Morgunblaðið - 12.06.1999, Side 10
10 LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Samningur um að skrá muni í sérstakt skráningarkerfí á Netinu
Markmiðið
að draga úr
þjófnuðum
Leiðrétting
RANGHERMT var í Morgunblað-
inu í gær að Jón Sigurðsson, sem
lést síðastliðinn miðvikudag, hefði
átt fjögur börn. Böm hans og
Ólafar Jónu Sigurgeirsdóttur eru
þrjú.
Einnig vantaði í starfsferil Jóns
að hann hefði verið framkvæmda-
stjóri Borgarkringlunnar.
SAMBAND íslenski'a tryggingafé-
laga (SÍT), ríkislögreglustjóri og
eigandi skráningarkerfisins Crime-
On-Line gerðu í dag með sér sam-
starfssamning um notkun kerfisins.
Markmið samstarfsins er að fækka
þjófnuðum og koma í veg fyrir sölu
þýfis með því að koma á víðtækri
skráningu á munum í kerfið. Sé hlut
stolið skráir eigandinn þjófnaðinn í
kerfið. Ef þýfi finnst er flett upp í
skráningarkerfinu og athugað hvort
og þá hver hafi skráð hlutinn. Sá
sem hefur skráð hlutinn fær sjálf-
krafa tilkynningu í tölvupósti ef ein-
hver flettir hlutnum upp í kerfinu.
Þannig fær hann að vita hvaða net-
fang sá sem flettir upp hlutnum er
með.
Fólk getur fengið límmiða með .
merki Crime-On-Line, iögreglunnar
og SÍT til að líma á þá hluti sem það
hefur skráð í kerfið og einnig á
glugga. Er það von manna að þjófar
hætti við áform sín þegar þeir sjá
slíka miða.
Sigmar Armannsson, fram-
kvæmdastjóri SÍT, Haraldur Jo-
hannessen ríkislögreglustjóri og
Njáll Harðarson, eigandi Crime-
Morgunblaðið/Árni Sæberg
HARALDUR Johannessen ríkislögreglusljóri og Njáll Harðarson takast í hendur eftir undirskrift samnings-
ins. Á milli þeirra er Sigmar Ármannsson.
On-Line skráningarkerfisins, undir-
rituðu samninginn.
SÍT greiðir fyrir ókeypis skrán-
ingu fyrir alla landsmenn. Sigmar
sagði að sum tryggingafélög hefðu
lýst því yfir að ef viðskiptavinir
þeirra skrái muni sína inn í kerfið
lækki félagið eigin áhættu við-
skiptavina. Fólk geti því strax haft
fjárhagslegan ábata af þvi að nota
skráningarkerfið. Sigmar sagði
ennfremur að með minnkandi tjóna-
kostnaði tryggingafélaga ætti að
vera unnt að lækka iðgjöld.
Jónmundur Kjartansson yfirlög-
regluþjónn sagði að lögreglan hefði
hag af samstarfinu bæði til að stuðla
að fækkun afbrota og einnig til að
finna rétta eigendur þýfis sem lög-
reglan gerir upptækt. En að sögn
Jónmundar er oft ekki vitað hvaðan
það þýfi sem finnst kemur. Hann
sagði ennfremur að fíkniefnaneysla
væri að stærstum hluta fjármögnuð
með innbrotum og þjófnuðum og þó
svo að verið geti að fíkniefnaneyt-
endur láti sér fátt um finnast þegar
þeir sjá að hlutur er merktur Crime-
On-Line, þá geti þeim gengið erfið-
lega að selja hann öðrum.
Crime-On-Line skráningarkerfið
hefur verið í þrjú ár á veraldarvefn-
um. Njáll sagðist hafa fengið hug-
myndina að því með tilkomu Nets-
ins þegar Ijóst var hvaða möguleik-
ar fælust í notkun þess, því að það
sé opið allan sólarhringinn og fólk
hvaðanæva að úr heiminum hafi að-
gang að því. Reiðhjólaverslunin
Hvellur var fyrsti aðilinn til að nota
skráningarkerfið markvisst og eru
2-3 ár síðan farið var að skrá öll
hjól verslunarinnar í kerfið.
Njáll sagði aðspurður að sá
möguleiki væri íyrir hendi að óprút-
tnir gætu skráð á sig eigur annarra
í kerfinu, en það kæmist þó fljótt
upp þegar réttur eigandi ætlaði að
skrá hlutinn. Þá væri hægt að hafa
samband við lögreglu eða eigendur
vefþjónsins sem sá óprúttni væri
með netfang hjá. Hann sagði enn-
fremur að fyrirtæki gætu tryggt sig
gegn því að fyrrverandi starfsmenn
noti kerfið undir netfangi fyrirtæk-
isins með því að skipta um aðgangs-
orð. Því gætu þeir sem reknir hefðu
verið fyrir afglöp í starfi ekki flett
upp í kerfinu undir merkjum fyrir-
tækisins.
