Morgunblaðið - 12.06.1999, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 1999 33
ERLENT
Páfi
ávarpar
pólska
þingið
JÓHANNES Páll páfi flutti í gær
sögulega ræðu á pólska þinginu
og skoraði á þjóðir Evrópu að
gera strax ráðstafanir til þess að
fyrirbyggja nýjan klofning og ný
stríðsátök í álfunni. Páfi brýndi
ennfremur fyrir stjórnmálamönn-
um í lýðræðisríkjunum að gleyma
ekki andlegum gildum og einblína
ekki á efnahagslega og pólitíska
hagsmuni álfunnar, auk þess sem
hann varaði við því hugarfari að
síaukin neysla sé eftirsóknarverð.
„Ef við viljum að einingin í Evr-
ópu haldist verðum við að byggja
á andlegum gildum sem voru eitt
sinn hornsteinn hennar, taka tillit
til menningarlegs auðs og fjöl-
breytileika álfunnar og hefða ein-
stakra þjóða.“
Auk 560 þingmanna hlýddu for-
seti Póllands, Aleksander Kwasni-
ewski, ráðherrar, dómarar, trúar-
leiðtogar og stjórnarerindrekar á
ræðuna. Þetta er í fyrsta sinn í
sögunni sem páfí ávarpar þjóð-
þing með þessum hætti.
Reuters
Handtök-
ur vegna
morðsins á
Paust
Ósld. AP.
NORSKA lögreglan handtók í
gær karlmann og konu í tengsl-
um við morðið á Anne Orderud
Paust og foreldrum hennar.
Hún gegndi starfi einkaritara
varnarmálaráðherra Noregs.
Maðurinn og konan voru
kærð fyrir brot á lögum um
skotvopnaeign en að sögn lög-
reglu tengist ákæran einnig
ákveðnum ummerkjum, sem
fundust þar sem morðin voru
framin.
Anne Orderud fannst skotin
til bana ásamt foreldrum sínum
á heimili þeirra í Akershus
þann 23. maí sl. Tvisvar áður
hafði verið reynt að ráða Anne
og eiginmann hennar, Per
Paust, af dögum. Paust starfaði
í norsku utanríkisþjónustunni
og lést af völdum krabbameins
fyrr á þessu ári.
Norska lögreglan vildi ekk-
ert tjá sig frekar um rannsókn
málsins í gær.
Lögmenn Anwars Ibrahims í Malasíu óska frávísunar
Segja málið byggt á
upplognum sökum
Kuala Lumpur. Reuters.
LÖGMENN Anwars Ibrahims, fyrr-
verandi fjármálaráðherra í Malasíu,
sögðust í gær hafa undir höndum
segulbandsupptökur þar sem heyra
mætti saksóknara í málinu gegn
Anwar reyna að fá gamlan kunn-
ingja Anwars tO að vitna gegn hon-
um.
í staðinn lofuðu saksóknarar
manninum, Nallakarruppan So-
laimalai, vægri refsingu vegna
ákæru sem hann átti yfir höfði sér.
Segja lögmennirnir þetta sönnun
þess að ákærur á hendur Anwar, um
að hann hafi gerst sekur um kyn-
ferðisafbrot, séu byggðar á blekk-
ingum. Verjendur Anwars vísuðu til
segulbandsupptökunnar, sem lög-
maður NallakaiTuppans hafði með
leynd fest á band, í gær þegar þeir
óskuðu eftir því við dómara í málinu
gegn Anwar að hann vísaði því frá.
Dómarinn, Arifin Jaka, hafnaði hins
vegar beiðni lögmannanna, neitaði
að leyfa að segulbandsupptakan yrði
borin fram sem sönnunargagn í mál-
inu og sakaði verjendur um að reyna
að tefja réttarhöldin.
Anwar var rekinn úr embætti fjár-
málaráðherra í september síðastliðn-
um og stuttu síðar ákærður fyrir
spillingu og kynferðisafbrot, en
Anwar var sakaður um að hafa neytt
fyrrverandi einkabílstjóra sinn til
samræðis.
Anwar var dæmdur til sex ára
fangelsisvistar í apríl vegna fjögurra
spillingarákæra og síðastliðinn
mánudag hófust síðan réttarhöldin
vegna ákærunnar um kynferðisaf-
brot en samkynhneigð er bönnuð
með lögum í Malasíu. Verði Anwar
fundinn sekur á hann yfir höfði sér
allt að 20 ára fangelsisdóm og hýð-
ingu.
Vilja „btíau til nýtt land
handa Jeltsín að stjórna
Moskvu. The Daily Telegraph.
