Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.1998, Page 76
74
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 1998
aflatölur dagsins. Menn keppa
sem einstaklingar og einnig í
sveitum og sá sem er lægstur í
hverri sveit er tekinn á beinið eftir
fyrri daginn en allt er þetta í
góðu og svo er það líka sá stóri
sem slapp en þeir eru margir.
Þáttur sjómanna mestur
Vigtunin skiptir miklu máli því
oft hefur það skipt nokkrum
grömmum hver hefur stærsta fisk-
inn. En við höfum úrvals vigtun-
arlið þar höfum við notið aðstoð-
ar starfsfólks Bylgjunnar sem eru
með hlutina á hreinu. En við höf-
um haft aðstöðu í Bylgunni frá
því að félagið var stofnað. Þá er
komið að þætti sjómanna en hann
er auðvitað mestur því við færum
ekki neitt án þeirra . En það eru
alltaf fleiri og fleiri sem koma þar
að og á síðasta ári voru 17 bátar í
keppninni og það var gaman að
sjá allan þennan flota bæði þegar
var farið um morguninn og þegar
þeir komu í land. Skipstjórar þess-
ara báta hafa alltaf meira og meira
gaman af þessum mótum, þeir
kynnast fólki allsstaðar af landinu.
Það er líka keppni milli báta hver
hefur mesta aflann og stærstu fisk-
ana o.s.fr. Eftir keppnina er haldið
heljar mikið lokahóf þar er mikið
til skemmtunar og verðlaunaaf-
hending bæði fyrir veiðimenn og
skipstjóra. Síðan er dansað fram á
nott.
Múkkinn fær sitt
Eg hef reynt að lýsa þessu í
stuttu máli en félagið er mikið
meira en þetta, við förum á mót
annarsstaðar, en þau eru haldin
allt í kringum landið, þau hafa
tekist mjög vel og alltaf verið gott
fiskirí. Mótin sem haldin eru hér
eru líklega orðin þau stærstu á
landinu og kemur margt þar til.
.En þar eiga sjómennirnir einna
stærsta þáttinn í. Hér er yfirleitt
ágætis veður á þessum tíma, gott
fiskirí og hér veiðast margar teg-
undir fiska. Við höfum reynt að
gera þessa helgi skemmtilega fyrir
alla og hafa ýmsir aðstoðað við
það. Hér hefur verið útimarkaður
og alls konar uppákomur. Mótið
okkar er alltaf hálfum mánuði fyr-
ir verslunarmannahelgi. Það má
til gamans geta að stærsti þorskur
sem veiðst hefur á sjóstöng veidd-
ist á móti hér í Ólafsvík og var
hann tæp 20 kíló. Það væri hægt
að segja margar veiðisögur. Það
hefur komið fyrir að menn verði
veikir í maga og víðar þegar kom-
ið er út á sjó og gefið múkkanum
allan morgunmatinn og hafa
komist að því að bananar eru það
besta sem hægt er að skila svona.
En að lokum sjómenn til ham-
ingju með daginn.
tomenn
iitnikUA
Marex hf. s. 552 0011
fax 552 0085
J/ó,
e7f/fiamlng/u n/erJ cfcuj/m/ /
Óslqim öííum sjómönnum í SnœfeíisSiz
ojfjölsfyíiíum fieirra
tiífiaminijju með Sjómannadaginn!
Netagerð Aðalsteins ehf.
Klifi • 355 Ólafsvík ■ Sími: 436 1544
farsími 852 3370