Úrval - 01.11.1971, Blaðsíða 29
HINN MIKLI HÖFÐINGI KONGÓ
27
gert alla stjórnmálamenn Kongó
skaðlausa. Sumir hafa verið sendir
í næsta virðulega útlegð sem am-
bassadorar, aðrir fá að lifa sínu fjöl-
skyldulifi, gegn því að skipta sér
ekki af stjórnmálum landsins. í stað
þeirra gömlu stjórnmálamanna, hef-
ur Mobutu ráðið til sín unga, vel
menntaða Kongómenn, sem mynda
ríkisstjórn tæknimenntaðra vísinda-
manna.
Til þess að sýna fram á virðingu
ríkisstjórnarinnar fyrir sögu Kongó
útnefnir Mobutu höfðingja út um
allt land til að fara með héraðs-
stjórnir, þ.e. þar sem sú ráðstöfun
getur gengið.
Það risavaxna Union Miniere du
Haut Katanga, belgískt fyrirtæki,
sem hafði með höndum alia kobar-
framleiðslu Kongós, og Mobutu
skoðaði sem ríki í ríkinu, var leyst
upp og gert að ríkisfyrirtæki. Marg-
ir þeirra sem áður unnu fyrir Union
Miniere, vinna nú sín gömlu störf,
en aðeins fyrir kongóska ríkið í stað
beigískra auðmanna.
KENNING MOBUTU
Dag út og dag inn, predikar Mo-
butu yfir þjóð sinni kenningu, sem
sumt gamalt ættflokkafólk, tekur
með miklum fyrirvara: mikla vinnu.
Á einum af peningaseðlum Kongó,
er mynd af Mobutu að bretta upp
ermarnar. Á sínum tíðu ferðum að
Kongófljóti, þar sem siglir sá merki
fljótabátur, „Mobutu forseti“, geng-
ur hann ævinlega í land til þess að
halda fyrirlestur yfir íbúum þorp-
anna, og útskýra fyrir þeim nauð-
syn stritsins. Embættismenn hans
geta aldrei verið öruggir. Hann
hringir til þeirra hvað eftir annað,
óstöðvandi, og krefst skýrslna um
ástandið. Þegar einhver undirmað-
ur ber sig undan verkefnum sínum
og segir eitthvað ómögulegt að
framkvæma, svarar Mobutu aðeins:
„Já, rétt, ómögulegt öllum öðrum en
þér“.
Mobutu er óhræddur við að losa
sig við Kongómenn sem eru einskis
nýtir og ráða evrópska sérfræðinga
í þeirra stað. Belgískir tæknimenn
eru nú langt komnir með að endur-
byggja síma- vatnsveitu- og raf-
kerfi landsins. Pan Amerícan stjórn-
ar Air Congo, og erlendir læknar og
kennarar hafa í auknum mæli tek-
ið að starfa í landinu.
Smám saman munu Kongómenn
samt sjálfir verða hæfari til að
gegna þessum sérfræðingastörfum
og munu bá taka við þeim. Mobutu
hefur nefnilega lagt mikla áherzlu
á menntun landsmanna. Nú eru t.d.
5000 háskólastúdentar í Kongó. 1960
voru þeir 30.
Til þess að vinna bug á verðbólg-
unni, felldi Mobutu gengið þannig
að myntin gilti ekki nema um einn
þriðja af því sem hún hafði áður
gert, og skapaði hann síðan nýja
mynt, „zairen" sem nú er einhver
traustasti gjaidmiðillinn í þróunar-
löndunum.
Kinshasa var fyrir fáum árum
eins konar draugaborg. Nú er hún
blómstrandi borg með meira en
milljón íbúum. Háhýsin gnæfa mót
himni, verzlanir eru sneisafullar af
vörum, og það sem ennþá meira
máli skiptir: útlendir verzlunar-
menn streyma til þessarar borgar
æstir eftir að fjárfesta þar. Kongó-