Ársrit um starfsendurhæfingu - 2024, Page 57
VIÐTAL
reyndi verulega á. Ég fékk töluverða reynslu
þegar ég vann á geðsviði hjá Kleppi. Þar var
skemmtilegt að vinna en líka stundum mjög
erfitt. Ég var þrítug þegar ég hóf að starfa
við þetta og hefði ekki viljað vera yngri.
Auðvitað þarf fólk einhvers staðar að byrja
en það þarf að hafa dágóða lífsreynslu í
svona störfum. Það var erfitt að sitja á móti
fólki sem átti átakanlega sögu að baki, þá
fann ég stundum fyrir ákveðnum vanmætti.
Kannski einmitt þess vegna fannst mér ég
þurfa að víkka sjóndeildarhringinn. Fá fleiri
sjónarhorn á þann veruleika sem blasir við
þegar fólk dettur út af vinnumarkaði og þarf
að fóta sig þar á ný. Hugmyndin að frekara
námi var að fá breiðari sýn á veruleika þessa
vettvangs.“
Ræða sérfræðingar við þá sem fá þjónustu
hjá VIRK?
„Við á mat og rýnisviði VIRK hittum þjón-
ustuþega ekki nema í sérstökum viðtölum
eða mati í blábyrjun. Og einnig ef það kemur
hökt í ferlið. Þá þarf ráðgjafi að fá stuðning,
að einhver grípi inn í og hitti viðkomandi
einstakling. Við hittum líka fólk í upphafi ef
málum er vísað í sérfræðimat. Bæði þarf þá
að meta hvar vilji fólks liggur og líka að skoða
hver heilsubresturinn er og hvaða ráðum er
best að beita við hindrunum.“
Kemur stundum fyrir að fólk er ekki tilbúið
að fara í starfsendurhæfingu?
„Já, það kemur fyrir, til dæmis ef fólk er
of lasið og á kannski frekar heima í heil-
brigðiskerfinu. Þá mælum við með að fólk
komi ekki inn í starfsendurhæfingu heldur
byrji á því að leita sér aðstoðar vegna
heilsubrestsins. Þannig myndast grunnur
að starfsendurhæfingu og í framhaldinu sú
hugmynd að leita fyrir sér með vinnu. Fólk
þarf að fá rétta þjónustu og rétt úrræði og
vinna í sínum vanda, það er skynsamlegra.“
Getur verið þrælflókið ferli
Þú sinnir afgreiðslu nýrra beiðna.
Hvað eruð þið mörg sem gerið það?
„Ætli við séum ekki í kringum sextán en
við vinnum í teymum, tvö og tvö saman.
Ég er talsvert í því að meta hvort fólk sé
komið svo langt að rétt sé að vísa því til
atvinnulífstengils og líka að athuga ferlið ef
framgangurinn fer að hökta. Jafnframt að
skoða með ráðgjafa hvort fólk er farið að
nálgast það að leita út á vinnumarkað.
Sálfræðingar og sjúkraþjálfarar eru mikið
að meta þann heilsubrest sem verið er að
glíma við, sem og framgang. Við metum
hvort viðkomandi sé að taka ábyrgð á sinni
endurhæfingu og hvernig ferillinn mjakast
áfram. Þetta getur verið þrælflókið ferli því
oft eru málin margþætt. Ekki síst þegar
saman blandast líkamlegur og andlegur
vandi eða ef fólk ræður illa við aðstæður og
verkefni sem við blasa.
Yfirleitt ræðum við sérfræðingarnir mest
við ráðgjafana. En fyrir kemur að við höfum
samband við viðkomandi þjónustuþega
eða vísum honum í sérfræðimat. Oftast
erum við þó að skoða upplýsingar sem við
höfum aðgang að og setja þjónustuþegann
hefur geti nýtt hana fyrir viðkomandi
þjónustuþega. Það gengur ekki að standa
í veginum – maður má ekki gleyma því að
manns eigin vinkill er ekki alltaf sá rétti.
Mikilvægt er því að vera góður í að hlusta.“
Erfiðast þegar fólk grípur ekki
boltann
Hvaða mál eru erfiðust viðfangs?