EFTIR að hafa um áraraðir leitað að
heppilegum arftaka Borís Jeltsíns í
embætti forseta Rússlands hafa
ráðamenn í Kreml loks fundið mann
sem þeim finnst tilvalinn til að leysa
Jeltsín af hólmi þegar hann lætur af
embætti um mitt næsta ár. Sá maður
er enginn annar en Borís Jeltsín.
Litlu máli máli skiptir þótt rúss-
neska stjórnarskráin taki skýrt fram
að Jeltsín getur ekki boðið sig fram
til þriðja kjörtímabilsins á forseta-
stóli - aðstoðarmenn hans hafa
nefnilega uppi áform um að búa
hreinlega til nýtt land þai- sem
Jeltsín gæti orðið forseti.
I það minnsta er þetta einn þeirra
kosta sem eru til athugunar í Kreml
en þar á bæ hugsa menn vart um
annað en hver fetar í fótspor Jeltsíns
og hefur sá möguleiki, að „óvinur"
erfi þau umtalsverðu völd sem fylgja
því að vera forseti Rússlands, valdið
miklum taugatitringi. Eru aðstoðar-
menn Jeltsíns - með dóttur hans
Tatjönu í broddi fylkingar - reiðu-
búnir til að gera næstum hvað sem
er til að lengja forsetatíð Jeltsíns.
Róttækust þeirra hugmynda, sem
nú eru ræddar í Kreml, er einmitt sú
að „búa“ til nýtt Rússland, sem yrði
annaðhvort sam-
einað Hvíta-Rúss-
landi eða stýrt
skv. sambands-
stjómarsáttmála,
sem veita myndi
Jeltsín tækifæri
til að halda
ótrauður áfram
störfum, jafnvel
eftir að kjörtíma-
bili hans lýkur á
næsta ári. Samruni við hið fyrrver-
andi Sovétlýðveldi Hvíta-Rússland,
þar sem Alexander Lúkasjenko for-
seti ræður ríkjum, mun þegar hafa
verið ræddur.
Reyndar komu þingmenn frá
Rússlandi, Hvíta-Rússlandi og
Úkraínu saman á fimmtudag og
ræddu um nánara samband land-
anna. Þar gerði Oleksandr
Tkachenkó, þingforseti á úkraínska
þinginu, að umtalsefni verri lífsskil-
yrði í löndunum þremur.
Jeltsín sjálfur ekki
með í ráðum
Athygli vekur að sjálfur mun
Jeltsín ekki hafa hugmynd um ráða-
gerðir fylgisveina sinna. Á hinn bóg-
inn er valdasýki forsetans löngu
þekkt og endurspeglast einna best í
því hversu gjam hann er á að losa sig
við alla þá sem gerast líklegir til að
skyggja á frægðarsól hans sjálfs, eða
ógna völdum hans.
Fullyrt er að um þessar mundir
beinist athygli Kremlarmanna einna
helst að borgarstjóranum í Moskvu,
Júrí Lúzhkov, sem líklegastur þykir
til að vinna sigur í forsetakosningun-
um á næsta ári, og beita þeir nú öllum
ráðum til að finna höggstað á honum.
Lúzhkov sagði á fimmtudag: ,fyð-
stoðarmenn forsetans hafa tilkynnt
að þeir séu hlutlausir í minn garð. Á
bak við luktar dyr kalla þeir borgar-
stjórann hins vegar „óvin númer
eitt“. Við þurfum ekki að láta neitt,
sem kemur frá fólkinu í Kreml, koma
okkur á óvart. Þeir sem þar ráða rílq-
um eru heldur undarlegt samsafn
manna.“
Þær fi'éttir að Kremlarmenn ræði
þann möguleika að búa til nýtt land
handa Jeltsín að stýra valda e.t.v. ein-
hverju uppnámi erlendis en heima
fyrir koma þær engum á óvart - ekk-
ert sem aðstoðarmenn Jeltsíns láta
sér detta í hug kemur nokkrum á
óvart lengur.
/Tior^
Utsölustaðir um allt lana
SLATTUVELAR
Notendavænar
Nlargar gerðlr
VETRARSOL
Landsþekkt
varahlutaþjónusta
HAMRABORG 1-3 • Sími 564 1864
Vinsœlu handsláttuvélarnar ^
komnar aftur!
Við eigum mikið úrval sláttuvéla, mótórdrifnar og handknúnar.
Einnig sláttuorf - með rafmangs- eða bensínmótór.
Fyrir þá sem kjósa að slá með gamla iaginu,
eigum við orf og Ijá á góðu verði.
SENDUM UM ALLT LAND
Grandagarði 2, Rvik, sími 552-8855 og 800-6288. Opið virka daga 8-18 og laugard. 10-14.