Úrval - 01.11.1971, Síða 30
28
ÚRVAL
menn, sem áður voru fjandsamlegir
gagnvart hvítum, heilsa þeim nú
vinsamlega og tala Evrópumanna í
Kongó hefur vaxið upp í 100.000
manns, næstum því sama fjölda og
var í landinu áður en það fékk
sjálfstæði.
Fimm ára tímabil Mobutus sem
forseti, rann út í nóvember 1970.
Kosningadagur var ákveðinn og
samkvæmt afrískri venju, bauð eng-
inn kandidat sig á móti honum. 10
milljónir kjósenda máttu velja milli
já og nei —• hvort þeir vildu búa
við sjö ára tímabil undir stjórn Mo-
butus. Eftir kosningarnar, skýrði
ríkisstjórnin hátíðlega frá því að
158 manns hefðu kosið nei. Það má
eflaust kappræða um gildi svona
kosninga, en það er vitað mál, að
Mobutu er mjög vinsæll meðal sinna
21 milljón þegna. Þeir dá hinn
sterka leiðtoga, og eru nægilega gáf-
aðir til að standa ekki gegn honum.
Margir eru honum mjög þakklátir
fyrir að hafa komið á friði í land-
inu.
Þrátt fyrir sín verk fram til þessa,
hefur Mobutu enn erfið verk að
glíma við. Enn hefur útflutningur
landbúnaðarvara aðeins vaxið um
60% frá því sem var fyrst eftir að
sjálfstæðið fékkst. Þótt Mobutu sé
umkringdur hæfum,velmenntuðum
úrvalsmönnum, þá vantar enn mik-
ið á að honum hafi tekizt að upp-
ræta spillinguna með embættis-
manna landsins.
Hann styðst enn við hinn 50.000
manna her landsins, einkum fall-
hlífahermennina 6000. í sinni fögru,
virðulegu höll við Kongófljótið, get-
ur forsetinn sagt með Lúðvík fjórt-
ánda: „L’étata, c’est moi“. Samt er
hann maður einsamall. Hinir gömlu
félagar hans eru ekki lengur með
honum, og það mun taka tíma að
mynda í landinu slíkt ástand sem
verður að vera í félagslega þróuðu
landi. Samt er ástand Kongó nú
miklu betra en menn hefðu fyrir fá-
um árum ímyndað sér, og fái Kongó
að koma fótunum undir sig í friði og
ró, munu hin miklu náttúriegu auð-
ævi þess, tryggja því glæsta fram-
tíð.
Stuttu eftir annað valdarán sitt,
sagði Mobutu við erlendan blaða-
mann: „Ósk mín er að gera Kongó
að landi, sem enginn hlær að“. Það
er enginn vafi á, að þessu marki
hefur hann þegar náð.
Maður gerir sér grein fyrir því, hvilíkir ofboðslegir erfiðleikar eru
því samfara að hreisna til í heiminum, þegar maður hefur sig loks i
það að hreinsa til í bílskúrnum.
Hubert K. Simon.
Kvenréttindakonur vilja láta breyta reglunum í poker þannig, að
fjórar drottningar séu hærri en fjórir kóngar.
Bennett Cerf.