Ársrit um starfsendurhæfingu - 2024, Page 65
VIRK
Takk kærlega fyrir hjálpina,
er svo þakklátur.“
Gerði mjög mikið fyrir mig
að komast í VIRK. Frábær
þjónusta í alla staði.“
Ég er mjög þakklát fyrir
VIRK og þá aðstoð og þjónustu
sem ég fékk þar. Ég sé ekki
hvernig ég hefði átt að ná heilsu
og komast aftur til vinnu án
aðstoðar VIRK. Það frábæra
við þessa vegferð mína hjá
VIRK er að ég tók ákvörðun
um að skipta um starf. Það sá
ég engan veginn fyrir mér að
gæti gerst því mér fannst ég svo
léleg og engan veginn fær um
að takast á við nýja hluti. Í dag
er ég ótrúlega spennt fyrir nýju
vinnunni minni og að takast á
við hana. Takk fyrir mig!“
Ráðgjafinn minn var
algjörlega frábær, faglegur og
næmur og hjálpaði mér mikið.
Námskeiðin töluðu vel saman
og fagfólk meðvitað um stöðu
fólks sem kemur í gegnum VIRK.
Ég er ekki viss um að ég væri
komin á vinnumarkaðinn án
þeirrar aðstoðar sem ég naut
frá ykkur. Takk!“
Göfugur málstaður og
nauðsynlegt öryggisnet fyrir
fólk. Ég lenti í áföllum eins og
gerist stundum í lífinu en VIRK
og stéttarfélagið mitt tóku á
móti mér, hjálpuðu mér að ná
mér aftur, og fyrir vikið kom ég
sterkari og einbeittari en áður.“
Takk fyrir allt! Ég veit ekki
hvar ég væri án VIRK og mun
vera ævinlega þakklát allri þeirri
hjálp sem ég fékk!“
Mjög þakklát fyrir að koma
til ykkar þótt það væri ekki
alveg hægt að vinna með minn
sjúkdóm. Það sem ég fór í gerði
mér gott. Takk fyrir mig.“
VIRK algjörlega bjargaði
og umbreytti lífi mínu. Er
óendanlega þakklát öllu því
yndislega fólki sem ég hitti
og sem hjálpaði mér í minni
uppbyggingu.“
VIRK er ómissandi stofnun/
fyrirtæki. Ég verð VIRK ævinlega
þakklát, það er ykkur að þakka
að ég er í háskólanámi. Ekki nóg
með það, ég fékk verðlaun fyrir
hæstu meðaleinkunnina.
Takk VIRK!“
Svör við spurningunni:
Af hverju ánægja með þjónustu VIRK?
UMMÆLI ÞJÓNUSTUÞEGA
ÚR ÞJÓNUSTUKÖNNUN VIRK 2023
65virk.is