Úrval - 01.02.1971, Page 94

Úrval - 01.02.1971, Page 94
92 ÚRVAL En sögusmetturnar höfðu eigin svör á reiðum höndum: Við öfluð- um peninganna með alls konar „fjárglæfrastarfsemi“. Við Paul vorum sökuð um að verzla með bifreiðir, sem var illfáanleg vara í stríðslok. Svo áttum við að hafa fært okkur upp á skaftið og byrjað með gull, demanta og penicillin. Og svo fór að lokum, að ég var ásökuð um að selja ópíum. Allt slúðrið og allur rógurinn var til þess gerður að koma Papa í óþægilega aðstöðu og valda honum vandræðum. Ég ákvað því að sækja miklu færri opinberar veizlur, sýn- ingar og frumsýningar en áður til þess að binda endi á slúðrið og róg- inn. Ég ákvað því að auka þekk- ingu mína á flugi til þess að hafa nóg fyrir stafni. í marz 1948 var mér veitt vott- orð um einkaflugnám byrjenda, sem þarf til þess að öðlast réttindi sem einkaflugmaður í Frakklandi. Ég fékk svo víðtækari flugréttindi 6 vikum síðar. Flestar þær flugvél- ar, sem mig langaði til þess að fljúga, voru í eign flughersins. Því ákvað ég að reyna að öðlast rétt- indi sem herflugkona. Það var ekki auðvelt að öðlast slík réttindi. Með- al annars varð ég þá að læra list- flug. Og þannig kynntist ég ein- mitt Raymond Guillaume. Síðar játaði hann, að hann hefði óttazt, að löngun mín til þess að læra list- flug væri aðeins duttlungar frægr- ar konu úr samkvæmislífinu. En hann er kurteis maður. „Allt í lagi,“ sagði hann, þegar við vorum kynnt. „Við getum reynt það.“ Venjulegir listflugtímar standa yfir í 10—15 mínútur. En í fyrsta reynsluflugi mínu á þessu sviði af- nam hann allar tímatakmarkanir. Við vorum á lofti í næstum heilan klukkutíma. Við æfðum allar hin- ar sígildu „kúnstir“ listflugsins. Og síðan æfðum við þessar sömu kúnstir „aftur á bak“ og á hvolfi allt til enda. Guillaume hafði stillt aftursýnis- spegil sinn þannig, að hann gat fylgzt með svipbrigðum mínum. Og hann rabbaði stöðugt við mig í talkerfinu, meðan hann gerði allar þessar kúnstir, útskýrði fyrir mér, hvað hann ætlaði að gera næst, og spurði mig, hvort mér liði nokkuð illa. Ég svaraði hverju sinni: „Þetta er dásamlegt!" Og það var sannarlega dásam- legt! Þegar við fórum í fyrstu lykkjuna og ég sá skyndilega sól- gullna akrana koma í stað himins- ins fyrir ofan höfuð mér, hefði ég getað klappað saman höndunum af einskærum fögnuði. En ég gerði bara allt það, sem Guillaume ráð- lagði mér að gera, og hélt varlega um stýrisstöngina, reiðubúin að fylgja hverri hans hreyfingu. Þeg- ar við lukum lykkjunni, dembdi Guillaume sér strax í hálflykkju og svo strax á eftir í hálfveltu. Jörðin hallaðist upp á endann, himinninn fór á hvolf, sjóndeildar- hringurinn þaut upp á við, hvarf síðan og kom svo aftur í ljós og sneri þá skáhallt. Þetta líktist helzt algerlega nýrri tegund af hljómfalli, sem ekkert tónskáld hafði enn fundið upp. Flugvélin söng, flugvélin dansaði, og eftir hverja dýfu, veltu eða
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.