Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Page 167

Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Page 167
Kolbeinn Stefánsson 167 .. fengin með því að leggja saman tekjur allra í fjölskyldunni til að fá heildartekjur hennar. Því næst eru skattar og skyldur dregnar frá til að fá heildar ráðstöfunartekjur fjölskyldu. Því næst er ráðstöfunar- tekjunum deilt á alla sem tilheyra fjölskyldunni en þó þannig að tekið sé tillit til stærðarhagkvæmni og samanburður á milli misstórra fjölskyldna auðveldaður. Það er gert með því að nota hinn svo- kallaða breytta jafngildiskvarða OECD (e. OECD-modified equivalence scale) þar sem fyrsti ein- staklingurinn í fjölskyldunni eldri en 13 ára fær gildið 1, aðrir einstaklingar eldri en 13 ára fá gildið 0,5 og allir einstaklingar undir 14 ára aldri fá gildið 0,3. Ef við gefum okkur vísitölufjölskyldu með tveimur börnum undir 14 ára aldri og ráðstöfunartekjur sem nema 500 þúsund krónur þá eru jafn- gildar ráðstöfunartekjur hvers einstaklings í fjölskyldunni 500.000/(1+0,5+(2*0,3))=238.095 krónur og 24 aurar að auki. Tekjutíundir eru hér skilgreind út frá höfuðborgarsvæðinu í heild sinni. Ólíkindavísitala Sú aðferð sem hér er notuð til að greina aðskilin búsetumynstur innflytjenda og fólks með íslenskan bakgrunn í Reykjavík er ólíkindavísitala (e. Index of Dissimilarity) sem var þróuð af Jahn, Schmid og Schrag (1947). Vísitalan ber saman búsetumynstur tveggja hópa. Formúla 1. Formúla ólíkindavísitölu 7 með tveimur börnum undir 14 ára aldri og ráðstöfunartekjur sem nema 500 þúsund krónur þá eru jafngildar ráðstöfunartekjur hvers einstaklings í fjölskyldunni 500.000/(1+0,5+(2*0,3))=238.095 krónur og 24 aurar að auki. Tekjutíundir eru hér skilgreind út frá höfuðborgarsvæðinu í heild sinni. Ólíkindavísitala Sú aðferð sem hér er notuð til að greina aðskilin búsetumynstur innflytjenda og fólks með íslenskan bakgrunn í Reykjavík er ólíkindavísitala (e. Index of Dissimilarity) sem var þróuð af Jahn, Schmid og Schrag (1947). Vísitalan ber saman búsetumynstur tveggja hópa. Formúla 1. Formúla ólíkindavísitölu 𝐷𝐷 =#𝑡𝑡!|𝑝𝑝! − 𝑃𝑃|/2𝑇𝑇𝑃𝑃(1 − 𝑃𝑃) " ! n stendur fyrir fjölda búsetusvæða, ti er fjöldi íbúa á tilteknu svæði i og pi er fjöldi íbúa sem tilheyra tilteknum hópi á sama svæði, T er heildaríbúafjöldi og P er hlutfall hóps p innan borgarsvæðisins (Massey og Denton 1988). Ólíkindavísitalan hefur ýmsa kosti sem mælitæki. Hún er til að mynda ekki sérlega næm fyrir samsetningu íbúa og stærðarmuni á milli hópa. Það er líka tiltölulega einfalt að túlka niðurstöðurnar. Stuðullinn fyrir samanburð tveggja hópa er hægt að túlka sem hlutfall einstaklinga í minnihlutahópnum sem þyrftu að lágmarki að flytja til að það væri ekki nein aðgreining í búsetumynstrum (Massey 1978; Taeuber og Taeuber 1976). Ólíkindavísitalan tekur á sig gildi á milli núll og einn þar sem núll endurspeglar engan aðskilnað í búsetu en einn endurspeglar fullkominn aðskilnað. Hefð hefur skapast fyrir því að líta á gildi undir 0,3 sem vísbendingu um lítinn aðskilnað, á bilinu 0,3 til 0,6 sem vísbendingu um meðal aðskilnað en gildi yfir 0,6 sem vísbendingu um mikinn aðskilnað (Massey og Denton 1993; van Ham, Tammaru, Ubarevičienė og Janssen 2021). Það verður þó að hafa í huga að þessir þröskuldar byggja ekki á neinu sérstöku og mótast að nokkru leyti að stöðu mála í Bandaríkjunum þar sem aðskilnaður er gjarnan nokkuð meiri en til dæmis í Evrópu (Anderson, Lyngstad og Sleutjes 2018). Vísitalan hefur vissa annmarka. Hún greinir til dæmis aðeins skiptingu íbúa eftir hverfum en metur ekki nálægð hverfisins sem um ræðir við önnur hverfi sem kunna að vera lík eða ólík því (Morrill 1991). Þá er það viss annmarki að greina aðeins búsetumynstur tveggja hópa í senn (Reardon og O‘Sullivan 2004; Roberto 2015). Að lokum er ólíkindavísitalan næm fyrir stærð hópa á þann hátt að hún er líkleg til að ofmeta aðskilnað lítilla hópa (Duncan og Duncan 1955; Teauber og Teauber 