Úrval - 01.02.1971, Page 56

Úrval - 01.02.1971, Page 56
54 ÚRVAL sinn. Hann skoðar síðan nokkrar eftirprentanir af málverkum og á að segja til um, hvort draumurinn hafi líkzt einhverri þeirra. Ef hann velur nú úr þá mynd, sem sendand- inn hugsaði um, eða myndina, sem var í umslaginu á stólarminum „hittir hann í mark“. Við veigamiklar tilraunir, sem gerðar voru 1968, voru draumar móttakendanna ótrúlega oft í ná- kvæmu samræmi við hugmyndirn- ar af málverkunum, sem sendend- urnir hugsuðu um. — Ungur piltur sagðist hafa dreymt nokkrum sinn- um stóra, gráa byggingu, sennilega kirkju. „Lítil gömul kona,“ sagði hann, „stóð fyrir framan kirkjuna." En myndin, sem sendandinn hugs- aði um, meðal pilturinn svaf, var málverk Van Goghs „Kirkjan í Auvers“. Myndin er af stórri grárri kirkju og fyrir framan hana stend- ur einmana kona. Rithöfundi einum fannst hann dreyma um píslarvættisdauða ein- hvers manns. Hann heyrði kórinn „Gefið þeim axir, gefið þeim axir“ úr óperunni Drengirnir frá Sira- kusu. Myndin, sem sendandinn hugsaði um, var af manni sem átti að fara að hálshöggva. Sálfræðing nokkurn dreymdi, að hann sæi fólk byggja sér kastala úr sandi. í öðrum draumi sömu nótt, fannst honum hann skríða um í sandi. Sendandinn hugsaði um mynd, sem sýndi hóp af fólki byggja sér sandkastala. Nákvæmasta drauminn af hugs- un sendandans, dreymdi mann nokkurn í draumarannsóknarstofn- uninni fyrir fáum árum. Myndin, sem sendandinn hugsaði um og sendi móttakandanum, var málverk Van Goghs Bátar í fjöru. Strax í fyrsta draumnum fannst mannin- um hann „ganga á borðstokki skips eða í fjöru eða við sjávarströnd. Honum fannst hann sjá staðinn í einhvers konar upphöfnu innra ástandi, og datt strax Van Gogh í hug“. Fjöldi annarra drauma hefur verið því næst eins nákvæmur og þessi. Leigubílstjóra dreymdi aftur og aftur um hnefaleikakeppni. Myndin, sem sendandinn hugsaði um, var af hnefaleikakeppni milli þeirra Dempsey og Firpo. Þegar draumarnir eru svona líkir myndunum sem sendendurnir hugsa um, eiga móttakendurnir yf- irleitt ekki í neinum erfiðleikum með að koma auga á samband myndanna og draumanna. Þó kom það fyrir í nokkrum tilvikum, að móttakendunum gekk illa að átta sig á sambandi draums og myndar, jafnvel þótt starfsmenn stofnunar- innar sæju strax tengslin milli þeirra. I tilraununum, sem fram fóru 1968, komu 64% móttakenda þegar auga á sambandið á milli drauma sinna og myndanna. Þessi prósentufjöldi nær því varla að vera tölfræðilega mikilvægur. Þeg- ar dómarar stofnunarinnar athug- uðu hins vegar myndirnar og drauma þessara sömu móttakenda, fundu 91% þeirra rétta mynd, er þeir höfðu lesið lýsingar af draumn- um. Þessi prósentufjöldi er töl- fræðilega mjög mikilvægur. Ef um tilviljun hefði verið að ræða, hefðu líkurnar fyrir að finna rétta mynd
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.