Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Qupperneq 73
Anna Guðrún Edvardsdóttir, Óskar Kristjánsson og Hugrún Harpa Reynisdóttir
73 ..
young adults, especially young males and that is in line with other resarch
which show that individuals are affected by the values and rules that are
dominant in the community. Thus, it is important for a community to have
all inhabitants in mind and see to that dominant values do not affect some
groups negatively.
KEYWORDS: values, discourse, gender difference, young males, rural
community, mental-well being, progress of study, masculiniy, femininity
Inngangur
Niðurstöður íslenskra og erlendra rannsókna sýna að drengir standa höllum fæti í skólakerfinu. Þeir
sýna almennt slakari lestrarkunnáttu, lakari námsárangur og fá lægri einkunnir en stúlkur (Are-
schoug, 2019; Gísli Gylfason og Gylfi Zoega, 2021; Guðrún Hálfdánardóttir, 2019; Sigrún Jónatans-
dóttir o.fl., 2017; Stenseth og Bæck, 2021). Þá sýna rannsóknir að brottfall drengja úr framhaldsskóla
er meira en stúlkna og meirihluti nemanda í íslenskum háskólum eru konur eða á bilinu 70-80% og
skiptir ekki máli hvort um er að ræða staðnám eða fjarnám (Anna Guðrún Edvardsdóttir, 2021; Gísli
Gylfason og Gylfi Zoega, 2021; Stefán Árni Pálsson, 2020).
Ljóst er að skoða þarf námsgengi drengja í stærra samhengi þó svo að slakari lestrarfærni, lægri
einkunnir og lakari námsárangur gefi ákveðnar vísbendingar um námsgengi til framtíðar. Taka þarf
með í reikninginn það umhverfi og samfélag sem einstaklingur vex upp í, hvort sem það er sveit, bær
eða borg, því einstaklingar „...taka mið af umhverfi sínu og þeim gildum og viðmiðunum sem fyrir
eru“ (Þorgerður Einarsdóttir, 2010, bls. 30).
Fræðimenn hafa í auknum mæli skoðað tengslin á milli staðar (e. place), sjálfsmyndar (e. iden-
tity) og þeirrar brautar sem ungt fólk velur að feta og í því sambandi er mikilvægt að hafa í huga að
staður er ekki einungis tengdur því svæði sem fólk býr á, heldur einnig hvernig fólk tengir og upp-
lifir staðinn og hvaða merkingu hann hefur fyrir einstaklinginn (Areschoug, 2019; Connell, 2005;
Edvardsdóttir, 2013; 2016). Samkvæmt Massey (1994) eru staður og rými kynjuð og endurspegla og
hafa áhrif á hvernig kyngervi (e. gender) er undirbyggt og skilið. Kyngervi vísar í hinar félagslegu
og menningarlegu hugmyndir í samfélaginu og hefur þannig áhrif á sjálfsmynd, viðhorf, skoðanir,
gildismat, athafnir og hvernig við hugsum. Það samfélag sem við búum í grundvallast af þessum
hugmyndum um kyngervi og tekur mið af því hvernig litið er á og komið fram við einstaklinginn
(Andersen, 2006; Maríanna Jónsdóttir Maríudóttir og Ingólfur Ásgeir Jóhannsson, 2018; Rósa Björk
Guðnadótttir og Annadís Gréta Rúdolfsdóttir, 2019; Þorgerður Einarsdóttir, 2010). Þessu tengt eru
svo hugtökin karlmennska (e. masculinity) og kvenleiki (e. femininity). Karlmennskan vísar til þess
sem greinir karla frá konum og er tengd völdum karla og líkamlegum yfirburðum þeirra. Karl-
mennska er því ekki byggð á raunverulegri sjálfsmynd karla og líffræðilegum mismun karla og
kvenna heldur á þeim menningarbundna mismun sem greinir karla frá konum. Kvenleiki (e. femin-
inity) vísar til þess sem greinir konur frá körlum og er tengdur valdaleysi og veikleika. Hugtakið
kvenleiki felur í sér að hugtakið karlmennska virðst vera sterkara og karlmannlegra (Hermína Huld
Hilmarsdóttir og Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 2021; Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 2004; Kolbrún
Hrund Sigurgeirsdóttir o.fl., 2019).
Í þessari rannsókn var rannsóknarsamfélagið sveitarfélag á landsbyggðinni en rannsóknir á
slíkum samfélögum hafa sýnt að það eru einkum ungt fólk og konur sem flytja frá smærri sam-
félögum í þau stærri. Nefndar eru ýmsar ástæður fyrir flutningum; svo sem vegna náms, fjölbreyttari
atvinnutækifæra og betri lífsgæða (Anna Guðrún Edvardsdóttir, 2013; 2021). Þá hafa rannsóknir
einnig sýnt að ríkjandi gildismat í slíkum samfélögum er karllægt. Karllæg gildi hafa verið skil-
greind sem regluveldi, íhaldssemi, stöðlun, áhættusækni, samkeppni, agi, mat, hlutlægni og form-
festa en kvenlæg gildi sem umhyggja, sköpun, innsæi, þolinmæði, huglægni og óformleiki (Anna
Guðrún Edvards dóttir, 2004; Börkur Hansen og Steinunn Helga Lárusdóttir, 2018; Kolbrún Hrund
Sigurgeirsdóttir o.fl., 2019; Rósa Björk Guðnadóttir og Annadís Gréta Rúdolfsdóttir, 2019).