1965). Í raun er ekki neinn ákveðinn þröskuldur heldur ræðst ofmatið af samspili tveggja stærða, það er fjölda einstaklinga sem tilheyra minnihlutahópnum sem er verið að greina og fjöldi einstaklinga á þeim svæðum sem liggja til grundvallar greiningarinnar. Því færri sem einstaklingar eru í minnihlutahópnum og því fámennari sem svæðin eru, því meira verður ofmatið (Allen, Burgess, Davidson og Windmeijer 2015; Carrington og Troske 1997). Þetta er ekki vandamál í þessari grein vegna fjölmennis bæði pólskra innflytjenda sem og íbúa skólahverfa Reykjavíkurborgar. Ýmsar aðrar mælingar hafa verið notaðar til að mæla aðskilnað í búsetu, svo sem gini-stuðullinn, fráviksvísitala, aðskilnaðarvísitala og Atkinson vísitalan (James og Taueber 1985; White 1986). Þetta eru mælitæki sem eru ekki hönnuð til að mæla aðskilnað í búsetu en geta hins vegar nýst til þess. Ýmsir hafa lagt til útfærslur á ólíkindavísitölunni til að leysa þann annmarka að hverfi eru metin í tómarúmi án þess að það sé tekið tillit til íbúasamsetningar nærliggjandi hverfa (Jakubs 1981; White 1983). Þrátt fyrir það er ólíkindavísitalan enn helsta tæki þeirri sem rannsaka aðskilda búsetu ólíkra hópa (Fong o.fl., 2022; van Ham o.fl., 2021). n stendur fyrir fjölda búsetusvæða, ti er fjöldi íbúa á tilteknu svæði i og pi er fjöldi íbúa sem tilheyra tilteknum hópi á sama svæði, T er heildaríbúafjöldi og P er hlutfall hóps p innan borgarsvæðisins (Massey og Denton 1988). Ólíkindavísitalan hefur ýmsa kosti sem mælitæki. Hún er til að mynda ekki sérlega næm fyrir samsetningu íbúa og stærðarmuni á milli hópa. Það er líka tiltölulega einfalt að túlka niðurstöðurnar. Stuðullinn fyrir samanburð tveggja hópa er hægt að túlka sem hlutfall einstaklinga í minnihluta- hópnum sem þyrftu að lágmarki að flytja til að það væri ekki nein aðgreining í búsetumynstrum (Massey 1978; Taeuber og Taeuber 1976). Ólíkindavísitalan tekur á sig gildi á milli núll og einn þar sem núll endurspeglar engan aðskilnað í búsetu en einn endurspeglar fullkominn aðskilnað. Hefð hefur skapast fyrir því að líta á gildi undir 0,3 sem vísbendingu um lítinn aðskilnað, á bilinu 0,3 til 0,6 sem vísbendingu um meðal aðskilnað en gildi yfir 0,6 sem vísbendingu um mikinn aðskilnað (Massey og Denton 1993; van Ham, Tamm- aru, Ubarevičienė og Janssen 2021). Það verður þó að hafa í huga að þessir þröskuldar byggja ekki á neinu sérstöku og mótast að nokkru leyti að stöðu mála í Bandaríkjunum þar sem aðskilnaður er gjarnan nokkuð meiri en til dæmis í Evrópu (Anderson, Lyngstad og Sleutjes 2018). Vísitalan hefur vissa annmarka. Hún greinir til dæmis aðeins skiptingu íbúa eftir hverfum en metur ekki nálægð hverfisins sem um ræðir við önnur hverfi sem kunna að vera lík eða ólík því (Morrill 1991). Þá er það viss annmarki að greina aðeins búsetumynstur tveggja hópa í senn (Rear- don og O‘Sullivan 2004; Roberto 2015). Að lokum er ólíkindavísitalan næm fyrir stærð hópa á þann hátt að hún er líkleg til að ofmeta aðskilnað lítilla hópa (Duncan og Duncan 1955; Teauber og Teauber 1965). Í raun er ekki neinn ákveðinn þröskuldur heldur ræðst ofmatið af samspili tveggja stærða, það er fjölda einstaklinga sem tilheyra minnihlutahópnum sem er verið að greina og fjöldi einstaklinga á þeim svæðum sem liggja til grundvallar greiningarinnar. Því færri sem einstaklingar eru í minnihlutahópnum og því fámennari sem svæðin eru, því meira verður ofmatið (Allen, Bur- gess, Davidson og Windmeijer 2015; Carrington og Troske 1997). Þetta er ekki vandamál í þessari grein vegna fjölmennis bæði pólskra innflytjenda sem og íbúa skólahverfa Reykjavíkurborgar. Ýmsar aðrar mælingar hafa verið notaðar til að mæla aðskilnað í búsetu, svo sem gini-stuðull- inn, fráviksvísitala, aðskilnaðarvísitala og Atkinson vísitalan (James og Taueber 1985; White 1986).
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Íslenska þjóðfélagið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.