Úrval - 01.11.1971, Blaðsíða 42
40
ÚRVAL
UM DRAUMA
• Ekki er mark að draum-
um.
• Oft er ljótur draumur fyr-
ir litlu efni.
• Svo rætist hver draumur
sem hann er ráðinn.
• Draumarnir ganga eftir
daglátum.
• Draumar eru oft dáranna
spádísir.
■—1 ~
• Hryggan mann dreymir
sjaldan gleðilega drauma.
• Draumarnir loða oftast á
lygum.
• Líkar eru menjar draums
og skugga.
Allt íslenzkir málshœttir.
________________;______ y
neðansjávar, og festir blóðugan
fiskinn við belti sitt, verður þegar í
stað sjálfsögð bráð hákarls. Ég hef
séð hákarla elta lykt, rétt eins og
flokk veiðihunda, og það minnir á
nafnið, sem Grikkirnir gáfu þeim:
„Veiðihundar hafsins".
Það er eldgömul kórvilla, og
raunar enn trúa margra, að hákarl-
inn hafi vonda sjón. Það er þvert á
móti. Hákarlinn er fullkomlega fær
um að sjá iangt frá sér og greina
stærð og lögun hluta, sem eru all-
fjarri honum. Þetta sá ég sjálfur eitt
sinn, er ég kafaði í sjóinn undan
Afríkuströnd. Ég kom auga á há-
karl í talsverðri fjarlægð frá mér,
þar sem ég lónaði sjálfur í grunnu
vatni án þess að hreyfa mig, þannig
að loftbóluhljóðið frá súrefnisgeymi
mínum og loftbólurnar rynnu sam-
an við ljósskímu sem féll niður á rif.
Ég leit aðeins af hákarlinum, og
var að athuga hvernig ljósgeisli
klauf vatnið neðan við mig. Ég veit
ekki hvort það var eðlisávísun eða
eitthvað annað, sem olli því að ég
snarsneri mér allt í einu við og leit
í átt til hákarlsins. Og skyndilega
herptist saman í mér sérhver vöðvi.
Hann var ekki nema 30 fet frá mér,
og stefndi á mig eins hratt og örugg-
lega og tundurskeyti.
Að sjá hákarl stefna á þig beint
og örugglega er næsta undarlegt.
Það er frá þessu sjónarhorni sem
hann er svo óttalegur. Munnurinn
hálfopinn og uggarnir þrír sem út
af honum rísa með hnífjafnt bil á
milli sín, gera hann að ímynd alls
þess illa. Sannkallaður djöfull..
Þegar hákarlinn átti ekki eftir
nema tvö fet að gúmfitunum sem