Morgunblaðið - 10.05.1994, Side 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
BORGAR- OG SVEITARSTJORNARKOSNINGARNAR 28. MAÍ
Gerum Reykjavík að
vistvænni höfuðborg norðursins
Á síðustu árum hafa íslendingar
verið að uppgötva að umhverfís-
ímynd landsins er auðlind sem
gefur þjóðinni sóknarfæri í við-
skiptasamfélagi þjóðanna. Eftir-
spurn eftir hreinum afurðum og
hreinu umhverfí eykst alls staðar
meðal viðskiptaþjóða okkar. Mikil-
vægt er því að við hlúum að þeim
eiginleikum lands og þjóðar sem
styrkja þessa ímynd; veruleikinn
þarf að vera í samræmi við ímynd-
ina.
Umhverfismál í þéttbýli
Umhverfismál eru ekki bara
mál sjávar, sveita og óbyggða. í
þéttbýlinu reynir á hvort menn
standa undir nafni. Innviðir borg-
arsamfélagsins, samgöngur, frá-
veitukerfí, sorpförgun og skipulag
lýsa metnaði og skilningi yfírvalda
á umhverfismálum á hveijum
tíma. Reykjavík er gluggi landsins
að umheiminum, hingað koma t.d.
allflestir ferðamenn sem gera sér
ferð til íslands.
Reykjavík ber mikla ábyrgð.
Hér í borginni verður að sýna í
verki að við stöndum undir nafni.
Reykjavík hefur allar forsendur til
að verða vistvæn og vistleg höfuð-
borg, borg þar sem íbúamir þríf-
ast í hversdagnum, þar sem hugað
er af alúð að sambandi manns og
umhverfis. í Reykjavík þarf því
að vera forysta sem tekur um-
hverfísmál alvarlega og hefur full-
an skilning á þeim málum.
Hvemig hefur svo verið staðið
að umhverfísmálum í Reykjavík?
Samkvæmt heimildum frambjóð-
enda Sjálfstæðisflokksins hefur
hvert stórafrekið rekið annað. Það
em reyndar einu heimildimar sem
greina svo frá. Við nánari skoðun
sést að á mörgum sviðum hafa
núverandi meirihluta verið mi-
slagðar hendur, á öðrum sviðum
hefur ríkt algjört áhugaleysi og á
nokkram sviðum hefur verið uppi
viðleitni til góðra verka.
Samgöngur í borg
Allir þekkja áhugaleysi sjálf-
stæðismanna á almenningssam-
göngum. Skipulag samgöngukerf-
is borgarinnar hefur miðast nán-
ast eingöngu við þarfír einkabíls-
ins. Sjálfstæðisflokkur-
inn hefur aldrei skilið
að góðar almennings-
samgöngur era stolt
hverrar menningar-
borgar. Almennings-
samgöngur þurfa að
vera eðlilegur og sjálf-
sagður ferðamáti í
borg. Mislukkaðar að-
farir til einkavæðingar
SVR lýsa í raun getu-
leysi núverandi meiri-
hluta til að fást við
þennan málaflokk.
Enginn neitar því að
einkabíllinn er hluti af
nútímanum og fæstir
bíleigendur vildu vera án bíls. Þar
með er ekki sagt að bíllinn eigi
að leggja undir sig borgina og
stýra hugarheimi skipuleggjenda.
Víða í borgum erlendis er umferð-
arþungi orðinn böl vegna slysa,
mengunar og streitu sem honum
fylgir. Reykjavík er löngu komin
á það stig að þurfa að taka tillit
til þessara, þátta. Einföldustu og
sjálfsögðustu leiðimar til aðgerða
era að auka veg almenningssam-
gangna og koma til móts við hina
„léttstígu vegfarendur", gangandi
og hjólandi.
Á öðram sviðum umhverfismála
era sjálfstæðismenn ekki alveg
eins villuráfandi en aldrei langt í
ruglandann þó. Aðgerðir á sviði
fráveitumála era dýrar og stór-
Arthúr Morthens
skornar. Fullyrðing-
ar um „mesta átak á
sviði umhverfismála
á íslandi" era hins
vegar hjákátlegar og
innantómar. Aðgerð-
ir á þessu sviði eru
löngu orðnar tíma-
bærar og höfðu dreg-
ist úr hömlu vegna
þess að meirihlutinn
hafði þarfari hnöpp-
um að hneppa. Átak
sj álfstæðismanna
felst í því að setja
öflugri pumpur og
lengja skolpleiðslur
til að koma skólpinu
enn lengra út í sjó. Eina hreinsun-
araðgerðin er fólgin í að grófustu
agnirnar eru síaðar frá.
