Úrval - 01.11.1971, Blaðsíða 22
20
ÚRVAL
sem voru bezt til þess fallnir að
halda við voninni: „Ef Guð er með
okkur, hver getur þá verið á móti
okkur?“ hafði hann yfir aftur og
aftur, og hann svæfði sjálfa sig með
því að raula sálminn, „Öll mín trú
beinist að þér“.
Annað markmið hans var að
vinna gæzlumenn sína á sitt band.
Og óvænt tækifæri gafst dag einn,
þegar vatnspípa sprakk, og vatnið
flæddi út um allt fylgsnið. Og þeg-
ar skæruliðarnir horfðu á vatnselg-
inn, alveg hjálparvana, stöðvaði sá
gráhærði vísindamaður lekann —
enda hafði hann verið fúskari í
pípulögnum í gamla daga, heima
í Texas og Oklahoma, þar sem hann
ólst upp. Tupamaros skæruliðarnir
virtust ekki alveg geta meðtekið að
„Ljóti Ameríkaninn“ gæti fengið af
sér að ata hendur sínar skít við
venjuleg störf.
PRÓF FYRIR ÞANN KRISTNA
Hann rauf skarð í fjandskaps-
vegginn, sem Tupamaros höfðu
myndað gegn honum með góðsemi.
Smátt og smátt fengu þeir aukinn
áhuga á honum og virðing þeirra
fyrir honum óx.
„Mig langar aðeins að vita, hvers
vegna ég er hafður hér,“ sagði Fly
við unga verði sína, klædda verka-
mannafötum, „hvert er markmið
hreyfingar ykkar og hver vonist þið
eftir að uppskera ykkar verði?“
Hann spurði þá í fullri einlægni, og
dag einn var enskumælandi skæru-
liði sendur til hans að útskýra fyrir
honum stöðu þeirra: „Aðeins 2500
manns, eða þar um, stjórna öllum
viðskiptum og eignum í Uruguay.
Þetta fólk er líka alls ráðandi um
stjórn landsins og ríkir með ofbeldi.
Við verðum að velta úr sessi þessu
veldi hinna fáu, og koma á fót
sósíalísku samfélagi. Við verðum að
rjúfa eignarétt auðhringa á öllu
landi okkar og þjóðnýta eignir út-
lendinga í landinu.“
Fly spurði þá fangaverði sína:
„Hvers vegna reynið þið ekki að
leita eftir endurbótum með krafti
atkvæðaréttarins, en án þess að
beita ofbeldi?“
„Óframkvæmanlegt," sögðu þeir
við hann, „við höfum reynt til
þrautar allar friðsamlegar leiðir, og
núna er ekki um annað að ræða en
að velta stjórninni úr sessi.“
Hann bað þá að færa sönnur á
réttmæti þess sem þeir héldu fram.
Og brátt voru skæruliðarnir farnir
að bera Fly alls konar bækur og
blöð að lesa. Flest af því sem þeir
komu með, segir hann hafa verið
hráan áróður byltingarmanna, en
samt sem áður varð Fly fróðari eft-
ir um efnahagsstöðu landa róm-
önsku-Ameríku, og hinn gífurlega
mun sem er á stöðu ríkra og fá-
tækra.
Og á meðan Fly menntaði sjálfan
sig, þá fengu Tupamaros aukið álit
á þessum vingjarnlega, skilnings-
ríka, og námfúsa Ameríkana. Dag
einn sagði foringi úr hópnum í
gamni við Fly: „Ef við sigrum i
byltingunni okkar, þá kann svo að
fara að við höfum verk handa þér
að vinna — þú myndir breiða út
upplýsingar um uppbyggingu okk-
ar!“
Og nú voru verðirnir farnir að
veita Fly aukið frelsi. Þeir voru