Morgunblaðið - 12.06.1999, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 1999 37
LISTIR_______
Létt og lip-
ur söngskrá
Elín Halldórsdóttir, Hulda Björg
Víðisdóttir, Margrét Lára Þórar-
insdóttir, Suncana Slamning,
Laufey Egilsdóttir og Ragnhildur
Rós Indriðadóttir. I hlutverki
presta og hermanna koma fram
Bjarni Björgvinsson, Bjarni Þór
Sigurðsson, Jóhannes Pálsson,
Pétur Orn Þórarinsson, Olafur
Valgeirsson og Sveinn Arnar Sæ-
mundsson. Einnig koma fram
börn og unglingar í sýningunni.
Frumraun á
uppsetningu óperu
Keith Reed hefur ekki sett upp
sýningu á borð við Töfraflautuna
áður. Hann hefur sett upp fjölmörg
verk íýrir kóra, m.a. Jólaóratóríu
Bachs og Messías eftir Hándel í
flutningi Kammerkórs Austur-
lands. Keith hefur unnið með
mörgum leikstjórum bæði í Brus-
sel, í Bayreuth og í Detmold þar
sem hann starfaði áður. „Eg hef
unnið óbeint að verkefnum sam-
bærilegum þessu með mörgum
leikstjórum. Sá sem hafði mest
áhrif á mig var Hary Kupfer sem
er mjög virtur leikstjóri og einnig
James Lucas sem ég vann með í
háskólanum. Töfraflautan er
frumraun mín sem leikstjóra og
hefur framkvæmdastjórn Operu-
stúdíósins staðið einarðlega á bak
við þessa ákvörðun um að skapa
þetta verkefni. Þær eru líka marg-
ar hjálplegu hendurnar sem hafa
komið nálægt þessu verkefni en
um 100 manns taka þátt í
Töfraflautunni á einn eða annan
hátt. Það er mikið óeigingjarnt
starf sem unnið hefur verið hér í
þessu frábæra umhverfi sem hér
er á Eiðum. Húsið er svo skemmti-
legt og á sér sína sögu. Það er eins
og það birti okkur skapandi anda
sem það geymir í sögunni. Enn-
fremur er gaman að hugsa um allt
það fólk úti um allt land sem teng-
ist þessu húsi og hefur gert það í
gegnum árin. Mér finnst það skipta
máli að hér á þessum verði upp-
byggjandi starfsemi í framtíðinni.
Starfsemi sem skapar nýja og upp-
byggjandi sögu.“
Kraftaverk tónlistar er að
þroskast í gegnum hana
Keith Reed hefur starfað í þrjá
vetur sem söngkennari við Tónlist-
arskólann á Austur-Héraði. Hann
er faglegur kennari og hlífir nem-
endum sínum ekki við smáatriðun-
um enda er söngnám enginn leikur.
Hins vegar tengist söngurinn til-
finningum og honum finnst hann sjá
hvemig fólk sem leggur hart að sér
í söngnáminu þroskast í gegnum
sönginn. Keith kennir sönginn inn-
an frá og út, hjálpar fólki að finna
sinn eigin hljóm. Hann segir mikil-
vægt að skilja og viðurkenna ófull-
komleikann í sjálfum sér. Ekld að
fela hann því þá lendir söngvarinn á
hálum ís. Það er nauðynlegt að hafa
fulia meðvitund um sjálfan sig og
leggja áherslu á tenginguna „hver
er ég frekar en hvað geri ég“.
Bjartar nætur í júní eru vonandi
byrjunin á frekara framhaldi á efl-
ingu menningarlífs á Austurlandi.
Keith segist vona að Töfraflautan,
sem sett er upp í Alþýðuskólanum
á Eiðum, komi til með að laða fýrr-
verandi nemendur á gamlar slóðir
og sjá húsakynnin í nýjum búningi.
„Hér líður okkur vel, hér leið nem-
endum vel og vonandi koma þeir
aftur til að endumpplifa þá tilfinn-
ingu.“
VINKLAR A TRE
HVERQI LÆQRI VERÐ
ÞÝZKIR GÆÐAVINKLAR
OG KAMBSAUMUR
ÁVALLT FYRIRUGGJANDI
_ _ BNKAUMBOO
88 Þ.NM8RÍMSS0N & C0
Ármúla 29 - Reykjavík - Sími 553 8640
TONLIST
III jómdiskar
FINN ÉG ÞIG VOR
Lögreglukór Reykjavíkur. Flytjend-
ur: Píanó: Carl Möller. Bassi: Birgir
Bragason. Gítar: Hilmar Jensson.
