Morgunblaðið - 10.05.1994, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 1994 17
ERLEIMT
Blökkumenn taka í fyrsta sinn sætí á landsþingi Suður-Afríku
Ungveijaland
„Þetta er dagiirinn sem við
höfum beðið eftir í 300 ár“
Sósíalistar
sigra í fyrri
umferð
Búdapest. Reuter.
SÓSÍALISTAFLOKKUR Ung-
verjalands vann sigur í fyrri um-
ferð þingkosninganna á sunnudag.
Peter Boross,
forsætisráðherra.
í flokknum eru
fyrrverandi
kommúnistar
sem ruddu braut-
ina fyrir fijálsan
markaðsbúskap í
landinu. Flokk-
urinn fékk um
þriðjung atkvæð-
anna og þrefalt
meira fylgi en í
kosningunum
árið 1990. Næst
kom Bandalag
frjálsra demókrata með 19% og
Lýðræðisvettvangur, stærsti flokk-
ur fráfarandi samsteypustjórnar
mið- og hægriflokka, fékk aðeins
12% atkvæða.
152 þingmenn af 386 voru
kjörnir á sunnudag og síðari um-
ferðin fer fram 29. maí.
Markaðsbúskapur án
þrenginga
Fréttaskýrendur sögðu líklegt
að Sósíalistaflokkurinn og Banda-
lag frjálsra demókrata mynduðu
næstu stjórn. Flokkarnir hafa svip-
aða stefnu í efnahagsmálum.
Lýðræðisvettvangur hafði lofað
að koma á markaðsbúskap í land-
inu án mikilla þrenginga fyrir
landsmenn en lífskjörin hafa þó
versnað vegna mikillar verðbólgu
og atvinnuleysis.
Óp Munchs fannst fyrir tilstilli Scotland Yard
Þekktur listaverkasali
gripiiin fyrir misskihiing
Ósló, Kaupmannahöfn. Reutcr, The Ðaily Telegraph.
EINN Norðmannanna þriggja sem handteknir
voru á laugardag vegna stuldarins á Opi Edw-
ards Munchs hefur verið látinn laus. Sagði í
frétt norska ríkissjónvarpsins að maðurinn, sem
er listaverkasali, hefði átt þátt í að endur-
heimta verkið, en það fannst á hóteli skammt
frá Ósló á laugardag.
Norska lögreglan hefur ekki gefíð nánari
upplýsingar um hvað leiddi til fundarins en í
frétt Dagbladet segir að mennimir hafi verið
handteknir er þeir reyndu að selja Breta verk-
ið, sem hafi reynst vera útsendari Scotland Yard.
„Þetta var hræðileg lífsreynsla," sagði Einar
Tore Ulving, sem er þekktur listaverkasaii.
Aðstoðaði hann lögregluna við að ná sambandi
við þjófana og fékk ásamt breska útsendaran-
um, verkið í hendur.
Mennirnir tveir, sem eru í haldi lögreglu,
hafa verið ákærðir fyrir að reyna að selja stolna
muni. Að sögn Dagbladet reyndu þeir að selja
verkið fyrir rúmar þijátíu milljónir ísl. kr. Hins
vegar er ekki enn ljóst hveijir stálu verkinu úr
Ríkislistasafninu í febrúar sl.
Menn úr lista- og fornmunadeild Scotland
Yard hafa aðstoðað norsku lögregluna við að
endurheimta verkið og þakkaði yfirmaður
Desmond Tutu fagnaði þegar
Mandela var kjörinn forseti
Höfðaborg. Reuter.
NÝTT þing Suður-Afríku var sett í Höfðaborg í gær og blökkumenn
fengu þar sæti í fyrsta sinn í sögunni. Nelson Mandela, leiðtogi Af-
ríska þjóðarráðsins (ANC), sem var í fangelsi í 27 ár vegna baráttunn-
ar gegn kynþáttaaðskilnaði, var kjörinn forseti landsins. „Þetta er
dagurinn sem við höfum beðið eftir í 300 ár,“ sagði friðarverðlauna-
hafinn Desmond Tutu, erkibiskup í Höfðaborg, þegar hann kynnti
næsta forseta landsins formlega fyrir fjölda fólks sem safnaðist sam-
an við þinghúsið. „Þetta er dagur frelsis fyrir okkur öll, jafnt svarta
sem hvíta.“
Frene Ginwala var kjörin þing-
forseti og er fyrsta konan sem
gegnir embættinu. Bhadra Ranchod
var kjörinn varaforseti, en bæði eru
þau af indverskum ættum. „Þetta
þing verður að vera rödd allrar þjóð-
arinnar," sagði Ginwala, sem er
jafnframt fyrsti þingforsetinn sem
ekki er af evrópskum ættum.
