Úrval - 01.02.1971, Page 86

Úrval - 01.02.1971, Page 86
84 ÚRVAL í Ragunda, sem er byggðarlag í Jamtalandi í Svíþjóð, var fyrrum stórt stöðuvatn. Breiður sandás frá því á ísöld lokaði dalnum, svo að mikil uppistaða myndaðist en áin Indalsálven, féll í stóran sveig norð- ur úr vatninu og var foss mikill, kallaður Storforsen, þar sem hún féll fyrir endann á ásnum. Lengi höfðu menn í byggðunum þarna velt því fyrir sér að gera skurð í gegnum sandásinn til þess að geta fleytt timbri ofan úr hinum miklu skógum Jamtalands, en ekk- ert verulegt varð úr því, fyrr en rétt eftir 1790. Þá var grafið í gegn- um ásinn, sem var rúmum 10 m hærri en yfirborð vatnsins, aðallega með því að veita í skurðinn vatni úr læk, er féll í vatnið skammt frá. Skurðinum var svo lokað við mynn- ið með timburmilligerð. En vorið 1796 var leysing ör og vatnið stóð hátt. Snemma eina nótt- ina gerðist hinn mikli atburður. Vatn tók að seytla meðfram milligerðinni og gróf sundur laust sandhaftið. Menn sváfu svefni hinna réttlátu í Ragunda, en beljandi vatnsflaumur- inn sagaði ásinn dýpra og dýpra, unz brotið var í hann skarð og ekki bara allt hið mikla vatn árinnar ílóði þar í gegn, heldur tæmdist stöðuvatnið með öllu á örskammri stundu. Stórfossinn þagnaði og hef- ur síðan verið kallaður „Döde fall- et“, enda eru þar aðeins vatnssorfn- ar klappir. Þegar svo Ragundafólk reis úr rekkju eftir hina skömmu og blíðu sumarnótt, var vatnið þeirra horfið. í staðinn var komið kolsvartir aur- ar og leðjuskákir, þar sem vatns- botninn hafði verið. Þar sem lægst var tók áin að grafa sér nýjan far- veg í botninn og þar myndaðist nýr foss, sem smátt og smátt færðist of- ar, eftir því sem áin gróf sig dýpra. Brátt tóku að berast fregnir af hinu mikla tjóni niðri í dalnum, og bændur í Ragunda voru krafðir um geysilegar skaðabætur fyrir það tjón. Það tók byggðina nærfellt öld, að ljúka þeim greiðslum, en nú þyk- ir þessi einstaki atburður hafa orð- ið til mikils góðs. Unnt er að fleyta timbri eftir ánni alla leið ofan úr hinum miklu skógum Jamtalands, og þar sem vatnsbotninn var einu sinn er afbragðs land til ræktunar. —o— Fyrir nokkrum árum voru reistir níu risastórir skýjakljúfar í Brasilíu. Svo óheppilega vildi til, að tveir þeirra hrundu svotil strax og þeir voru komnir undir þak. Blað eitt lýsti óhappinu á þessa leið: —- Þetta var allt saman mjög hentugt. Maður fór bara inn í for- stofuna, og ef maður ætlaði upp í lyftu ýtti hann á hnapp — og þá komu allar hæðirnar niður til hans!
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.