Úrval - 01.02.1971, Qupperneq 3
FORSPJALL *S*~'
V__________________/
DAGLEGA blasir við okkur í fré.tt-
um sjónvarps og blað'a og ýmsu
öðru efni ofbeldishneigð mannsins í
ýmsum myndum. Sumir óttast, að
þessi hneigð fari stöðugt vaxandi í
heiminum nú á tímum og stendur
stuggur af þeim uppreisnaranda,
sem er svo útbreiddur, sérstaklega
meðal ungs fólks, og þeim hugsun-
arhœtti, að ekkert sé athugavert við
það að beita ofbeldi, ef ekki sé hœgt
að fá vilja sínum framgengt á ann-
an hátt. Þessi skoðun byggist á
þeirri fullvissu viðkomandi aðila, að
málstaður þeirra sé sá eini og rétti
og jafnvel óhœfuverk geti ekki
varpað á hann skugga, ef þau stefni
að framgangi hans. Þetta er hættu-
legur hugsunarháttur, sem ber vitni
fávíslegu einsýni og ofstœki, skorti
á menntun og víðsýni og því um-
burðarlyndi, sem þarf til að geta
lifað í samfélagi við aðra.
HUGLEIÐINGAR eins og þessar
vakna við lestur titilgreinar þessa
heftis, en hún fjallar um ofbeldi og
orsakir þess. Hingað til hafa rann-
sóknir á ofbeldishneigð mannsins
verið nœr eingöngu stundaðar af
sálfræðingum og félagsfrœðingum,
og þeir hafa haldið því fram, að
hún ætti að mestu leyti rætur sínar
að rekja til áhrifa frá uppeldi og
umhverfi. En nýjustu rannsóknir
hafa sýnt, að hinar líffrœðilegu or-
sakir ofbeldis eru ekki síður fyrir
hendi en þœr sálrænu og félagslegu.
Eftirtektarverð eru orð eins vísinda-
manns, sem vitnað er til í greininni,
en þau eru m.a. á þessa leið: „Þegar
ég rannsaka fólk, sem alizt hefur
upp við mjög óheppilegar aðstæður,
furðar mig á því, hve fáir hafa
leiðzt út í ofbeldi og glœpi. Auðvit-
að hefur umhverfið, sem einstak-
lingurinn elst upp í, mikið að segja,
en þegar ég athuga fólk, sem á sér
langa sögu ofbeldis og glæpa, hefur
það vakið eftirtekt mína, að margir
hafa orðið fyrir einhverjum
skemmdum á heila.“
ÝMIS ÖNNUR mál er fjallað iim í
þessu hefti og eru.mörg þeirra íhug-
unarverð og segja frá nýjum rann-
/-------------------------------------------------------------------------------N
Kemur út mánaðarlega. Útgefandi: Hilmir hf„
Skipholti 33, Reykjavík, pósthólf 533, sími 35320.
Ritstjóri: Gylfi Gröndal. Afgreiðsla: Blaðadreif-
ing, Skipholti 33, sími 36720. Verð árgangs krónur
600,00. I lausasölu krónur 60,00 heftið. Prentun og bókband: Hilmir hf.
Myndamót: Rafgraf hf.
1