Ársrit um starfsendurhæfingu - 2024, Side 53
VIRK
Hreyfing sem meðferð sjúkdóma
Vegna þeirra jákvæðu áhrifa sem hreyfing
hefur á ýmsa sjúkdóma, heilsufarskvilla
og hamlandi einkenni er nú farið að nota
hreyfingu sem meðferð, annað hvort
eina og sér eða samhliða öðrum með-
ferðarformum. Hreyfiseðill er dæmi um
hvernig „vísað er á hreyfingu” til þeirra
einstaklinga sem glíma við ákveðna
sjúkdóma og sjúkdómseinkenni. Sjúkra-
þjálfari í heilsugæslu sér um að skipuleggja
hreyfinguna með þeim einstaklingi sem er
að glíma við sjúkdóma sem rannsóknir hafa
sýnt fram á að hreyfing hafi jákvæð áhrif
á t.d. offitu, sykursýki 2, þunglyndi, kvíða,
depurð, hækkaðan blóðþrýsting, langvinna
verki, hjarta- og lungnasjúkdóma, hækkaða
blóðfitu eða beinþynningu8.
Margir fræðimenn hafa skrifað um
hreyfingu og áhrif hennar á þunglyndi og
offitu. Hér verður tæpt á örfáum atriðum
um hreyfingu, þunglyndi og offitu.
Hreyfing og þunglyndi
Þegar meðferð á þunglyndi ber á góma
dettur sennilega flestum í hug lyfjameðferð.
Michael Craig Miller, læknir hjá Harvard
læknaháskólanum, leggur áherslu á að
þunglyndislyf séu ekki eina meðferðar-
formið við þunglyndi. Hann segir að fyrir
suma sé þjálfun jafn áhrifarík og lyf þó að
þjálfun sé hins vegar ekki nægjanleg þegar
um alvarlegt þunglyndi sé að ræða. Hann
útskýrir að besta hreyfingin til að vinna
bót á þunglyndi sé þjálfun af lágri ákefð til
langs tíma. Slík þjálfun örvar frumuvöxt og
taugatengingar í heilasvæði sem er kallað
dreki (e. hippocampus) og hefur með skap/
hugarástand að gera og hjálpar þannig til
við að minnka þunglyndiseinkenni9.
Í yfirlitsriti Brendons Stubbs og Simonar
Rosenbaum um þjálfunarinngrip við
andlegum vanda er ítrekað að hafa beri
í huga að þunglyndi er misalvarlegt og
einkennamynd breytileg milli einstaklinga.
Því gæti mismunandi hreyfing haft mis-
munandi áhrif á einkennin. Rannsókn
hefur t.d. sýnt að bæði þolþjálfun og
styrktarþjálfun yfir 10 vikna tímabil er
árangursrík við að draga úr þunglyndi. Auk
þess er minnt á að eitt þjálfunarskipti hefur
sýnt sig að bæta skap og vellíðan og á þeim
forsendum gæti þjálfun nýst þunglyndum
einstaklingi við að stýra þunglyndis-
einkennum sínum10.
Allt ber hér að sama brunni, þjálfun er
áhrifum ofþyngdar eins og til dæmis
langvinnu bólguástandi í líkamanum, þó
svo að þeir léttist ekki12.
Hreyfing og þjálfun í
starfsendurhæfingu
Forsenda þess að einstaklingar hefji
starfsendurhæfingu hjá VIRK er að þeir séu
að glíma við samsettan heilsubrest sem
hefur hindrandi áhrif á atvinnuþátttöku.
Þeir eiga margir hverjir það sameiginlegt
að stunda ekki reglubundna hreyfingu
og verða því af þeim jákvæðu áhrifum
hreyfingar sem tíunduð eru hér að framan.
Í starfsendurhæfingu er leitast við að hvetja
einstakling til reglubundinnar hreyfingar
með þeim stuðningi sem hver og einn
þarfnast. Sumum hentar að æfa innan dyra,
öðrum úti, sumum á þurru landi en öðrum í
vatni, sumum í hópi en aðrir eru sáttari við
að hreyfa sig einir, eða stundum í hópi og
stundum einir. Mikilvægt er að einstaklingi
finnist sú hreyfing sem valin er vera
skemmtileg, því ef hún er það ekki eru líkur
á að hann sinni henni ekki, hvorki á meðan
starfsendurhæfingu stendur né til lengri
tíma litið. Þó þarf stundum að láta sig hafa
það að gera „leiðinlegar æfingar” ef þær
bæta líðan eða halda einkennum niðri, gefa
möguleika á fjölbreyttari tómstundaiðju og
þjálfun, og bæta færni til atvinnuþátttöku.
Þeir sem eru sjálfstæðir í hreyfingu fara
oft í gönguferðir og sund á eigin vegum
en fá gjarnan stuðning VIRK í formi
líkamsræktarkorts sem gefur aðgang að
tækjasal eða á jógastöð liggi áhugi þar.
Margir þurfa stuðning fagaðila við
hreyfingu, t.d. þeir sem glíma við verkja-
vanda eða afleiðingar sjúkdóma eða þeir
sem hafa ekki hreyft sig reglubundið til
lengri tíma.
Verkir hafa yfirleitt þær afleiðingar að
hreyfistjórn og staðbundið úthald minnkar
bæði á verkjasvæðinu og aðlægt því.
Einstaklingur með verkjavanda í mjóbaki
þarf yfirleitt leiðsögn sjúkraþjálfara
til að bæta stjórn og ná hæfilegu
spennustigi á kvið- og bakvöðvum til
að styðja að mjóbaksliðum (ná stjórn á
stöðugleikavöðvum mjóbaks) á meðan
hann framkvæmir aðrar almennar
hreyfingar, t.d. heimilisstörf, göngu eða
æfingar í tækjasal.
Rannsakendur
leggja því áherslu á
að æfa í náttúrulegu
umhverfi og velta
því upp hvort ekki
sé betra að hreyfa
sig úti fyrir og eftir
vinnu í stað þess
að velja að fara í
ræktina6.
mikilvæg við að draga úr þunglyndis-
einkennum.
Hreyfing og offita
Í faraldsfræðilegum rannsóknum hefur
offita og hár líkamsþyngdarstuðull verið
tengdur langvinnum sjúkdómum eins og
hjarta- og æðasjúkdómum, sykursýki,
langvinnum nýrnasjúkdómi, mörgum
tegundum krabbameins og fjölmörgum
stoðkerfissjúkdómum11.
Fræðimaðurinn Daniel Lieberman leggur
áherslu á að finna þurfi góðar leiðir til að
fyrirbyggja óhóflega þyngdaraukningu
einstaklinga og stuðla að þyngdartapi.
Hann segir að þolþjálfun sé óumdeilanlega
betri þjálfun en styrktarþjálfun við að
fyrirbyggja offitu og snúa þróun þyngdar-
aukningar við en tekur þó fram að umdeilt
sé hve mikil ákefð í þolþjálfun sé hentugust.
Síðan leggur Daniel Lieberman mikla
áherslu á að þeir sem glíma við offitu
þjálfi sig því þjálfun vinnur gegn slæmum
53virk.is