Útreikningar Hagstofu íslands á vísitölu neysluverðs síðustu misserin
Tillit tekið til breyt-
inga á gæðum með
skipulegum hætti
Vísitöluútreikningar hafa verið gagnrýndir
fyrir að taka ekki nægilegt tillit til gæða
og meta því ranglega hækkanir þegar
verðmæti vöru og þjónustu eykst.
-----7-------------------—.— -----— ■
I samantekt Hjálmars Jónssonar
-----------------—-----------7---------
kemur fram að á Hagstofu Islands
hefur síðustu misserin skipulega verið
unnið að því að meta verðhækkanir með
hliðsjón af breytingum á gæðum.
förnu þegar svonefndur ABS-
bremsubúnaður hefur orðið hluti af
staðalbúnaði bfls hefur við verðsam-
anburð verið tekið tillit til þeirrar
verðmætisaukningar sem í þessu
felst og hún ekki látin hafa áhrif á
vísitöluna."
Þá segir að rétt sé að taka fram
að oft verði gæðaleiðréttingum ekki
við komið vegna ónógra upplýsinga.
„Aðferðir til þessara leiðréttinga
eru og í mótun á alþjóðavettvangi.
Hins vegar er ljóst að vaxandi
áhersla er lögð á leiðréttingar af
þessu tagi og þess mun vafalaust
sjá aukinn stað í vísitöluútreikning-
um hér á landi,“ segir ennfremur.
NÝR grunnur vísitölu neysluverðs
tók gildi á árinu 1997 og var þá tek-
ið upp það nýmæli að taka tillit til
gæðabreytinga við mat á verðhækk-
unum með skipulegum hætti. Fram
kemur í tilkynningu Hagstofu Is-
lands um gildistöku nýja grunnsins
að í þessum efnum verði stuðst við
niðurstöður þróunarvinnu sem unn-
in sé á vegum hagstofu Evrópusam-
bandsins (Eurostat). Jafnframt er
greint frá því að verið sé að taka
upp samræmt verklag við útreikn-
ing neysluverðsvísitalna á Evrópska
efnahagssvæðinu og hafa slíkar
samræmdar neysluverðsvísitölur
verið birtar með reglubundnum
hætti síðustu misserin.
Vísitöluútreikningar hafa stundum
verið gagnrýndir fyrir að taka ekki
tillit til gæða og ofmeta þar af leið-
andi verðhækkanir og verðbólgu. Ef
vara eða þjónusta hækkar í verði
vegna þess að gæðin hafa aukist er
ekki um verðlagshækkun að ræða,
þar sem hærra verð endurspeglar
meiri gæði. Ef hins vegar sami hlut-
urinn breytist í verði milli tveggja
tímapunkta er um réttnefnda breyt-
ingu á verðlagi að ræða og það eru
slíkar verðlagshækkanir sem vísi-
töluútreikningar miða að því að fylgj-
ast með. Til þess að greina þama á
milli hefur Hagstofan beitt gæðaleið-
réttingum á undanfómum missemm
í nokkrum tilvikum, til dæmis hvað
varðar nýjan búnað í bifreiðum, hvað
varðar innflutning á stærri og öflugri
tölvum, svo eitthvað sé nefnt, en
nýjasta dæmið er hækkun á iðgjöld-
um lögboðinna ökutækjatrygginga.
Hagstofan telur að 36% meðaltals-
hækkun ökutækjatrygginga nú um
mánaðamótin megi að tveimur þriðju
hlutum rekja til aukinnar trygginga-
verndar og að einungis þriðjungur
hækkunarinnar sé því réttneftid
verðhækkun. Af þessum sökum
hækkaði vísitala neysluverðs um
0,18% vegna hækkunar tryggingaið-
gjalda, en þau hefðu að öðmm kosti
hækkað vísitöluna um nærfellt 0,6%.
Eru ekki að kaupa sömu trygg-
ingu og áður
í minnisblaði Hagstofu Islands af
þessu tilefni segir meðal annars að
ákvæði skaðabótalaganna séu talin
leiða til hækkunar skaðabóta og
aukinna tjónagreiðslna til tjónþola.
í því felist aukin tryggingavemd
eins og að hafi verið stefnt með hin-
um nýju lögum. „Eftir gildistöku
laganna em neytendur þannig ekki
að kaupa sömu tryggingu og áður
heldur nýja og ríkulegri tryggingu.
Þeir greiða hærra verð fyrir vegna
þess að þeir em að kaupa verðniæt-
ari þjónustu en áður. Kaup á auk-
inni tryggingavemd eða verðmæt-
ari tryggingu hafa í för með sér
aukinn kostnað fyrir neytendur, en í
þessu felst ekki verðbreyting.
Kaupin hafa þannig áhrif á útgjöld
heimila en ekki verðlag útgjald-
anna,“ segir í minnisblaðinu.
