Úrval - 01.11.1971, Blaðsíða 67
HIÐ HEILAGA FLJÓT INDLANDS — GANGES
65
fyrstu skotunum í bræðravígunum
milli Austur- og Vestur-Pakistan.
En Gangesfljótið heldur sífellt
áfram að streyma, á hverju sem
gengur, glitrandi í ofsagróðri ós-
hólmalandsins. Bengalskar konur
með sítt hrafntinnuhár og möndlu-
löguð augu gróðursetja hrísjurta-
græðlinga í leðjuna. Græn blöð te-
runnans bærast gljáandi í blænum
á teekrunum uppi í nálægum hæð-
um. Ættflokkafólkið arkar um sa-
vannagrasið með boga og örvar um
öxl. Það er á leið á markaðinn.
Fljótagufuskip toga á eftir sér
pramma, hlaðna vörum, i áttina
til hæða Bengal. Reykurinn frá eld-
stæðum þorpanna svífur lárétt inn
á milli pálmatrjánna. Og alltaf er
fljótið miðpunktur lífsins, sjálfur
kjarninn.
Til þess leita enn Hindúar sér til
lækninga, eins og þeir hafa gert ár-
þúsundum saman í Indlandi. „Ganga
er fljót Indlands,“ skrifaði Nehru í
,,Erfðaskrá“ sinni, „elskað af íbúum
landsins, sem eru tengdir því með
sameiginlegum minningum kyn-
stofnsins, vonum þjóðarinnar og
ótta, sigursöngvum hennar, sigrum
og ósigrum. Það hefur verið tákn
hinnar aldagömlu siðmenningar
Indlands, síbreytilegt og sístreym-
andi, en samt ætíð hið sama Ganga.“
I fyrirtækinu, sem ég starfa hjá, er ungur verkfræðingur, sem notar
ihvert mögulegt og ómögulegt tækifæri til þess að koma sér í mjúkinn
ihjá húsbónda sínum. Nýlega var húsbóndinn í veiðiferð og ihringdi þá
á skrifstofuna t.il þess að spyrja bókihaldarann okkar um eitthvað. Ungi
verkfræðingurinn, sem lét aldrei neitt tækifæri ónotað til þess að
koma sér í mjúkinn hjá húsbónda sínum, flýtti sér að segja við bók-
haldarann: „Spurðu hann, hvort hann þarfnist mín á einhvern hátt.“
„Jú,“ svaraði bókhaldarinn grafalvarlegur, „hann langar til þess að
vita, ihvort þú getir synt með önd í kjaftinum." L.A. Ricord.
Ég beið eftir þvi í kjörbúðinni að komast að kassanum við útgang-
inn. Fyrir framan mig stóð miðaldra kona, sem hlóð geysiháum stafla
af barnamat í dósum á borðið við hliðina á peningakassanum. Kaup-
maðurinn, sem var sjálfur við kassann iþessa stundina, varð eins hissa
á þessum miklu innkaupum á barnamat og ég. Hann spurði konuna: ,,Er
einhver í fjölskyldunni að búast við tvíburum?“
„Nei, nei,“ svaraði konan, „maður minn er að búast við gervitönnum.“
Frú George Shields.
Velþekktur lögfræðingur segist lesa „Playboy" af sömu ástæðu og
hann les „National Geographic“ (frægt landafræðitímarit, þýð.): „Sko,
ég geri það til þess að skoða allt það, sem ég mun aldrei ,heimsækja.“
Mickey Porter.