Úrval - 01.11.1971, Page 38

Úrval - 01.11.1971, Page 38
36 ÚRVAL ir í dúk, sem mér tekst aldrei að ljúka við. Þær vissu vel, að ég var þar. Þær töluðu um „skrælingja- hirðina11 í París, að þar væru gervi- kóngar og einhver úr hópi skrílsins gæti hrifsað kórónuna í einu vet- fangi. — Jæja, og hvað sagðir þú þá, sagði Karl Johan og var enn alvar- legri en fyrr. — Já, ég skal svo sannarlega segja þér, hvað ég lét þær heyra, Jean Baptiste. Ég sagði þeim, að það væri rétt, að hirð Napóleons væri samsafn manna, sem hefði öðl- azt auð og völd skyndilega. En þeir hefðu þó skilning á að færa sér í nyt það fyrirbrigði nútímans, sem við köllum hreinlæti. Ég sagði þeim, að keisarinn og fjölskylda hans bað- aði sig á hverjum einasta degi. Ég sagði þeim, að ég kysi heldur að umgangast hreinlegt og skemmti- legt fólk, sem hefði skyndilega haf- izt til auðs og valda, heldur en ósviknar greifynjur, sem anguðu af svitalykt. Og ég sagði þeim, að for- feður mínir hefðu verið konungar í írlandi á þeim tíma sem siðlausir víkingar herjuðu í Evrópu. Og ég sagði þeim, að við borguðum hirð- ina hér með okkar eigin peningum. Og... Hér hikaði Désirée andartak. — Og hvað? spurði krónprinsinn. — Og að sænski aðallinn hefði gott af svoiítilli byltingu og ... — Og ennþá meira? greip hann fram í og fórnaði höndum. — ... og ... og að ég væri farin heim, heim til Frakklands, kjökraði hún. í júlí 1811, þegar hið norræna sumar skartaði sínu fegursta, yfir- gaf Desideria prinsessa Svíþjóð. — Ég kem brátt aftur, sagði hún og kyssti mann sinn og son í kveðju- skyni... Hún saknaði raunar manns síns og barns, en þegar hún ók um björt og fjörleg stræti Parísarborgar, var eins og þungu fargi væri af henni létt. Hér var fólkið ekki hrætt við að hlæja, eins og í Stokkhólmi. Hér óttuðust menn ekki gleðina. Désirée lygndi augunum mót sólinni. Það yrði skemmtilegt að sjá Napóleon sem föður! Og nú var hún einmitt á leið í heimsókn til hans. Désirée fannst vingjarnlegt og notalegt að sitja og ræða við Marie- Louise keisaradrottningu úti á svöl- unum við Tuilleriene. Hún fann til svolítillar afbrýðissemi, þegar hún sá Napóleon koma til beirra með son sinn á handleggnum. Brúnt and- lit hans lýsti af stolti og föðurkær- leik. Hann kastaði þessum fjögurra mánaða dreng upp í loftið, greip hann aftur og rétti Désirée hann. Meðan Désirée virti barnið fyrir sér og gældi við það, sat keisarinn beint á móti henni. Hann sagði: —■ Eins og yðar konunglega tign hlýtur að sjá, þá hefur Napóleon Bonaparte nú fæðzt sonur í raun og veru ...
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.