Úrval - 01.11.1971, Side 75
73
Kaupmaður nokkur sagði Balkis, hinni yndisfríðu drottningu
Eþíópíu, drottningu af Saba, sögur af Salómon konungi hínum
glæsta og vitra. Og Balkis varð gripin slíkri óeirð, að hún varð
að halda á hans fund - - yfir sólsviðnar auðnir.
EFTIR R. STERN
Salómon konungur
og drottningin af Saba
tundum verður fólk ást-
•'ií fangið við fyrstu sýn.
'^5 Kona kemur auga á
vv mann, og hann virðist
draga hana að sér á
einhvern dularfullan
hátt. Þau ræðast við um stund, og
það er sem eitthvað bindi þau sterk-
um böndum að eilífu. Þetta kemur
fyrir. Það er sjaldgæft, en það kem-
ur fyrir.
Oft kviknar ástin þó, eftir að fólk
hefur verið samvistum æ ofan í æ,
oft langtímum saman. Karlmaður-
inn og konan hittast æ ofan í æ við
vinnu eða í samkvæmislífinu, og
eftir nokkurn tíma taka þau að
gera sér grein fyrir því, að smekkur
þeirra er líkur, að þau eiga betra
með að lynda hvort við annað en
við nokkra aðrar manneskjur. Þau
finna, að tengsl hafa myndazt þeirra
*
*
*
á milli. Og skyndilega gera þau sér
grein fyrir því, að þau hafa raun-
verulega elskað hvort annað í lang-
an tíma.
Það er ákaflega sjaldgæft, að ein-
hver finni til ástar við það eitt, að
heyra annarri persónu lýst, án þess
að hafa hana augum litið. En þó
kemur það fyrir.
Þetta kom einmitt fyrir drottn-
inguna frá Saba. Hún fylltist ást á
Salómon konungi, þegar hún heyrði
lýsinguna á því, hversu dásamlegur
maður hann væri.
Hún vissi ekki, að hún væri farin
að elska hann. Hún áleit aðeins, að
hún hefði mikinn áhuga á þessum
eftirtektarverða manni, og vildi
gjarnan hitta hann og læra af hon-
um. Það var langt á milli landa
þeirra, og ferðalög voru ekki auð-
veld á dögum Gamla Testamentis-