Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Page 177

Íslenska þjóðfélagið - 01.08.2023, Page 177
Kolbeinn Stefánsson 177 .. hafa búið lengst á landinu. Heilt yfir er þó ekki hægt að draga þá ályktun að búsetumynstur pólskra innflytjenda í Reykjavík á þessum tímapunkti séu best skýrð með kenningum um almenna aðlögun. Það er erfiðara að gera upp á milli tilgáta 4 og 5 þar sem báðar tilgátur leiða að sömu niðurstöðu, að saman söfnun innflytjenda í tiltekin hverfi sé ekki tímabundin, þó orsakirnar séu ólíkar. Sömu tveir þættir og mæla með almennum kenning um aðlögun mæla með kenningum um lagskipta að- lögun fremur en um sértæka aðlögum. Hugsunin er þá að saman söfnunin sé drifin áfram af nauðsyn fremur en vali sem kemur fram í því að þeir pólsku innflytjendur sem hafa búið lengst á Íslandi og hafa hæstu tekjurnar hafa vissa tilhneigingu til að búa í nýrri úthverfunum þar sem hlutfall pólskra innflytjenda er lágt. Heilt yfir má því segja að á þessum tímapunkti virðast kenningar um lagskipta aðlögun hafa mest skýringargildi fyrir búsetumynstur pólskra innflytjenda. Það er engu að síður svo að engin ein kenning fær afgerandi stuðning og sennilega er veruleikinn flóknari en hver kenning nær að fanga. Það er líka ágætt að hafa í huga að kenningarnar útiloka ekki hverja aðra og mögulegt að þær hafi allar áhrif en á mismunandi hópa. Búsetumynstrið sem stýrir ólíkindavísitölunum er saman söfnun pólskra innflytjenda á tveimur svæðum í Reykjavík, það er í skólahverfunum við Norðurströndina og svo í eldri úthverfunum. Þessi svæði eru svipuð hvað varðar tekjur íbúa og fjölda innflytjenda en pólsku innflytjendurnir sem búa á þeim eru mjög ólíkir. Skólahverfin við norðurströndina eru algengasti fyrsti viðkomustaður en pólskir innflytjendur virðast svo leita í eldri úthverfin þegar þeir skjóta rótum í borgarsamfélaginu. Á sama tíma er áberandi að sá hluti hópsins sem hefur búið hvað lengst á Íslandi og hefur hæstu tekjurnar leitar í nýrri úthverfin þar sem fjöldi pólskra innflytjenda er takmarkaður. Ef við gefum okkur að búsetumynstrin eins og þau voru 2020 séu ekki endapunktur aðlögunar bú- setumynstra pólskra innflytjenda að borgarsamfélaginu heldur sé ferlið enn í gangi opnast ýmsir túlk- unarmöguleikar. Í fyrsta lagi á saman söfnun hópsins á tveimur svæðum sér stað vegna þess að bæði svæðin eru að umtalsverðu leyti lágtekjusvæði sem er auðveldara fyrir innflytjendur með takmarkaðar bjargir að finna húsnæði í. Þegar saman söfnunin er byrjuð að myndast viðheldur hún sér í gegnum svo- kallaðar flutningskeðjur og félagsleg tengsl innan hópsins. Það kann einnig að skipta nýja innflytjendur máli að hafa mikið af samlöndum í kringum sig þegar þeir koma fyrst til nýs lands (sértæk aðlögun). Það sem skólahverfin við norðurströndina hafa hugsanlega að bjóða nýjum innflytjendum er mikið af litlum íbúðum í kjöllurum og á háaloftum sem henta sæmilega til skammtímabúsetu, sem myndi þá skýra hvers vegna þetta svæði er algengasti fyrsti viðkomustaður. Spurningin er þá hvers vegna meðlimir hópsins hafa tilhneigingu til að færa sig yfir í eldri úthverfin þegar þeir skjóta rótum í samfélaginu. Svarið kann að liggja í húsnæðismarkaðnum. Ef það er ekki nóg framboð af húsnæði sem hentar til langvarandi búsetu í skólahverfunum við norðurströndina gæti það skapað þennan aðskilnað í búsetumynstrum á milli hópa pólskra innflytj- enda. Þau sem hafa ákveðið að setjast að á Íslandi og hafa náð að koma ár sinni sæmilega fyrir borð verða þá að finna sér ásættanlegt húsnæði á viðráðanlegu verði og ef til vill er framboðið af slíku mest í eldri úthverfunum. Það væri þá fjárhagur þeirra í samspili við húsnæðismarkaðinn sem skýrði búsetumynstrið. Saman söfnunin í eldri úthverfunum og flutningurinn á milli svæðanna tveggja væri þá í samræmi við kenningar um lagskipta aðlögun. Það getur einnig verið að á þessum tímapunkti í aðlögunarferlinu sæki pólskir innflytjendur enn í nálægð við samlanda sinna, til dæmis vegna þess að stuðningur af tengslanetum skipti þá enn miklu máli eða af ýmsum félagslegum og menningar- legum ástæðum (kenningar um sértæka aðlögun hefði þar af leiðandi enn gildi). Það gæti hins vegar skipt máli að hafa meira af samlöndum í svipaðri stöðu í kringum sig og losna úr umhverfi þar sem velta hópsins er mikil og flestir tjalda til einnar nætur. Spurningin er þá hvort eldri úthverfin séu millileikur fyrir að minnsta kosti hluta hópsins, til dæmis ef búseta í eldri úthverfunum helst í hendur við húsnæðiskaup. Að kaupa sína fyrstu íbúð getur verið áskorun, sérstaklega eins og húsnæðismarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu hefur þróast á undanförnum árum. Það kann því að vera að eldri úthverfin bjóði auðveldustu leiðina inn á eignar- markaðinn. Að minnsta kosti hluti hópsins mun hins vegar ekki stoppa þar heldur flytja í önnur
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Íslenska þjóðfélagið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.