Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Page 40
Íslenska þjóðfélagið 2. tbl. 14. árgangur 2023, 40–56
© höfundar 2023. Tengiliður: Ragnheiður Hergeirsdóttir, ragher@hi.is
Vefbirting 29. desember 2023. Birtist á vefnum https://www.thjodfelagid.is
Útgefandi: Félagsfræðingafélag Íslands, Gimli, Sæmundargötu 10, 102 Reykjavík
ÍSLENSKA
ÞJÓÐFÉLAGIÐ
tímarit um íslenskt þjóðfelag … … sem fræðilegt viðfangsefni
Félagsþjónusta sveitarfélaga
og viðbrögð við samfélagslegum áföllum
Ragnheiður Hergeirsdóttir, lektor við Félagsráðgjafardeild HÍ
Guðný Björk Eydal, prófessor við Félagsráðgjafardeild HÍ
Sólveig Þorvaldsdóttir, ráðgjafarverkfræðingur hjá Rainrace ehf
ÚTDRÁTTUR Hamfarir verða tíðari í heiminum, ekki síst vegna hnatt-
rænnar hlýnunar og hnattvæðingar. Sífellt flóknari innviðir samfélaga hafa
skapað nýjar áskoranir fyrir nútímasamfélög þegar þau takast á við og
reyna að forða eða lágmarka tjón af völdum samfélagslegra áfalla. Ham-
farir eru vel þekktar hér á landi, ekki síst á Suðurlandi, enda svæðið jarð-
fræðilega mjög virkt; þar eru m.a. stærstu eldstöðvar landsins sem að mati
vísindafólks geta gosið á allra næstu árum. Sveitarfélögin eru lykilaðilar
bæði vegna viðbragða við og uppbyggingu vegna hamfara og veita íbúum
mikilvæga grunnþjónustu, þar á meðal félagsþjónustu. Markmið rann-
sóknarinnar er að skoða hvernig félagsþjónusta sveitarfélaga getur undir-
búið sig til að takast á við samfélagsleg áföll. Byggt er á verkefni sem
unnið var á vegum Almannavarna Árnessýslu veturinn 2021–2022 um
gerð fræðslu- og þjálfunarefnis fyrir lykilstjórnendur félagsþjónustu og á
viðtalsrannsókn sem framkvæmd var í september 2023 þar sem talað var
við fimm lykilstjórnendur innan Fjölskyldusviðs Árborgar. Niðurstöður
gefa til kynna að verklagsreglur og gátlistar sem unnir eru af starfsfólki
félagsþjónustu og sérsniðnir fyrir hverja starfseiningu séu mikilvægt verk-
færi á tímum samfélagslegra áfalla. Þá kom fram að nauðsynlegt væri að
starfsfólk félagsþjónustu fengi með reglubundnum hætti fræðslu og æfing-
ar sem byggðu á raunhæfum sviðsmyndum í nærsamfélagi og daglegum
verkefnum þeirra.
LYKILORÐ: almannavarnir, félagsþjónusta sveitarfélaga, samfélagsleg
áföll, verklagsreglur og gátlistar
ABSTRACT: Disasters are becoming more frequent in the world, not
least because of global warming and globalization. The increasingly com-
plex infrastructure of societies has created new challenges for modern
societies as they deal with and try to avoid or minimize damage caused