Upptaka fór fram í Seltjamames-
kirkju og Tónlistarhúsinu í Kópavogi
í apríl 1999. Stjórn upptöku annaðist
Sigurður Rúnar Jónsson. LR001
LÖGREGLUKÓR Reykjavíkur
hefur starfað nær óslitið síðan 1934
(stofnendur 28 af 42 starfandi lög-
regluþjónum í Reykjavík!) og varð
því 65 ára á þessu ári. Kórinn hefur
víða komið fram opinberlega á þess-
um tíma og tekið þátt í kórmótum
lögreglukóra á Norðurlöndum.
Stjómandi kórsins síðan 1990 er
Guðlaugur Viktorsson. Hann lauk
tónmenntakennaraprófi í Reykjavík
og síðar prófi frá Söngskólanum í
Reykjavík. Síðan hefur hann starfað
sem tónmenntakennari, kórstjóri og
söngvari.
Starfsemi kórsins hefur farið vax-
andi hin síðari ár, og heldur hann
nú árvissa jóla- og vortónleika.
Söngskráin á hljómdiskinum
nýja er að mestu saman sett af létt-
um og vinsælum lögum, sem sum
hafa verið útsett fyrir kórinn.
Þarna er m.a. að finna lag Jónasar
Jónassonar við ljóð Kristjáns frá
Djúpalæk, Vor í Vaglaskógi, í út-
setningu Egils Gunnarssonar;
einnig fjögur lög Jóns Múla Árna-
sonar við texta Jónasar Árnasonar
í skemmtilegum útsetningum
Magnúsar Ingimarssonar. Hér er
lag eftir Oddgeir Kristjánsson við
ljóð Ása í Bæ og lag og ljóð Gylfa
Ægissonar, Eg sá þig, og einnig út-
lend lög við íslenska texta, m.a. eft-
ir Tómas Guðmundsson. Diskurinn
endar á hinum sívinsæla Píla-
grímakór Wagners við ljóð Jakobs
Jóh. Smára og Þakkarbæn við ljóð
Óskars Ingimarssonar. Allt er
þetta gott og blesssað og sívinsælt
hjá aðdáendum karlakóra, sem eru
gífurlega margir meðal kynjanna
beggja.
Lögreglukórinn í Reykjavík er
ágætur kór og stjórnandi hans hef-
ur unnið gott starf. Og ég er honum
líka þakklátur fýrir að bjóða upp á
„létt prógram" og láta óperumar í
friði - að undanskildum Pílagríma-
kórnum, sem hann syngur af innlif-
un.
Fengnh- hafa verið ágætir músi-
kantar til að annast undirleik.
Oddur Björnsson
Alvöru Suzuki jeppi
á verði smábíls!
Flottur í bæ, seigur á fjöllum
Suzuki Jimny er sterkbyggður og öflugur sportjeppi,
byggður á sjálfstæðri grind og með hátt og lágt drif. Það
er sama hvort þú ætlar með vinina í fjallaferð eða á
rúntinn niður í bæ, Jimny er rétti bíllinn!
1.399.000,- beinskiptur
1.519.000,-sjálfskiptur
$ SUZUKI
SUZUKI SÖLUUMBOÐ:Akranes:Ölafur G. Ölafsson, Garðabraut 2, slmi 431 28 00. Akureyri: BSA M, Uufásgötu 9, slmi 462 63 00. Egilsstaíir: CT jyi TI7T T>TT A D T-Tp
Blla- og Mvélasalan hl, Miöási 19, slmi 471 2011. Hafnarfjörður: Guðvaröur Ellasson, Grxnukinn 20, slmi 5S5 15 50. Isafjörðun BHagaröur ehl, Grænagaröi, °'^'tjV-J1'-1 DlI^rVIV 1II'
simi 456 30 95. Keflavfk: BG bilakrínglan, Grófinni 8, simi 421 12 00. Seffoss: Bilasala Suðurlands, Hrismýri 5, simi 482 37 00,
Hvammstanga: Bila- og búvélasalan, Melavegi 17, simi 451 26 17.
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
Heimasíða: www.suzukibilar.is