Ennfremur kemur fram að vísi-
tölu neysluverðs sé ætlað að mæla
verðbreytingar, en ekki breytingar
á útgjöldum. Mælingamar byggist
á því að sífellt sé fylgst með verði á
sömu vöm og sömu þjónustu og að
vega og meta breytingar í réttum
hlutfóllum, sem ráðist af samsetn-
ingu heimilisútgjalda. Ævinlega sé
þess gætt að blanda ekki saman
breytingum á gæðum og innihaldi
og breytingum á verði. Á alþjóða-
vettvangi hafi verið lögð rík áhersla
á að taka tillit til gæðaleiðréttinga,
ekki síst vegna þeirrar gagnrýni á
vísitöluútreikninga að þeir ofmeti
verðbólgu, sé ekki tekið tillit til
gæða þeirrar vöm eða þjónustu
sem keypt sé.
Aðferðir í mótun
Síðan segir: „Frá þessum tíma
hefur Hagstofan leitast við að beita
skipulegum aðferðum við gæðaleið-
réttingar við útreikning vísitölunn-
ar. Þetta hefur helst átt sér stað í
þremur útgjaldaflokkum, kaupum á
nýjum bflum, tölvum og fatnaði.
Sem dæmi má taka að nú að undan-
Leiðrétt markvisst með
tilliti til gæða
Guðrún R. Jónsdóttir á vísitölu-
deild Hagstofu íslands segir að með
gildistöku nýs grunns vísitölunnar
1997 hafi verið tekin ákvörðun um
að leiðrétta vísitöluna markvisst
með tilliti til gæða í samræmi við al-
þjóðleg sjónarmið í þeim efnum,
enda hefði það verið gagnrýnt, með-
al annars hér á landi í framhaldi af
útgáfu á bandarískri skýrslu fyrir
nokkrum árum, að ekki væri tekið
tillit til gæða í vísitöluútreikningum.
Gagnrýnin lyti að því að verðbólga
væri ofmetin af þessum sökum
vegna þess að ekki væri tekið tillit
til þess að vegna vöruþróunar og
breytinga á þjónustu væri oft og
iðulega um verðmætari vörur að
ræða en áður.
Guðrún sagði að með gæðaleið-
réttingu væri reynt að koma til
móts við þessa gagnrýni, þ.e.a.s.
reynt væri að skilja milli rétt-
nefndrar verðhækkunar annars
vegar, sem gæti til dæmis stafað af
auknum launakostnaði í framleiðsl-
unni, og hins vegar hærra verðs
sem stafaði af því að um nýja og
betri vöru væri að ræða. Þessari
gæðaleiðréttingu hefði til dæmis á
síðustu misserum verið beitt varð-
andi bflainnflutning að þvi leyti að
ABS-bremsukerfi og líknarbelgir
væru nú nánast staðalbúnaður í bfl-
um en hefðu ekki verið það áður.
Henni hefði einnig verið beitt varð-
andi innflutning á tölvum, þar sem
stöðug þróun gerði það að verkum
að tölvur yrðu sífellt afkastameiri
en þær eldri. Þá hefði þessu einnig
verið beitt í sambandi við verð-
breytingar á fatnaði og væri þá
reynt að meta til dæmis hvort hann
væri úr verðmætari efnum en áður.
Hún sagði aðspurð að auðvitað
væri mjög oft erfitt að meta hversu
stór hluti verðbreytingar stafaði af
því að gæðin hefðu breyst og hve
stór hluti væri af öðrum orsökum.
Oft væri það vegna þess að erfitt
væri að afla gagna, auk þess sem
taka þyrfti afstöðu til margvíslegra
álitaefna. Það hefði til dæmis ekki
verið auðvelt verkefni varðandi ið-
gjaldahækkun ökutækjatrygginga
nú að meta hvað væri aukin trygg-
ingavemd og hvað væri hækkun af
öðrum orsökum. Niðurstaðan hefði
hins vegar orðið sú eftir nákvæma
athugun að tveir þriðju hlutar stöf-
uðu af aukinni tryggingavemd og
þriðjungur væri af öðrum orsökum.
Guðrún sagði að við vísitöluút-
reikninga sína tæki Hagstofan mið
af samræmdum verklagsreglum
hagstofa á EES-svæðinu og hefði
þær til hliðsjónar. Farið væri yfir
þessi mál í alþjóðlegum vinnuhóp-
um sem væru starfræktir um að-
ferðafræði í vísitöluútreikningum
og álitaefni rædd ítarlega. Með
þessu væri reynt að gæta þess að
samræmi væri í mælingum og
flokkun viðfangsefna á milli land-
anna og að gengið væri út frá sömu
forsendum, þannig að mælingarnar
endurspegluðu sem best raunveru-
lega verðlagsþróun með sambæri-
legum hætti.