Úrval - 01.11.1971, Page 117

Úrval - 01.11.1971, Page 117
FERÐ UM HINA SVÖRTU AMERÍKU 115 þjónar og að við erum svartir og tölum sams konar mál og þeir. Við erum heimagangar í skólanum þeirra og í nágrenninu. Auðvitað reyna unglingarnir að slá ryki í augun á okkur, jafnvel þegar við stöndum þá að því að nota eiturlyf. En þetta eru enn stálpaðir krakkar og unglingar, og þeir kæra sig ekki um að fara í fangelsi. Þeir eru hræddir við þá tilhugsun. Maður verður að sýna þeim, að maður virðir þá sem manneskju, jafnvel þó að þeir séu eiturlyfjaneytendur. En slíkt getur maður ekki, nema maður þekki lífið á strætum Har- lem. Ronald var eiturlyfjaneytandi, en loks leitaSi hann á náðir Endur- hœfingarmiöstöðvar eiturlyfjaneyt- enda í Harlem. Síðan hóf hann nám við Harlem Prep-gagnfræðaskóla- ann og valdi þar námsbraut, sem á að búa hann undir háskólanám. Hér á eftir segir frá því, hvernig hann byrjaði að neyta eiturlyfja: Ég var í 12 ára bekk. Það komu nokkrir strákar í skólann og spurðu hvort ég vissi nokkuð um mariju- anasígarettur. Ég neitaði því. Einn af strákunum kveikti í einni, og ég reykti hana. í fyrstu hafði hún eng- in áhrif á mig. En svo komu þau eftir dálitla stund. Ég reykti marijuanasígarettur í þrjú ár. Eitt kvöldið var ég að fara út með bróður mínum. Hann var byrjaður að sjúga heroinduft í nef- ið og spurði mig: „Langar þig til þess að komast undir áhrif?“ Ég svaraði: „Já, já, hvernig áhrif?“ Hann svaraði: „Heroin.“ Og ég svaraði: ,Allt í lagi.“ Ég hugsaði sem svo, að ég gæti svo sem alveg eins reynt þetta, fyrst hann hafði gert það. Við lögðum 4 dollara í púkk og sugum upp úr heilum poka. Ég fór inn í diskótek og settist þar. Höfuðið hneig hvað eftir annað of- an á bringuna. Ég var farinn að hálfdotta. Og höfuðið á mér sagði: „Þetta er yndislegt!“ Nú fór ég að sjúga heroin í nefið alveg reglulega. Svo var mér sagt, að ef ég sprautaði aðeins helmingn- um af innihaldi pokans í æð, mundu áhrifin endast í þrjá tíma. En áhrif- in endast aðeins í 15 mínútur, þó að maður sjúgi allt innihald pokans í nefnið. Og þannig byrjaði ég að sprauta heroininu beint í æð. Loks tókst mér að kynnast þess- um náunga. sem ég hafði hitt í körfuboltaleik í skólanum. Við fór- um að tala saman um peninga, eit- urlyf og sitthvað fleira. Og brátt vorum við orðnir eins og samsæris- menn. Ég spurði hann að því. hvernig hann ynni sér inn peninga og hvort hann vildi koma mér í sams konar samband. Ég vissi að hann hafði samband við einhvern, sem seldi eiturlyf til götu- salanna. Hann fór svo og talaði við þennan mann og sagði: „Heyrðu, ég á kunningja, sem virðist vera hægt að treysta. Hann vill gjarnan vinna sér inn dálítið af peningum.“ Og svo fékk ég eiturlyf hjá þessum manni til þess að selja í smáskömmt- um. Og eftir dálítinn tíma var salan farin að ganga svo vel hjá mér, að þriggja daga sala var komin upp í 700—800 dollara. Það var ekki svo að skilja, að ég ætlaðist til þess að fá sólina, tunglið og stjörnurnar,.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.