Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Side 94

Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Side 94
„Beint flug er næs“: Svæðisbundin áhrif millilandaflugs frá Akureyri 94 .. Reykjavíkur er þannig oft svipað eða jafnvel hærra en 3–4 klukkustunda flug með lággjaldaflug- félagi frá Keflavík til Evrópu. Tengingar innanlandsflugsins við millilandaflugið eru jafnframt lítt skipulagðar, tímafrekar og kostnaðarsamar. Fyrstu innanlandsvélarnar lenda of seint á Reykjavíkurflugvelli til að hægt sé að nýta morgunflug frá Keflavíkurflugvelli og það er undir hælinn lagt hvort komufarþegar síðdegis geti náð síðasta innanlandsflugi dagsins. Þá er engin bein flugrúta milli Reykjavíkurflugvallar og Kefla- víkurflugvallar og ekki er hægt að senda innritaðan farangur á milli þeirra. Icelandair hefur raunar annað slagið boðið upp á tengiflug milli Akureyrar og Keflavíkurflugvallar, en með því skilyrði að flogið sé áfram til útlanda með Icelandair. Því er ekki hægt að nýta ódýrari kosti í millilandafluginu og verðlagning tengiflugsins hefur verið með svipuðum hætti og á öðrum flugleiðum innanlands. Þetta skipulag flugsamgangna hefur jaðarsett svæðisbundna flugvelli og íbúa annarra landshluta hvað millilandaflug varðar. Þar sem Keflavíkurflugvöllur er nánast eina gátt millilandaflugs er ferða- þjónusta á suðvesturhorni landsins mun umfangsmeiri en í öðrum landshlutum, alþjóðleg samskipti stofnana og fyrirtækja eru þar einfaldari og ódýrari og almenningi bjóðast mun betri tækifæri til að ferðast milli landa í tengslum við vinnu, nám, frístundir og heimsóknir vina og ættingja. Þótt já- kvæðra áhrifa millilandaflugsins gæti um land allt eykur staðsetning Keflavíkurflugvallar jafnframt forskot suðvesturhornsins gagnvart öðrum landshlutum. Akureyri og Egilsstaðir eru til dæmis ívið nær meginlandi Evrópu en Keflavík en ferðatíminn er samt 1–2 sólarhringum lengri og kostnaður mun meiri. Frá árinu 1982 hafa fjölmargar tilraunir verið gerðar til að koma á beinu millilandaflugi um Akur- eyrarflugvöll eins og nánar verður rakið í þessari grein. Í stefnumótandi byggðaáætlun 2022–2036 er lögð áhersla á uppbyggingu millilandaflugs frá Akureyri og Egilsstöðum (Alþingi, 2022). Í því skyni býður Isavia flugfélögum verulegan afslátt af farþegagjöldum á Akureyrarflugvelli fyrstu þrjú árin og Flugþróunarsjóður veitir flugfélögum styrki til að markaðssetja millilandaflug um flugvöll- inn (Isavia, 2023c). Lítið hefur hins vegar verið vitað um heimamarkaðinn fyrir millilandaflug frá Akureyri eða umfang ójöfnuðar í utanlandsferðum íbúa Norður- og Austurlands gagnvart íbúum á suðvesturhorni landsins eða í öðrum landshlutum. Aðferðir og gögn Þessi rannsókn byggir á gögnum verkefnisins Samfélagsleg áhrif af millilandaflugi á Norðurlandi eystra sem unnið var með styrk frá Rannsóknasjóði Háskóla Íslands (#92156) og Uppbyggingar- sjóði Norðurlands eystra. Upplýsingar um fjölda farþega í millilandaflugi um Akureyrarflugvöll eru fengnar úr Flugtölum Isavia fyrir árin 1993–2022 (Isavia, 2023b), en upplýsingar um þá aðila sem stóðu að millilandaflugi á þessu tímabili eru byggðar á greiningu staðar- og landsblaða sem að- gengileg eru á timarit.is. Vegna þessa verkefnis var könnun um ferðamáta innanlands og millilandaflug lögð fyrir netp- anel Félagsvísindastofnunar sem byggist á tilviljunarúrtaki úr þjóðskrá. Meðal annars var spurt um búsetu, fjölda utanlandsferða frá Keflavíkurflugvelli, Akureyrarflugvelli og með öðrum hætti og svarendur á Norður- og Austurlandi voru spurðir hvort beint millilandaflug frá Akureyrarflugvelli hefði aukið lífsgæði þeirra. Gagnaöflun hófst 7. júní 2023 og lauk 4. júlí 2023. Alls bárust 4.392 svör frá fólki 18 ára og eldra á landinu öllu sem samþykkt hafði að taka þátt í netkönnunum á vegum stofnunarinnar og var svarhlutfall 49,3%. Upplýsingar um starfsemi Niceair byggjast á viðtölum við forráðamenn félagsins, upplýsingum úr farþegaskrá og könnun á vegum verkefnisins. Skrifstofa Niceair lét rannsakendum í té gagnaskrá með ónafngreinanlegum upplýsingum úr farþegaskrá fyrir allan starfstíma félagsins júní 2022 – apr- íl 2023. Í skránni voru upplýsingar um 24.994 ferðir 12.262 einstaklinga. Fyrir hverja ferð kom fram kyn, aldur og þjóðerni allra farþega. Jafnframt hafði búseta farþeganna verið flokkuð í tíu flokka. Þá kom fram í skránni í hvaða mánuði og hvaða leið viðkomandi farþegi flaug. Jafnframt kom fram hversu oft viðkomandi farþegi flaug samtals með Niceair og þannig var einnig hægt að skoða sam- setningu farþegahópsins án tillits til ferðafjölda.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180

x

Íslenska þjóðfélagið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.