Úrval - 01.11.1971, Síða 14
12
ÚRVAL
hann langaði að „leggja sem mest
af mörkum til að efla hernaðarmátt
lands mins“. Og fertugur að aldri
varð hann ráðgjafi við flugvéla-
framleiðslu — vann aðallega að
gerð sprengjuflugvéla af gerðinni
B-24 og F4U. Til þess að geta sem
bezt kynnst hæfni þessara flugvéla,
og sömuleiðis kynnzt af eigin raun
hvernig flugmönnum geðjaðist að
þeim, og hvað flugmenn óskuðu sér
að yrði breytt, hvernig sprengju-
flugvél framtíðarinnar ætti að vera,
fór hann til vígstöðvanna yfir
Kyrrahafi árið 1944 — og flaug sem
borgaralegur starfsmaður hersins
einar 50 árásarferðir á hendur Jap-
önum.
Þegar Þjóðverjar höfðu gefizt
upp, en það var vorið 1945, var
Lindbergh enn að vinna fyrir flug-
herinn, en samt á borgaralegu sviði
— sem ráðgjafi aðalritara flughers-
ins í Washington. Hann var svo
gerður að eins konar heiðurshers-
höfðingja og 1954 kom út frásögn
hans sjálfs af því fræga Parísarflugi
í bókarformi. Fyrir þau skrif sín
vann hann Pulitzer-verðlaunin.
Bókina skrifaði hann á 14 árum,
og var á þeim tíma staddur hingað
og þangað um veröldina, skrifaði
kafla hér, og kafla þar — áður en
hann réðst í að prjóna allt saman
í eina bók. Og honum er fullkom-
lega eðiislægt, að vinna þannig að
ritstörfum, því að Lindbergh er og
verður hirðingi. Síðustu 43 árin hef-
ur hann starfað sem flugmálaráð-
gjafi — ferðast þá í sífellu (þessi
síðustu ár) milli Seattle og New
York, en í Seattle var hann ráðgjafi
varðandi hönnun þotanna frægu af
gerðinni Boeing 707 og 747.
Núna er það náttúruverndaráhug-
inn, sem veldur mestu um ferða-
lög hans. (Og það er greinilegt að
maðurinn er enginn viðvaningur að
ferðast, því að farangur hans er
enginn utan 26 punda þung ferða-
taska sem kemst undir flugvélar-
sæti, en í henni eru skjöl þau sem
hann vinnur með, og nægilegur
klæðnaður). Hann starfar af áhuga
í samtökunum „World Wildlife
Fund“, en það er alþjóðlegur félags-
skapur um náttúruvernd, „Nature
Conservancy“ og „Oceanic Founda-
tion“, en það síðasttalda er félags-
skapur á Kyrrahafssvæðinu sem
miðar að verndun gróðurs og lífs
neðansjávar. Nixon forseti hefur út-
nefnt hann í „Borgarlega ráðgjafa-
nefnd um gildi umhverfisverndar".
FJÖLSKYLDUMAÐUR
Lindbergh hefur aldrei drukkið
áfengi. Hann hefur aldrei reykt, og
aldrei átt við neina sjúkdóma að
stríða, sem því nafni gætu kallast.
Og enn í þann dag í dag, er hann
við hestaheilsu. Hann er liðlega 180
cm á hæð og vegur 185 pund. Hann
ieikur sér að því að ganga mílu eft-
ir mílu yfir erfitt land ■— og það
gerir hann einmitt á landareign
sonar síns, nautabúgarðinum í Mon-
tana. Hann virðist óþreytandi, og
getur dögum saman látið sér nægja
að blunda eins og fugl í fáeinar
mínútur og vaknar síðan endur-
nærður. Kýrnar voru að bera á bú-
garðinum í Montana, þegar við vor-
um þar, og Lindbergh krafðist þess
að standa miðnæturvaktina. (Hann
fór þá í rúmið klukkan 10 og vakn-