Morgunblaðið - 12.06.1999, Síða 57
t
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 1999 57*r
UMRÆÐAN
Jóns er unnin sést m.a. á því að
ekki hafði hann fyrir því að kynna
sér bakgrunn minn. Hann kallar
mig „fífuleikara frá Skotlandi" en
ég er frá Þýskalandi. Varðandi at-
hugasemd hans „Volker Dellwo er
ekki sérlega góður á sekkjapípuna"
vil ég leyfa mér að nefna nokkrar
staðreyndir um feril minn: Tvö ár í
röð, 1997 og 1998, vann ég til verð-
launa LBPS (Lowland and Borders
Piper’s Society) í Edinborg fyrir
bestan sólóleik og fyrir bestan sam-
leik (með celló) og einnig í opinni
keppni á „Scottish smallpipe". Árið
1997 fékk ég auk þess verðlaun fyr-
ir „Best new composition“. I dóm-
nefnd þessarar mest virtu keppni á
sviði „smallpipe“-leiks eiga sæti at-
vinnudómarar frá „School of Scott-
ish Studies" (Edinburgh Uni-
versity) og frá LBPS. (í fagtímarit-
inu Commom Stock, Joumal of the
LBPS og öðrum fagritum má finna
þessar upplýsingar staðfestar).
Undanfarin 6 ár hef ég haldið um
350 tónleika, aðallega í Þýskalandi,
Bretlandi og á Spáni en einnig í
Frakklandi og Bandaríkjunum í
mjög mismunandi hljóðfærasam-
setningum. Auk þess hef ég tekið
þátt í útgáfu á 6 geisladiskum. M.a.
vegna þessara staðreynda leyfi ég
mér að fullyrða að sólóleikur minn í
Hafnarfirði hafi verið, hvað gæði
varðar, tónlistarflutningur á
sekkjapípu sem þykir hæfilegur og
í samræmi við nútímakröfur. Svona
hljómar þessi tónlist nú einu sinni.
Jóni fannst hún falla „... tónalt ekki
sem best við ‘diatóníska’ tónlist
Evrópu og var því á köflum fólsk í
samleik". Frá sjónarhóli hefðbund-
innar tónlistarfræði má ef til vill í
vissum tilfellum segja að svo sé en
þannig er þessi tónlist flutt nú á
dögum og er það hluti af írskum og
skoskum stfl. Við tónleikana í Hafn-
arfirði heyrðust slíkar disharmoní-
ur aðeins í undantekningartilfell-
um. Falli Jóni slík tónlist ekki í geð,
þykir mér það leitt. En hann ætti
samt ekki að rugla saman eigin
smekk við faglegan tónlistarflutn-
ing hljóðfæraleikara. Hvers vegna
hann lætur ógert að fjalla um túlk-
un sekkjapípunnar á hefðbundnum
og nútíma þjóðdanslögum, er mér
ráðgáta. Ef til vill hefur hann jafn
lítinn skilning á slíkri tónlist og
sögulegri þróun sekkjapípunnar
sjálfrar og sópar henni því orða-
laust undir stólinn?
Ég verð að viðurkenna að mér
eru það mikil vonbrigði að fjallað
sé í íslensku dagblaði á svo ófag-
legan hátt og af slíkri vanþekkingu
og virðingarleysi um menningu
annarra þjóða.
Höfundur er aðstoðarkennarí við
Menntaskólann í Reykjavík.
tækifæri til að stunda annars konar
vinnu en þá sem fram fer í kerskál-
um, en sú vinna mun vera góð þjálf-
un fyrir þá sem búast við að lenda í
verri staðnum að lokum.
Og hafa þessir villuráfandi
byggðastefnumenn aldrei hugsað
út í það að óbyggðir og náttúrufeg-
urð séu verðmæti í sjálfum sér?
Hefur þeim, úr því þeir meta allt til
beinharðra skjóttekinna peninga,
ásjónu landsins, vatnakerfi, fuglalíf
og vistkerfi, ekki dottið í hug að
það mætti græða hressilega á
Eyjabökkum eins og þeir eru?
Þangað mætti hugsa sér ferðir,
ekki síst fyrir moldríkt fólk sem
hefur séð allt í heiminum nema
Eyjabakka og skipuleggja ferðirn-
ar þannig að byggðirnar eystra
græddu á þeim. Mín vegna mætti
reisa svolítið hótel á Eyjabökkum.
Ef komandi kynslóðum líkaði ekki
hótelið og þætti það til óprýði, þá
mætti rífa það. En stíflur og uppi-
stöðulón eru óafmáanleg mann-
virki. Og þeir sem ætla að mis-
þyrma sinni ástkæru fósturjörð
með slíkri mannvirkjagerð á dýr-
mætustu stöðum, og hlægilega lít-
inn fjárhagslegan ávinning í huga,
skyldu muna að börnin þeirra
verða að búa við glæpinn lengur en
þeir sjálfir.
Höfundur er ríthöfundur.
DEMANTAHÚSIÐ
Nýju Kringlunni, sími 588 9944
Útskriftargiafir
Stretchbuxur
St. 38-50 - Frábært úrval
verslunarmiðst. Eiðstorgi,
simi 552 3970.
Sjö manna
glæsivagn!
á góðu verði
1800 cc, ii2 hestafla vél • Viðarinnrétting
Ceislaspilari • Álfelgur • Vindkljúfur • ABS • Loftpúðar
Fjarstýrðar samlæsingar • Þjófavörn og margt fleira
PEUCEOT
I