Úrval - 01.11.1971, Blaðsíða 79
SALÓMON KONUNGUR...
77
þeirra báru drottningartitil. Balkis
var ógiít, og hún var ung og mjög
fögur. Auk þess var hún mjög gáf-
uð kona og mjög aðlaðandi í fram-
komu. Hún hafði lagt upp í langa
og hættulega ferð til þess að hitta
Salómon. í sex mánuði hafði hún
búið í höll hans, hafði talað við
hann í auðmýkt af stakri þolin-
mæði. Og honum hafði samt jafn-
vel ekki dottið í hug að leita ástar
hennar.
Og nú ætlaði hún að halda heim-
leiðis.
Kebra Nagast segir söguna af upp-
hafi konungsfjölskyldu Eþíópíu-
manna. Og samkvæmt bók þessari
leitaði Salómon fremur ásta drottn-
ingar vegna þess að hann þóttist
viss um, að hún myndi fæða hon-
um þess háttar börn, er hann óskaði
eftir, heldur en vegna þess, hversu
girnileg hún var.
Hann ákvað að biðja drottingar-
innar frá Saba.
Og hann sendi henni því eftirfar-
andi skilaboð:
,,Nú, þegar þú hefur komið á
minn fund, vilt þú þá halda burt án
þess að kynnast því, hvernig hinir
útvöldu í konungsríki mínu snæða
við veizluborð mitt, og hvernig hin-
ir syndugu eru frá því reknir? Af
slíku muntu öðlast þekkingu. Kom
til mín, og tak þér sæti nálægt há-
sæti mínu, í einkatjaldbúðum mín-
um, og ég mun fullkomana upp-
fræðslu þína, því að vissulega hefur
þú elskað vizkuna, og hún mun búa
með þér allt til þíns aldurtila og
að eilífu.“
Með þessum orðum sínum óskaði
hann þess, að hún kæmi á hans fund
í þeirri álmu hallarinnar, sem einka-
íbúð hans var í, enda hafði drottn-
ing og föruneyti hennar auðvitað
búið í annarri álmu hallarinnar.
Balkis tók boði hans.
Salómon bjóst til þess að vekja
undrun hennar og aðdáun, já, lotn-
ingu hennar, í enn ríkari mæli en
áður. Hann lét búa veizluborð til
undirbúnings komu hennar, og varð
það enn dýrðlegra en venja var.
Allur borðbúnaður og ílát voru úr
gulli og silfri. Þykk, austurlenzk
gólfteppi með einkennilegum
mynztrum þöktu gólfið. í salnum
var fjöldi alls kyns skrautmuna og
listmuna, er skreyttir voru dýrum
steinum. Veggirnir voru þaktir
marglitum marmara. Hirðmenn-
irnir voru í silkiklæðum, og báru
þeir dýrar festar, skreyttar rúbín-
um, safírum og smarögðum. Þrælar
stóðu víðsvegar í salnum og veif-
uðu blævængjum úr páfuglastélum
til þess að veita gestum nokkurn
svala. Veizluna sátu fulltrúar fjar-
lægra þjóða, sem sent höfðu sendi-
boða á fund Salómons vegna orð-
róms þess, er fór af vizku hans og
auðæfum.
Drottningin frá Saba kom með
öllu föruneyti sínu. Hún stóð ekki
að baki hirð Salómons, hvað skraut-
klæði snerti, enda var hún næstum
eins auðug og hann. Konungurinn
hafði komið fyrir sérstöku borði
handa henni. Stóð það að baki sæti
hans við aðalveizluborðið, og á milli
þeirra hafði verið settur fagur
skermur, þannig að hún gat fylgzt
með öllu, sem gerðist, en hirðmenn-
irnir komu eigi auga á hana.
Drottningin heyrði allt, er talað