Til að hægt væri að tala um
„mesta átak í umhverfismálum"
þyrfti að vera annars stigs hreins-
un þar sem lífrænum efnum er
umbreytt. Engar slíkar aðgerðir
eru fyrirhugaðar og þar með brýt-
ur Reykjavíkurborg í bága við
meginanda þeirra tilskipana sem
fyrir liggja frá Evrópusambandinu
um hreinsun skólps en þær hafa
íslendingar nýlega undirgengist.
Að líkindum er því framundan
þref við ESB um skilgreiningu á
grunnsævi Faxaflóa, hvort það sé
heppilegur viðtaki skólps eða ekki.
Slíkur undanþágustíll er varla
sæmandi fyrir þjóð sem ætlar sér
Allir þekkja áhugaleysi
Sjálfstæðisflokksins á
almenningssamgöng-
um, segir Arthúr
Morthens, og kveður
skipulagið miðast við
einkabílinn.
stórt hlutverk á sviði umhverfis-
mála.
Sorp: Óskabarn eða útigangur
Sjálfstæðismenn beija sér einn-
ig á bijóst varðandi aðgerðir við
sorpförgun. Hér hafa sjálfstæðis-
menn tilhneigingu til að mæla sig
við það versta sem gerist og telja
sér til tekna að ekki séu hér í
Reykjavík opnir haugar og brenn-
andi og fjúkandi rusl um götur.
Þetta er hentug aðferð ef ætlunin
er að slá sig til riddara og fá hag-
stæðan samanburð. Sjálfstæðis-
menn hafa einnig tilhneigingu til
að útlista Sorpu sem sitt óska-
barn. Þeir sem þakka sér sólskinið
verða þá líka að taka ábyrgð á
slagveðrinu. Það hefur væntan-
lega ekki farið framhjá neinum
að Sorpa hefur verið í miklum
kröggum, bæði fjárhagslega og
tilvistarlega. Sorpa er að mörgu
leyti þjóðþrifafyrirtæki en á við
erfíðleika að glíma sem beinlínis
má rekja til þess skipulags sem
upphaflega var sett upp, væntan-
lega að frumkvæði meirihlutans í
Reykjavík eins og annað varðandi
Sorpu.
Sorpu er ætlað að minnka sorp-
magn en um leið að lifa af tekjum
af sorpmóttökunni, þ.e af hverri
innveginni einingu sorps. Það gef-
ur augaleið að þetta getur ekki
farið saman og hlýtur að leiða til
vandræða. Síendurteknar gjald-
skrárhækkanir Sorpu síðustu
misseri eru afleiðingar þess að
sorpmagn er verulega minna en
reiknað var með og þess að rekst-
ur fyrirtækisins er mun dýrari en
áætlanir gerðu ráð fyrir. Fyrirtæk-
inu er vissulega vorkunn að lenda
í þessari aðstöðu en hún var fyrir-
sjáanleg og á ábyrgð þeirra sem
til stofnuðu. Miklu nær er að fyrir-
tækinu sé séð fyrir föstum fjárveit-
ingum frá sveitarfélögunum til að
standa straum af miklum stofn-
og fjármagnskostnaði. Sorpgjöld
eru há, jafnvel svo að þau hvetja
til þess að sorpi sé fargað framhjá
Sorpu með vafasömum hætti.
Umhverfismál þurfa að vera
öndvegismálaflokkur í borgar-
stjórn Reykjavíkur. Til þess að svo
megi verða þurfa borgarbúar að
velja til forystu borgarstjórn sem
hefur yfírsýn og skilning á mála-
flokknum. Núverandi meirihluti
hefur sýnt of mikið skilningsleysi
og fálæti á sviðum sem of miklu
skipta. Reykjavík og Reykvíkingar
eiga betra skilið. Hin vistvæna
höfuðborg norðursins verður undir
styrkri stjórn Reykjavíkurlistans.
Höfundur skipar 12. sæti
Reykja víkuriistans.
Hvað veldur reiði R-listans?
