Úrval - 01.02.1971, Síða 36
34
ÚRVAL
tunglferjunni, ef til þess kæmi.
Það var sama hversu vel hann
vann, alltaf heyrðust raddir innan
Geimferðastofnunarinnar sem álitu,
að hann ætti ekki að fara í geim-
ferð til tunglsins. „Enginn sag'ði
við mig, þú ert of gamall og það
er of langt síðan þú fórst í síðustu
geimferð þína,“ sagði Shepard.- „Ég
fann aftur á móti, að sumir álitu,
að það tæki mig lengri tíma að
öðlast nægilega tækniþekkingu en
suma samstarfsmenn mína. Ég held
að ég hafi verið lengur að því, en
ég lagði hart að mér og nú finn
ég, að það háir mér ekki lengur".
í júní 1969 var svo tilkynnt, að
Shepard hefði verið valinn sem
stjórnandi geimfarsins Apollo 13.,
þegar það færi til tunglsins. En
síðan var því breytt og ákveðið, að
hann og áhöfn hans færu með
Apollo 14. Enn hefur ekki fengizt
skýring Geimferðastofnunarinnar á
þessari breytingu og hún mun
sennilega aldrei fást. Sögusagnir
gengu um það, að Shepard hefði
lent í erfiðleikum við þjálfunina,
einkum þó við tunglferjuna. Hann
hefði þurft meiri tíma til að æfa
sig í að taka hana á loft og lenda
henni. Sagt var að áhrifamiklir
menn innan Geimferðastofnunar-
innar hefðu jafnvel viljað láta
Shepard hætta við geimferðina. En
Slayton yfirmaður Shepards, sem
var sannfærður um hæfni hans,
lagðist eindregið á móti því. „A1
Shepard hefur fengið meiri þjálf-
un en nokkur annar geimfari, ef
hann er ekki hæfur til fararinnar,
er enginn það,“ sagði ' Slayton.
Hvernig sem málum er háttað, þá
er eitt víst, að Shepard hefur bein
í nefinu, og lét ekki auðveldlega
setja sig úr leik. „Þjálfunin er mjög
erfið og tekur langan tíma,“ sagði
hann, þegar hann var að ræða um
erfiðleikana, sem þarf að yfirstíga
við þjálfunina. „Það hefur aldrei
verið létt verk að búa sig undir
geimferð. Enn sem komið er, hef
ég samt ekki lent í erfiðleikum með
að skilja þessi flóknu tæki, og býst
ekki við að svo verði, en þetta er
samt enginn barnaleikur“. .
Shepard gengur nú undir nafn-
inu Rookie meðal félaga sinna, og
hann vann langan vinnudag með
áhöfn sinni, þeim Stuart Roosa og
Edgar Michell við undirbúning
geimferðarinnar á Kennedy-höfða.
Þar æfðu þeir aftur og aftur þau
verk, sem þeir þurfa að inna af
höndum á hættumestu augnablik-
um geimferðarinnar, eins og þegar
þeir áttu að tengja tunglferjuna
við stjórnfarið o. s. frv. Shepard
flaug tækinu sem notað er til að
æfa lendinguna á tunglinu, hvenær
sem tækifæri gafst. Og Shepard
hefur sannað, að ekki var ástæða
til að vantreysta honum..
☆
Stúlka ein, sem vinnur á stjórnarskrifstofu viðlhafði ekki :þá gömlu
aðferð að segja unnustanum upp vafningalaust án þess að hugsa um
orðaval, heldur tilkynnti hún unga manninum á mjög nærgætinn hátt
í ósviknum rlkisskriffinnskustíl, að hann hefði verið „afþakkaður".