Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Qupperneq 166
Aðskilin búseta: Búsetumynstur pólskra innflytjenda í Reykjavík
166 ..
Ofangreind þrjú kenningarleg sjónarhorn leiða í sumum tilfellum til sömu tilgáta. Þannig leiða allar
kenningar til tilgátu 1, um að pólskir innflytjendur safnist saman í tilteknum hverfum og að hverfin
sem um ræðir séu lágtekjutekjuhverfi, að minnsta kosti til að byrja með (T1). Almennar aðlögunar-
kenningar spá því hins vegar að með tíð og tíma dragi úr aðskilnaði í búsetu (T2) og að það sé fall
af tíma sem einstaklingar hafa búið í landinu og fjárhag þeirra (T3). Kenningar um lagskipta og
sértæka aðlögun spá hins vegar fyrir um að aðskilin búsetumynstur innflytjenda og innfæddra séu
viðvarandi, að minnsta kosti í því samhengi sem hér er til skoðunar. Ástæðurnar eru hins vegar mis-
munandi. Frá sjónarhorni kenninga um lagskipta aðlögun er það vegna viðvarandi jaðarsetningar
hópsins (T4) en samkvæmt kenningum um sértæka aðlögun má rekja viðvarandi aðskilnað í búsetu
til óska meðlima innflytjendahópsins sjálfs (T5).
Að lokum er vert að taka fram að sumar tilgátur væri einnig hægt að leiða af kenningum um mis-
munun. Því miður bjóða gögnin ekki upp á að prófa tilgátur um mismunun með beinum hætti og
því mikilvægt að hafa í huga að stuðningur við tilgátur sem leiða af þessum kenningum útiloka hana
ekki. Dæmi um mismunun gagnvart innflytjendum á íslenskum vinnumarkaði má meðal annars sjá í
grein Önnu Wojtynska og Unnar Dísar Skaptadóttur (2019) og nýlegri skýrslu Vörðu – rannsóknar-
stofnunar vinnumarkaðarins (Kristín Heba Gísladóttir og Maya Staub, 2023). Vísbendingar um mis-
munun á húsnæðismarkaði má finna í skýrslu Hallfríðar Þórarinsdóttur og Önnu Wojtynska (2015).
Gögn og aðferðir
Gögnin
Þessi rannsókn byggir á skráagögnum Hagstofu Íslands og nær yfir árin 2000 til 2020. Gögnin inni-
halda alla íbúa Reykjavíkur við lok árs og raunar upplýsingar um alla íbúa höfuðborgarsvæðisins (e.
functional urban area). Það er fullt tilefni til að greina aðgreiningu í búsetu í víðara samhengi höfuð-
borgarsvæðisins. Ástæðan fyrir því að hér er einblínt á Reykjavík er fyrst og fremst sú að gögnin
bjóða upp á ítarlegra niðurbrot eftir skólahverfum fyrir Reykjavík en ekki fyrir önnur sveitarfélög
enda sérstaða Reykjavíkur í krafti stærðar umtalsverð.
Reykjavík er skipt niður í 32 svæði eftir skólahverfum en skólahverfi hafa þann kost að þau er
hægt að afmarka út frá upplýsingum úr stjórnsýslunni (Reykjavíkurborg e.d.). Auk þess má ætla að
þau endurspegli að einhverju leyti upplifun á hverfaskiptingu í daglegu lífi fólks að því marki sem
það hverfist um hverfisskólann. Afmörkun svæða hefur lengi verið ágreiningsmál í rannsóknum
á aðskilinn búsetu þar sem afmörkun svæða og stærð þeirra getur haft áhrif á niðurstöður. Þannig
getur aðskilnaður í búsetu á milli stærri svæða mælst fremur lítill en með því að greina minni svæði
innan þeirra, kemur í ljós að aðskilnaðurinn er umtalsverður og bundinn við minni svæði (Fowler
2016). Hið gagnstæða er einnig mögulegt, að tilteknir hópar safnist saman á stærri svæðum án þess
að þjappast endilega saman á minni svæðum innan þeirra.
Gögnin innihalda ýmsar upplýsingar svo sem fæðingarár, búsetu, menntun, uppruna, tekjur og fjöl-
skyldugerðir. Í þessari grein er notast við upplýsingar um búsetu, tekjur og uppruna. Árið 2020 (það ár
sem mest er unnið með) innihéldu gögnin upplýsingar um 133.262 einstaklinga, þar af 25.669 innflytj-
endur. Þar af voru 7.242 frá Póllandi. Einstaklingar með íslenskan bakgrunn voru alls 107.593.
Uppruni er skilgreindur útfrá tveimur breytum. Fyrri breytan flokkar einstaklinga í gögnunum
eftir því hvort þeir eru með íslenskan bakgrunn eða eru innflytjendur. Til að teljast innflytjendur
þurfa einstaklingar að hafa fæðst erlendis og hvorugt foreldri þeirra er fætt á Íslandi. Einstaklingar
sem eru með íslenskan bakgrunn eru því allir sem eru fæddir á Íslandi eða erlendis og eiga að
minnsta kosti eitt foreldri sem fæddist á Íslandi. Einstaklingar sem teljast önnur kynslóð innflytj-
enda, það er fæddir á Íslandi en eiga báða foreldra fædda erlendis, eru ekki hluti af þeim greiningum
sem hér verða birtar þar sem ekki er mögulegt að greina þann hóp eftir uppruna í þeim gögnum sem
hér er unnið með.
Tekjuhugtakið sem liggur til grundvallar þeim tekjugreiningum sem verða birtar hér er jafngildar
ráðstöfunartekjur á ársgrundvelli (e. equivalised disposable household income). Slík tekjumæling er