Nú þegar R-listi brotabrotanna
er farinn að örvænta um fylgi sitt
í komandi borgarstjórnarkosning-
um er gripið til þess ráðs að fara
fram á rannsókn á viðskiptum
borgarinnar við Stjórnunarfélagið.
Ástæðan er sú að okkar ágæti
borgarstjóri starfaði þar sem
framkvæmdastjóri. Hvað er þetta
annað en persónuárás? Algjörlega
órökstudd og út í hött! Er örvænt-
ingin orðin svo mikil hjá R-listafor-
kóflum að þeir telji við hæfí að
leita atkvæða með persónuníði af
A P T 0 N
Einfalt • auðvelt • handhægt
Smíðakerfi
sniSiS fyrir hvern og einn
þessu tagi í garð heið-
arlegs og virts manns,
sem starfað hefur að
málefnum borgarbúa
um langt skeið og með
þeim hætti að honum
má treysta til að leiða
nýja borgarstjórn að
kosningum loknum?
Eru þeir búnir að
gleyma eigin misnotk-
un, R-listamenn, á
skólahúsnæði hér í
borginni nýverið? Það
hefur verið bannað í
40 ár að nýta skóla-
húsnæði í flokkspóli-
tískum tilgangi, og
virt mér vitandi. Þessi
sjálfsagða hefð var þverbrotin af
framboði brotabrotanna. Aðspurð-
ir um þennan gjörning koma þeir
af fjöllum (þar sem þeir væru bezt
geymdir) og segjast ekkert hafa
vitað um ekki mætti nýta skólahús
flokkspólitískt. Hvað hefur þetta
fólk í borgarstjórnarminnihlutan-
um verið að gera eða hugsa undan-
farið, ef það þekkir ekki leikreglur
af þessu tagi? Bendir þetta þekk-
ingarleysi til þess að það sé hæft
til að leiða borgarstjórnina og
stýra málefnum borgarbúa næstu
árin? Nei, ég vona og bið borg-
Pálmar Smári
Gunnarsson
arbúa þess, að láta
ekki þetta framboð
R-ugla sig svo, að þeir
meti ekki rétt hveijir
séu hæfastir til að
stjórna borgarmálum
á næsta kjörtímabili.
Ef brotabrota-
framboðið næði meiri-
hluta í borgarstjórn
verður óstjórnin slík
sem hún varð þegar
sömu aðilar náðu yfir-
höndinni í Reykjavík á
sínum tíma.
Borgarbúar góðir!
Sjáum til þess að borg-
in okkar fallega standi
undir nafni sem höfuð-
borg íslands undir stjóm þeirra,
sem hafa byggt hana upp í það
sem hún er í dag, stærsta og sterk-
asta sveitarfélag landsins, þar sem
fólk býr við góða þjónustu og gott
umhverfí. Sjáum til þess að Árni
Sigfússon og hans fólk fái tækif-
ari til að halda uppbyggingarstarf-
inu áfram og gera góða borg betri.
Stöndum vörð um Reykjavík,
gerum okkar á kjördegi til þess
að höfuðborg íslands megi áfram
þróast til vaxtar og velferðar og
skipa veglegan sess sem „menn-
ingarborg Evrópu árið 2000“. En
Ef R-listi vinstri flokka
fær meirihluta í borgar-
stjórn nú verður fram-
haldið það sama og það
var þegar þess sömu
brota-brot unnu borgina
1978, segir Pálmar
Smári Gunnarsson,
hver höndin uppi á móti
annarri og óstjórn á
málum borgarbúa.
borgarráð Reykjavíkur sótti á dög-
unum um það, fyrir hönd Reykja-
víkurborgar, að höfuðstaður ís-
lands hljóti þann veglega titil, sem
ráðherraráð Evrópusambandsins
úthlutar, „menningarborg Evr-
ópu“, árið 2000
Höfundur er fulltrúi hjá
lögreglustjóracmbættinu í
Reykjavík.
0DEX1ON SINDRI
-sterkur í verki
BORGARTÚNI31 ■ SÍMI62 72 22
NONAME
■ " COSMETICS —
snyrtivörurnar loksins komnar aftur.
Kynning á morgun, 11. maí, frá kl. 13-18.
15% kynningarafsláttur
snyrti-oggjafavöruverslun, Miöbæ, Háaleitisbraut.
Ljósmyndastofa
Gunnars Ingimarssonar