Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Page 6

Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Page 6
Sameiningar hreinna dreifbýlissveitarfélaga og þjónusta 6 .. en þeir eru marktækt ánægðari en íbúar í dreifbýli samanburðarlandsvæðanna tveggja; Dalabyggðar og fjögurra sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu. Að auki voru íbúar í dreifbýli Húnaþings vestra marktækt ánægðari með sitt sveitarfélag en íbúar í dreifbýli á landinu öllu. Það verður að teljast athyglisverð vísbending um það að íbúar í dreifbýlissamfélagi geti haft það betra eftir sameiningu við sveitarfélag sem hefur sterkt þéttbýli. Húnaþing vestra gekk í gegnum stóra sameiningu 1998 og aðra minni 2016. Sameiningin var samfélaginu erfið í upphafi, t.d. þar sem skóli í dreifbýlinu var lagður niður. Í rýnihópum rannsóknarinnar kom fram að íbúar töldu sameininguna nú vera eitt af gæfusporum Vestur-Húnavatnssýslu. Nokkur samhljómur er milli íslenskra og erlendra rannsókna. Stór samevrópsk rannsókn leiddi í ljós að helstu markmiðin með sameiningu sveitarfélaga í Evrópu væru stærðarhagkvæmni, skil- virkni, aukin gæði og magn þjónustu (Steiner o.fl., 2016). Þessi rök fyrir samþjöppun (e. consolida- tionist argument) ganga út á að að stærri stjórnsýslueiningar leiði af sér lægri kostnað per íbúa sem aftur á að auka mátt sveitarfélagsins til að veita öllum íbúum betri þjónustu (Baldersheim og Rose, 2010). Rannsóknir benda til þess að þó þetta markmið náist sé einnig hætta á afturför á öðrum sviðum. Til dæmis voru helstu niðurstöður stórrar erlendrar safnrannsóknar (Tavares, 2018) að aukin skilvirkni sveitarfélaga náist fram á kostnað virks lýðræðis innan þeirra. Rannsóknin sýndi fram á að sameiningar skili sér alla jafna í aukinni skilvirkni, þ.e. lægri stjórnsýslukostnaði og bættri þjónustu að einhverju marki, en jafnframt veikara staðbundnu lýðræði, einkum vegna minnkaðrar kosningaþátttöku í stærri sveitarfélögum. Þó er áhugavert að velta fyrir sér þeirri staðreynd að seta í sveitarstjórn og nefndum í minni sveitarfélögum á Íslandi er oft í harðri samkeppni um frítíma fólks. Sameining sveitarfélaga og mikil fækkun sveitarstjórnarmanna samhliða henni í Húnaþingi vestra er talin vera ein ástæða þess að nú blómstrar ýmis konar félagslíf á svæðinu, t.d. kórar, leikfélög o.s.frv. (Vífill Karlsson, 2023). Við sameiningu losnaði um mikinn mannauð sem gat sinnt öðrum mikilvægum verkefnum í samfélaginu sem lyfta upp byggðabragnum. Sem fyrr segir er fjárhagslegt hagræði gjarnan markmið með sameiningum. Ein aðferð til að ná því markmiði, sem ekki hefur verið með beinum hætti reynd á Íslandi, eru þvingaðar sameiningar. Sameiningar hafa aldrei verið þvingaðar eða lögboðnar á Íslandi. Segja má að þær hafi allar verið sjálfsprottnar þó svo að ýmsir ráðamenn hafi hvatt til þeirra og að Jöfnunarsjóður sveitarfélaga hafi boðið upp á hvata í formi styrkja við sameiningu. Jöfnunarsjóður hefur þó í eðli sínu oft virkað sem hemill á sameiningar því sjóðurinn styður fjárhagslega meira við bakið á fámennum og fjárvana sveitarfélögum en þeim fjársterkari og fjölmennari. En þrátt fyrir þetta hefur sveitarfélögum fækkað hægt og bítandi úr 229 árið 1952 þegar þau voru flest (Vífill Karlsson, 2023) í 64 eftir síðustu sam- einingar sem urðu 14. maí 2022. Rannsóknum ber ekki saman um hvort lögþvingaðar sameiningar skili tilætluðum árangri. Stór þýsk rannsókn sýndi fram á mun meiri sparnað í rekstri sveitarfélaga sem höfðu gengið í gegnum þvingaða sameiningu en sveitarfélaga sem höfðu sjálfviljug efnt til sameiningar (Blesse og Bask- aran, 2013). Lögþvingaðar sameiningar sveitarfélaga í New South Wales í Ástralíu, þar sem mark- miðið var að sveitarfélög yrðu færri, fjölmennari og hagkvæmari einingar, virðast hafa haft þver- öfugar afleiðingar (Drew o.fl., 2022). Útgjöld nýrra, lögþvingaðra sameinaðra sveitarfélaga þar í landi stórjukust á stuttum tíma sem hefur leitt til talsverðs fjárhagsvanda margra þeirra og eru áköll uppi um að sameiningarnar verði dregnar til baka. Í takti við þetta var það niðurstaða sænskrar rann- sóknar (Hinnerich, 2009) að tilhneigingar gæti hjá sveitarfélögum til að auka útgjöld í aðdraganda þvingaðra sameininga, sem verði að skuldabagga sem hið nýja sveitarfélag erfir. Í japanskri rann- sókn (Nakazawa og Miyashita, 2013) kom fram að stjórnvöld í nýsameinuðum sveitarfélögum færu oftast þá leið að dreifa starfsemi stjórnsýslunnar jafnt milli svæðanna sem mynduðu gömlu sveitar- félögin, sem leiddi til dýrari stjórnsýslu þegar upp var staðið. Hollensk rannsókn (Allers og Geert- sema, 2016) komst að svipaðri niðurstöðu um að enginn sparnaður næðist með sameiningu sveitar- félaga þar í landi, utan nokkurrar hagræðingar í stjórnsýslukostnaði. Sparnaðurinn var þó óverulegur
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Íslenska þjóðfélagið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.