Morgunblaðið - 10.05.1994, Blaðsíða 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
[
Sýningar
Verk Guðmundar frá
Miðdal til sýnis
FORSETI íslands frú Vigdís Finnbogadóttir og Hulda Sóliilja
Aradóttir virða fyrir sér listaverk Guðmundar. Fyrir aftan
standa Rúnar Þór Gubrandsson og Egillína Guðgeirsdóttir.
SÝNING á verkum Guð-
mundar Einarssonar frá
Miðdal var opnuð í Listhús-
inu í Laugardal um helgina.
Meirihluti verkanna hefur
sjaldan eða aldrei verið
sýndur opinberlega áður, en
alls er á fjórða tug verka
til sýnis.
Bræðurnar Árni Gunnar og
Kjartan Ingþórssynir standa
ásamt SiVju Hönnu Guðmunds-
dóttur við styttuna „Stúlkuna".
FOLK
Bonnie Tyler
vinsæl í Noregi
►EKKI hefur farið mikið fyrir
söngkonunni Bonnie Tyler að
undanförnu. Hún er þó alltaf jafn
vinsæl meðal Norðmanna og
hafa plötur hennar selst í 400.000
eintökum þar í landi. Fyrir
skömmu var Bonnie í heimsókn
í Noregi, en hún býr ásamt eigin-
manni sínum í Wales í Bretlandi.
í blaðaviðtali segist hún hafa
misst fóstur á fyrstu mánuðum
meðgöngunnar fyrir tveimur
árum. Hafi það fengið svo á hana
að hún hafi nær gefið tónlistina
upp á bátinn. Hún gafst þó ekki
upp og hefur haldið sínu striki.
Æðsta óskin er þó sú að eignast
barn einhvern tímann á næst-
unni. Þegar hún er ekki að
syngja eða hugsa um tónlist fer
hún gjarnan til Portúgals, þar
sem fjölskyldan á sumarhús. „Við
keyptum okkur hús við ströndina
og þar safnast fjölskyldan sam-
an. Mér líkar ekki vetrarkuldinn
í Bretlandi svo ég fer þangað oft
á þeim tíma,“ sagði hún.
OLABIO
SÍMI 22140
Háskólahíó
ALVORU ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
í NAFNI FÖÐURINS
IIAMKI. .
DU-I.KWIS
/ %
KMM \
rilOMI’SON
l'KI’K
l'OSIKKIIIW UIK
★’* ** OM. TIMINN
***★ HH. PRESSAN
**** Al. MBL
**** JK. EINTAK
FN THE NAME OF THE FATHER
Tuttugu þúsund íslendingar hafa notið þessarar
áhrifamiklu kvikmyndar. Náðu henni á breiðtjaldi -
í dag er hún á þriðjudagstilboði.
Uppákomur
Börnin skoðuðu
dýrin af áhuga
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
SIGRÍÐUR Þormar, Lydia
Pálsdóttir ekkja Guðmund-
ar frá Miðdal með barna-
barn sitt Úlf Örn, Ingibjörg
Ingvadóttir, Daði Eyjólfs-
son og Lydia Guðrún Gísla-
dóttir.
Þaðer
hægt að
selja allt!
►VIÐ jarðskjálftana miklu í
Los Angeles í byijun ársins
misstu margir heimili sitt, bæði
kvikmyndastjörnur og aðrir.
Þeir sem sluppu frá hörmung-
um voru margir hverjir örlátir
á fé, sem þeir gáfu í safnanir.
Fyrir nokkru var einnig haldið
hið undarlegasta uppboð til
styrktar eignalitlum. Á meðal
þess sem boðið var upp voru
hlutir eins og brotnar leirvör-
ur, ónýt sjónvörp og annað
drasl, sem fundist hafði í
rústum heimilanna þegar farið
var að gramsa. Ekki bar á
öðru en flestallt gengi út og
má nefna að brotin kampavíns-
flaska sem var í eigu Barbru
Streisand fór á samsvarandi
tæpr hálfri milljón íslenskra
króna og smábrot úr vasa sem
Bette Midler hafði átt var selt
á tæpar 300.000 krónur!
LÍF OG fjör einkenndi
Hafnarfjörð síðastliðinn laug-
ardag, en þá var haldinn
hafnardagur og var einkum
unga fólkinu boðið upp á fjöl-
breytta skemmtun. Þeim var
meðal annars gefrnn kostur á
að fara á hestbak, efnt var
til torfærukeppni á hjólum,
auk þess sem fiskabúr og
botndýraker voru til sýnis. A
meðfylgjandi mynd má sjá
unga Hafnfirðinga skoða
krabba af mikilli ánægju
meðan aðrir létu sér nægja
að klappa hestunum.
Morgunblaðið/Sverrir
Brotin kampa-
vínsflaska sem
hafði verið í
eigu Barbru
Streisand fór á
tæpa hálfa
milljón.