Úrval - 01.11.1971, Page 126

Úrval - 01.11.1971, Page 126
124 ÚRVAL kalla hann ,,niggara“? Kannski eru verstu hleypidómarnir einmitt hin- ir ómeðvituðu hleypidómar, vegna þess að þá gerir maður sér jafnvel ekki grein fyrir því, að maður búi yfir nokkru, sem uppræta þurfi. Þetta er einmitt ástæðan fyrir því, að við höldum, að það séu ein- mitt Suðurríkin, sem benda nú á leiðina út úr feni kynþáttamisrétt- isins, Andrew Young áleit það vera mikilvægt, að í Suðurríkjunum hafa svartir og hvítir „alizt upp hlið við hlið og minnast þess, að þeir léku sér saman sem börn. Lögin hafa að- skilið kynþættina í Suðurríkjunum, en þeir hafa ekki fjarlægzt hvorn annan að ráði, þannig að um varan- legt djúp sé að ræða.“ Við spurðum eitt sinn Isaiah Bennett, verkalýðsleiðtoga í Char- leston í Suður-Karólínufylki, hvort munur væri á hvítu fólki í Norður- ríkjunum og Suðurríkjunum. ,,Já, sannarlega," svaraði hann. ,,I norð- urríkjunum brosir hvíta fólkið og hlær við manni og stingur svo hníf í bakið á manni. f Suðurríkjunum kemur það framan að manni og stingur hnífi í mann augliti til aug- iitis. Ég vil helzt fá að sjá óvini mína, og mér finnst betra að berj- ast við þá hér í Suður-Karólínu- fylki, vegna þess að ég veit, hverj- ir þeir eru.“ Andrew Young benti á þá staðreynd, að kynþáttaaðskiln- aðurinn í borgum Norðurríkjanna hefur alið á „tortryggni, fjandskap og vantrausti“, vegna þess að að- skilnaðurinn á milli svartra og hvítra er svo alger, að „allir verða hræddir við alla.“ Ein skoðun virtist ríkjandi meðal allra íbúa hinnar Svörtu Ameríku. Hún var alls staðar látin í ljósl. hvert sem við fórum og hvar sem við vorum stödd, þ.e. að hvítt fólk láti sig málefni og skoðanir blökku- fólks engu skipta og hlusti alls ekki á það, fyrr en íkveikjur og mann- dráp hefjast í borgunum. Channing Phillips hefur þetta að segja í því sambandi: „Svarti maðurinn upp- götvaði það af tilviljun, að eina vopnið, sem heann hefur, er beiting ofbeldis. Annar kostur er sá, og sá eini, að blökkufólki takist að hasla sér völl á sviðum, þar sem ofbeldis gætir eigi í eins ríkum mæli, svo sem í stjórnmálum og efnahagslífi. Verði blökkufólki meinað það, er hægt að búast við því, að það not- færi sér það afl, sem það býr yfir til þess að skapa ringulreið og ó- tryggt ástand í borgunum.“ Fred Hampton, foringi Svörtu hlébarðanna í Illinoisfylkr, hafði þetta við okkur að segja, nokkrum vikum áður en hann féll fyrir kúl- um lögreglumanna í Chicago: „Ég held, að allir sjái það, sem ég sé, fyllist reiði yfir því, sem gerir mig óðan, og vilji breyta því, sem ég vil breyt.a. Og ég á ekki í nein- u.m erfiðleikum með að skýra frá því, hvað það er, sem ég vil, að hverfi: Það eru rottur og kaka- lakkarnir. Það er fátækrahjálpin, opinbera framfærslan. Það er ruddaskapur og ofbeldi lögreglunn- ar. Og það er heilsuspillandi hús- næði, sem er ekki mönnum bjóð- andi. Einnig mætti þar nefna hina ógn- vænlegu glötun mannlegra hæfi- leika og getu, sem nýtist ekki, vegna
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.