Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Qupperneq 72
Íslenska þjóðfélagið 2. tbl. 14. árgangur 2023, 72-86
© höfundar 2023. Tengiliður: Anna Guðrún Edvardsdóttir: arun@holar.is
Vefbirting 29. desember 2023. Birtist á vefnum https://www.thjodfelagid.is
Útgefandi: Félagsfræðingafélag Íslands, Gimli, Sæmundargötu 10, 102 Reykjavík
ÍSLENSKA
ÞJÓÐFÉLAGIÐ
tímarit um íslenskt þjóðfelag … … sem fræðilegt viðfangsefni
Staða og líðan ungra karlmanna
í landsbyggðarsamfélagi
Anna Guðrún Edvardsdóttir, Rannsóknastjóri við Háskólann á Hólum
Óskar Kristjánsson, BA nemi í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands
Hugrún Harpa Reynisdóttir, forstöðumaður Nýheima þekkingarseturs,
Höfn í Hornafirði
ÚTDRÁTTUR: Umfjöllunarefni greinarinnar er staða og líðan ungra
karlmanna í landsbyggðarsamfélagi og byggir á niðurstöðum rannsóknar
sem framkvæmd var meðal íbúa í Sveitarfélaginu Hornafirði. Tekin voru
einstaklingsviðtöl við aðila sem vinna með ungu fólki, rýnihópaviðtöl við
unga karlmenn auk þess sem lögð var rafræn spurningakönnun fyrir ungt
fólk árið 2021. Markmið hennar var að skoða á hvaða hátt samfélagsleg
gildi og orðræða hafi áhrif á frammistöðu og líðan ungra karlmanna í því
samfélagi sem þeir búa og hvernig það birtist í námsgengi þeirra, líðan og
framtíðaráformum. Niðurstöður gefa til kynna að samfélagsleg gildi og
orðræða um ríkjandi karlmennsku hefur áhrif á ungt fólk, sérstaklega unga
karla. Það er í samræmi við aðrar rannsóknir sem sýna að einstaklingar
taka mið af umhverfi sínu og þeim gildum og viðmiðunum sem þar ríkja.
Því er mikilvægt að huga að öllum íbúum og er það hlutverk samfélagsins
alls að sjá um að ríkjandi gildismat sé ekki skaðlegt einstökum hópum
þess.
LYKILORÐ: gildi, orðræða, kynjamunur, ungir karlmenn,
landsbyggðarsamfélag, líðan, námsgengi, karlmennska, kvenleiki
ABSTRACT: The article deals with the topic of status and mental
well-being of young males in a rural community. It is based on findings
from research conducted in Hornafjörður municipality where interviews
were conducted with people working with young adults, focus groups in-
terviews with young males and a questionnarie presented for both young
males and females in 2021. The aim was to investigate how community
values and discourse affect young males` achievments, in particular their
progress of study, mental well-being and future plans. Findings indicate
that communiy values and discourse about dominant masculinity affect