„Erfiðast er þegar fólk grípur ekki boltann
– tekur ekki ábyrgð á sinni endurhæfingu.
Fyrir slíku geta verið margar ástæður.
Kannski hefur fólk ekki nægilega mikla von
um að endurhæfingin sé gerleg. Eða þá að
fólk hefur ekki trú á því að það geti nokkurn
tíma komist út á vinnumarkað en veit samt
ekki hvað annað það ætti að gera.
Það hangir margt á spýtunni í endurhæfingu
almennt, svo sem framfærsla, að fá
stuðning – en fyrst og fremst þarf fólk að
vilja. Sé ekki svo getur spilað inn í fyrri
reynsla, svo sem að fólk hafi endurtekið
dottið út af vinnumarkaði. Stundum hefur
fólk slæma reynslu af að vera í hópi, eins og
gerist á vinnustöðum. Þá er að finna úrræði
sem hjálpar til að breyta þessu viðhorfi
svo viðkomandi fái trú á sjálfum sér í nýju
umhverfi.“
Hvers vegna detta sumir oft út af
vinnumarkaði?
„Það eru ýmsar ástæður fyrir því. Fólk
getur lent í slæmu vinnuumhverfi en líka
er til í dæminu að viðkomandi glími við ein-
hvers konar færnivanda. Það geta verið
margar ástæður fyrir því að fólk detti út af
vinnumarkaði.“
Hvað ef fólk á erfitt með samskipti?
„Best er að vinna með samskiptavanda hjá
sérfræðingum. Síðan að reyna að hjálpa
viðkomandi aftur í vinnu. Það er misjafnt
hvort fólk vill láta vita af vanda sínum eða
ekki. Þetta er atriði sem þjónustuþegar
semja um við atvinnulífstengilinn. Aðalmálið
er að finna vinnu sem fólk tengir við og
hefur áhuga á. Finni fólk starf við sitt hæfi
þá slaknar oft á vandamálum. Á þann hátt
getur vinna verið batahvetjandi.“
Vantar mun meira af hlutastörfum
Er vinnumarkaðurinn sveigjanlegur?
„Allur gangur er á því. Vinnumarkaðurinn
þyrfti að mínu mati að opnast meira. Það
vantar mun fleiri hlutastörf og líka meiri
þekkingu og skilning á þessum atriðum.
Gamlar hugmyndir eru of mikið ríkjandi
Í raun erum við
stuðningsaðilar við
ráðgjafann.
í viðeigandi ferli samkvæmt þeim. Sé eitt-
hvað óljóst þá hringjum við í viðkomandi
einstakling og förum jafnframt yfir málin
með ráðgjafa til að finna út hvað er að.
Sérfræðingarnir skoða mál hver með sínum
gleraugum til að fá gleggri sýn á vanda hvers
og eins.“
Eruð þið sérfræðingarnir alltaf sammála?
„Það kemur eðlilega fyrir að við erum ekki
sammála. Þá reynum við að mætast á miðri
leið og jafnframt rökstyðja okkar sjónarmið.
Ráðgjafinn skiptir alltaf mjög miklu máli því
hann er með puttann á púlsinum. Í raun
erum við stuðningsaðilar við ráðgjafann.
Maður þarf að geta aðeins bakkað til þess
að einstaklingurinn fái bestu mögulegu
þjónustu. Við þjálfumst þannig í að finna
lendingu í málum.“
Reynir mikið á tilfinningalegt þanþol
í svona vinnu?
„Það getur gert það þegar að málunum
koma aðilar úr ólíkum áttum með ólíka
reynslu. Við þurfum að vera flink í að taka
rökum og finna út hvenær rétt er að halda
sínu sjónarmiði til hlés og hvenær þarf
að standa fast við sitt. Þetta getur verið
snúið. Þjónusta í heilbrigðiskerfinu gengur
út á teymisvinnu og reynir á hæfileika í
mannlegum samskiptum.
Við sérfræðingarnir þurfum líka að átta
okkur á hvar okkar þekking þrýtur. Ef málið
er til dæmis þannig vaxið að mín þekking á
ekki endilega við þá þarf ég að geta dregið
mig til baka svo að sá sem meiri þekkingu
57virk.is