slíkt úrræði. Vinnuprófanir geta gefið góða mynd af vinnugetu einstaklingsins og er gott að nota þegar óvissa er um hver hún er. Árið 2023 voru 32 vinnuprófanir settar af stað og af þeim urðu 40% að áframhaldandi störfum í framhaldinu. CV 42 virk.is

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.