Þessi sögulegi þingfundur bindur
formlega enda á aðskilnaðarstefn-
una, sem ríkti í tjóra áratugi, og
hann var haldinn skammt frá þeim
stað þar sem fyrstu hvítu landnem-
arnir gengu á land í Suður-Afríku
árið 1652.
Mandela og níu aðrir þingmenn
Afríska þjóðarráðsins urðu fyrstir
til að sveija þingmannseiðinn. 400
þingmenn eiga sæti á þinginu og
þeir sóru eiðinn í 10 manna hópum.
Mandela var síðan kjörinn forseti
með öllum greiddum atkvæðum og
hann sver forsetaeiðinn í Pretoríu
í dag.
Albertina Sisulu, eiginkona Walt-
ers Sisulus, varaforseta Afríska
þjóðarráðsins, tilnefndi Mandela
sem forseta og Cyril Ramaphosa,
framkvæmdastjóri flokksins, fékk
það hlutverk að styðja tilnefning-
una.
Afríska þjóðarráðið fékk 252
þingsæti í kosningunum 26.-29.
apríl. Þjóðarflokkur F.W. de Klerks,
fráfarandi forseta, fékk 82 sæti.
Thabo Mbeki, formaður ANC, verð-
ur fyrsti varaforseti landsins og de
Klerk annar varaforseti.
De Klerk vísaði Mandela til sæt-
is á bekk ríkisstjórnarinnar þar sem
forsetinn fráfarandi tilkynnti fyrir
rúmum fjórum árum þá ákvörðun
sína að afnema aðskilnaðarstefnuna
og láta blökkumannaleiðtogann
lausan úr fangelsi.
Mandela brosti og lagði lófana
saman til að sýna virðingu fyrir
þinginu. Hann gekk síðan til zúlú-
höfðingjans Mangosuthus Buth-
elezis, leiðtoga Inkatha-frelsis-
flokksins, og faðmaði hann. Rúm-
lega 15.000 manns hafa beðið bana
í átökum stuðningsmanna ANC og
Inkatha og eitt meginverkefni nýrr-
ar stjómar Suður-Afríku verður að
binda enda á þau.
Mandela heilsaði einnig Constand
Viljoen, fyrrverandi yfirmanni hers-
ins og leiðtoga Frelsisbandalagsins,
sem berst fyrir sjálfstjórn Búa.
Roel Meyer, helsti samningamað-
ur fráfarandi stjórnar í viðræðunum
um lýðræðislega Suður-Afríku,
kvaðst telja að Buthelezi tæki sæti
í þjóðstjórninni sem verður við völd
til bráðabirgða næstu árin meðan
samið er um nýja stjórnarskrá.
Meyer og Pik Botha utanríkisráð-
herra, sem hefur gegnt því emb-
ætti lengur en nokkur annar núver-
andi utanríkisráðherra í heiminum,
verða báðir í stjórninni. Botha fer
með náma- og orkumál.
Reuter
LEIF Plather, yfirmaður öryggismála
Ríkislistasafnsins, og Knut Berg, for-
stöðumaður safnsins, sýna Óp Munchs.
norsku lögreglunnar, Leif Lier, Bretunum það
hversu fljótt verkið fannst.
Verkið hafði verið tekið úr rammanum en
er óskemmt, fyrir utan örlitla rispu, og hefur
því verið komið fyrir á Ríkislistasafninu að nýju.
Svartir og hvítir fagna
Reuter
SUÐUR-afrískur lögregluþjónn stígur dans við blökkukonu fyrir
utan þinghúsið í Höfðaborg er Nelson Mandela, nýkjörinn for-
seti landsins, hélt ræðu innandyra.
'TXXTgTTmT
Vid styðjum D-listann
Ester Guðmundsdóttir
framkvst Slysavarnarfélags íslands
Einar Vilhjálmsson
frjálsíþróttamaður
Jóhann Alfþórsson
píanósmiður
Eríkur Örn Arnarson
sálfræðingur
Unnur Steinsson
flugfreyja