Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Page 129

Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Page 129
Hjördís Sigursteinsdóttir 129 .. Að framangreindu má vera ljóst að vinnuumhverfi starfsfólks íslenskra sveitarfélaga fór versnandi í kjölfar efnahagshrunsins 2008 með versnandi líðan, minni starfsánægju og auknum veikindum og veikindafjarvistum. Viðvarandi hallarekstur íslenskra sveitarfélaga er ekki síður áhyggjuefni hvað varðar vinnuumhverfi starfsfólksins. Með því að svara rannsóknarspurningunni er leitast við að fá upplýsingar um hvort það að starfa hjá sveitarfélagi með sterkan eða veikan fjárhag eða sveitarfélagi sem staðsett er á höfuðborgarsvæðinu eða landsbyggðinni hafi áhrif á líðan og vinnuumhverfi starfs- fólks sveitarfélaga og þá hvernig. Gögn og aðferðir Þessi grein byggir á gögnum sem safnað var meðal starfsfólks 14 íslenskra sveitarfélaga árið 2021. Um var að ræða megindlega aðferðarfræði þar sem rafrænn spurningalisti var lagður fyrir starfsfólk sveitarfélaganna í þeim tilgangi að safna upplýsingum um viðhorf og líðan starfsfólksins á vinnu- stað. Þátttakendur og framkvæmd Þátttakendur í rannsókninni koma frá 14 af 64 sveitarfélögum landsins (þremur af höfuðborgarsvæð- inu og ellefu af landsbyggðinni). Skilyrði fyrir þátttöku í rannsókninni var að vera 18 ára eða eldri og vera í að minnsta kosti 50% starfshlutfalli. Netföng þátttakenda fengust hjá mannauðsstjórum sveitarfélaganna. Beiðni um þátttöku í rannsókninni var send í tölvupósti til 8.049 starfsmanna á vordögum 2021. Starfsfólk samþykkti þátttöku í rannsókninni með því að smella á tengil sem fylgdi í tölvupóstinum og opnaði þar með spurningalistann. Starfsfólk svaraði svo spurningalistanum og sendi inn nafnlaust. Í tölvupóstinum kom fram að öllum var frjálst að hafna þátttöku í rannsókninni án útskýringa og jafnframt var hægt að sleppa því að svara einstökum spurningum. Eftir þrjár ítrek- anir höfðu 5.522 starfsmenn svarað spurningalistanum að öllu eða einhverju leyti. Svarhlutfallið var því 68,6%. Vinnustaðir sveitarfélaganna eru kynbundnir vinnustaðir þar sem um 80% starfsfólksins eru konur (Samband íslenskra sveitarfélaga, e.d.). Meirihluti svarenda í þessari rannsókn eru einnig konur eða rúm 82%. Mælitæki og úrvinnsla Í þessari rannsókn voru notaðar spurningar sem hafa verið notaðar í mörgum vinnustaðarannsóknum þar sem verið er að mæla viðhorf og líðan á vinnustað. Vinnutengd streita var metin með 10 spurninga PSS-streitukvarðanum (e. The Perceived Stress Scale). Spurningarnar snúa að hugsunum og tilfinningum og mati þátttakenda á því hversu ófyrir- sjáanlegt og yfirþyrmandi líf þeirra hefur verið síðasta mánuð. Þátttakendur gátu fengið 0-4 stig fyrir hverja spurningu. Mögulegur stigafjöldi er á bilinu 0-40 þar sem fleiri stig þýða meiri líkur á vinnutengdri streitu. Jákvætt orðuðum spurningum var snúið þegar stig voru reiknuð. Alfastuðull fyrir innri áreiðanleika PSS-streitukvarðans er 0,85 (Cohen o.fl.,1983; Cohen o.fl., 1991). Í þessari rannsókn mældist hann 0,848. Viðmiðunargildið, sem notað var fyrir vinnutengda streitu er 13,7 stig en það er gildið sem höfundar mælitækisins notuðu (Cohen og Williamson, 1988). Allir sem mælast með færri en 13,7 stig töldust undir viðmiði fyrir vinnutengda streitu og þeir sem voru með 13,7 stig eða fleiri töldust yfir streituviðmiði. Starfsánægja var mæld með fullyrðingunni; „Þegar á heildina er litið er ég ánægð(ur) í starfi mínu“. Gefnir voru fimm svarmöguleikar, frá (1) mjög ósammála og að (5) mjög sammála. Félags- legur stuðningur yfirmanna var mældur með tveimur spurningum; (1) „Færð þú stuðning og hjálp með verkefni hjá næsta yfirmanni þínum, ef á þarf að halda?“ og (2) „Er næsti yfirmaður þinn fús til að hlusta á vandamál sem við er að glíma í vinnunni, ef á þarf að halda?“. Félagslegur stuðningur vinnufélaga var mældur með tveimur spurningum; (1) „Færð þú stuðning og hjálp með verkefni hjá
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Íslenska þjóðfélagið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.