Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Page 140
Íslenska þjóðfélagið 2. tbl. 14. árgangur 2023, 140–160
© höfundar 2023. Tengiliður: Vífill Karlsson, vifill@bifrost.is
Vefbirting 29. desember 2023. Birtist á vefnum https://www.thjodfelagid.is
Útgefandi: Félagsfræðingafélag Íslands, Gimli, Sæmundargötu 10, 102 Reykjavík
ÍSLENSKA
ÞJÓÐFÉLAGIÐ
tímarit um íslenskt þjóðfelag … … sem fræðilegt viðfangsefni
Staða innflytjenda á vinnumarkaði
á krepputímum eftir byggðamynstri
og atvinnugreinum
Vífill Karlsson, prófessor Háskólinn á Bifröst
Bjarki Þór Grönfeldt, lektor Háskólinn á Bifröst
ÚTDRÁTTUR: Það er áhyggjuefni að atvinnuleysi var meira meðal
innflytjenda en Íslendinga í efnahagsþrengingunum sem fylgdu heims-
faraldri COVID-19. Í þessari rannsókn var staða innflytjenda á vinnu-
markaði haustið 2020 greind og samanburður gerður við stöðu Íslendinga.
Markmiðið með rannsókninni var að kanna hvort innflytjendur hafi notið
þess efnahagslega forskots sem vissir landshlutar og vissar atvinnugreinar
hafa jafnan skilað Íslendingum. Stuðst er við gögn úr Íbúakönnun lands-
hlutanna 2020 þar sem rúmlega 10.253 íbúar tóku þátt, þar af 1.261 inn-
flytjandi. Helstu niðurstöður benda til þess að staða innflytjenda á atvinnu-
markaði hafi verið verri en Íslendinga. Innflytjendur á höfuðborgarsvæð-
inu nutu ekki hærri launa, aukins atvinnuöryggis og atvinnuúrvals sem
Íslendingar þar nutu. Að sama skapi virtust atvinnugreinar sem vænkuðu
hag Íslendinga, svo sem sjávarútvegur, byggingarstarfsemi og stjórnun,
ekki skila sér í auknum tekjum, ánægju með laun eða atvinnuöryggi hjá
innflytjendum. Atvinnuöryggi og atvinnuúrval innflytjenda var í engum at-
vinnugreinum eins lítið og í ferðaþjónustu. Athygli vakti að innflytjendur í
dreifbýli virtust vera ánægðari með búsetu sína en innflytjendur á höfuð-
borgarsvæðinu eða öðru þéttbýli úti á landi. Því er dregin sú ályktun að
innflytjendur hafi ekki notið svokallaðs borgarhagræðis (t.d. hærri launa
í þéttbýli) eða velgengni sumra atvinnugreina (t.d. sjávarútvegs) að sama
skapi og Íslendingar.
LYKILORÐ: Innflytjendur – Atvinnumarkaður – Atvinnuöryggi
ABSTRACT: Unemployment was higher amongst immigrants than Ice-
landers during the economic crisis following COVID-19. This study in-
vestigated the status of immigrants in the labour market in the autumn
of 2020 and compared it to that of Icelanders. The aim was to investi-
gate whether immigrants enjoyed economic advantages that certain re-
gions and industries have historically provided Icelanders. Data from the