Úrval - 01.11.1971, Blaðsíða 112
110
ÚRVAL
það fótum tróð réttlætið. Og svo
þegar hin nýju lög veittu því tæki-
færi til þess, gerði það sér alveg
sérstakt far um að vera elskulegt.
Sem dæmi um það gæti ég nefnt,
að ég vildi heldur fara inn í bæinn
Jackson í Mississippifylki og reyna
að fá þar herbergi í gistihúsi án
þess að hafa pantað það fyrirfram
heldur en að reyna slíkt hið sama
í New Yorkborg. Og við höfum
verið beittir verra ofbeldi í Chi-
cago en víðast hvar í Suðurríkjun-
um.
Séra Channing Phillips hlaut út-
nefningu sem forsetaefni á ársþingi
Demokrataflokksins ári'ð 1968, og
hlaut 67Yz atkvœði við fyrstu at-
kvœðagreiösluna.
Mannréttindabarátta negranna,
sem háð var í Suðurríkjunum, gekk
ekki heldur með sigur af hólmi í
fátækrahverfunum í borgum Norð-
urríkjanna. Margt fólk þar örvænti,
er því var hugsað til allra þeirra
fórna, sem negrarnir höfðu orðið að
færa, og þess litla árangurs sem
unnizt hafði. Mannréttindabarátt-
unni varð lítið ágengt í Harlem-
hverfinu í New Yorkborg og öðrum
þeim borgum Norðurríkjanna, þar
sem hún var háð. Og ástæðan var
sú, að það var ekki hægt að hafa
hendur í hári óvinarins. Það var
ekki um neinn vissan sökudólg að
ræða.
Norðurríkin sköpuðu negrunum
eins konar efnahagslegt þrælahald.
f stað þess að halda negrunum -á
plantekrunum, þar sem húsbóndinn
varð að ala önn fyrir brælunum,
þegar þeir voru orðnir gamlir og
einskis nýtir, þvingaði Norðurríkja-
kerfið negrana til þess að setjast að
í svörtum fátækrahverfum í borg-
unum og leitaði aðeins til þeirra
þar, þegar þörf var fyrir þá á
vinnumarkaðinum, en bar enga
ábyrgð á því, að þeir hefðu nokk-
urt lífsviðurværi endra nær.. Ég
held, að mörg vandamál síðustu ára,
svo sem óeirðir og uppreisnir, séu
afleiðing af þess háttar einangrun
og þeirri staðreynd, að negrunum
hefur í rauninni aðeins verið hleypt
út úr negrahverfunum, þegar hægt
hefur verið að notfæra sér vinnu-
afl þeirra og græða á þeim.
Sonny Zoo er rúmlega tvítugur.
Hann á heima í negrahverfi í vest-
urhluta Philadelphiu, sem gengur
undir nafninu Vestur-Philadelphia
og er lélegt fátœkrahverfi. Þar vinn-
ur hann nú við framkvœmd sjálfs-
hjálparáœtlunar. „Þetta er eins og
frumskógur, maður,“ segir hann.
„Ég veit ekki, hvernig heimurinn
er fyrir utan hverfið. En ég þekki
þetta hverfi, og komist maður lífs
af hérna, hlýtur maður að komast
lífs af alls staðar. Slíkt innilokun-
arhverfi er mjög hœttulegur stað-
ur.“
Ævisaga Sonny er vitnisburður
um það, hvernig það er að alast upp
í lélegu hverfi. í skrám lögreglunn-
ar stendur, að hann hafi aðeins ver-
ið 11 ára, þegar hann var fyrst tek-
inn fastur fyrir óspektir á almanna-
fœri. Hann var 14 ára, þegar hann
var ákœrður fyrir að leyna á sér
banvœnum vopnum. I hvorugt
skiptið mætti hann í réttarsalnum,
þegar málin voru tekin fyrir. Og
það höfðu verið gefin fyrirmæli um
það af dómstólnum, að hann skyldi