Morgunblaðið - 12.06.1999, Side 71
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 1999 71
_________________________ _______________V
FRÉTTIR
Landssamband frímerkjasafnara
Hvetja til auk-
innar frímerkja-
söfnunar
LANDSSAMBAND íslenzkra frí-
merkjasafnara hélt landsjjing sitt
laugardaginn 28. maí sl. A þinginu
var samtökunum kjörin ný stjórn
og skipa hana eftirtaldir: Sigurður
R. Pétursson formaður, Bolli Da-
víðsson, Garðai’ Schiöth, Gunnar R.
Einarsson, Hálfdán Helgason, Jón
Zalewski og Þór Þorsteins. Vara-
menn eru Eiður Arnason og Guðni
Fr. Arnason.
Á þinginu kom fram ánægja með
gott samstarf við Islandspóst hf. og
forvera hans, Póst og síma hf. Meðal
annars var lýst ánægju með blaðaút-
gáfu sem nú er í burðarliðnum og
auglýsingar sem farið er að setja
upp á afgreiðslustöðum Islandspósts
hf. með leiðbeiningum um notkun
frímerkja. Einnig kom fram ánægja
með að loks skuli hafa verið staðfest
heimild manna til að greiða burðar-
gjöld böggla með frímerkjum límd-
um á böggulinn sjálfan en ekki á
fylgibréf hans svo sem almennt hef-
ir verið gert í langan tíma. Megn óá-
nægja kom hins vegar fram með
þær breytingar sem urðu á meðferð
pósts um síðustu áramót er póstaf-
greiðslumenn hættu að frímerkja
bréf en tóku í þess stað að stimpla
þau með gúmmístimplum til stað-
festingar á greiðslu burðargjalds.
Hið nýja fyrirkomulag dregui- mjög
verulega úr notkun frímerkja sem
aftur verður til að ungmenni sjá frí-
merki sjaldnar en fyrr og hafa því
ekki sama hvata og verið heíir til að
hefja frímerkjasöfnun. Þá vekur
furðu nýr vélstimpill sem notaður er
í rauðum lit á að minnsta kosti einu
pósthúsi í Reykjavík. Á stimplinum
eru meðal annars bókstafirnir PP,
alþjóðlegt tákn sem merkir að burð-
argjald hafi verið greitt. Það sem
helst vekur fúrðu er að stimpillinn
virðist notaður jöfnum höndum á frí-
merktar sendingar sem ófrímerktar
þótt PP táknið eigi eðli sínu sam-
kvæmt aðeins heima á ófrímerktum
sendingum, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Landsþingið beindi því til ráða-
manna í samtökum frímerkjasafn-
ara og hjá íslandspósti hf. að nýta
dag frímerkisins betur en gert hefir
verið til að hvetja til aukinnar frí-
merkjasöfnunar og til kynningar á
notkun frímerkja og söfnun þeirra,
til dæmis með litlum frímerkjasýn-
ingum á deginum sjálfum og næstu
dögum við hann.
Frímerkjasýning var haldin í
tengslum við þingið og var hún með
nýju sniði þannig að hvert safn var
aðeins á sextán síðum og komst
þannig fyrir í einum sýn-
ingarramma. Komu þarna fram
ýmis áhugaverð og fjölbreytileg
smásöfn enda auðvelt fyrir flesta að
koma saman safni af þessari stærð
fremur en stóru og umfangsmiklu
safni af því tagi sem almennt er
sýnt.
Menntaskólinn við Sund
STÚDENTAR frá Menntaskólanum við Sund.
MENNTASKÓLANUM við Sund
var slitið í þrítugasta sinn 28. maí
síðastliðinn. Björns Bjarnasonar,
fyrrverandi rektors skólans, var
minnst við upphaf athafnarinnar.
Árangursríkt og þroskandi fé-
lagslíf nemenda varð Eiríki S.
Guðmundssyni rektor að umtals-
efni í ávarpi. Hann greindi frá því
að nemendur héldu tónleika og
söngkeppni í vetur og settu upp
Kirsuberjagarðinn eftir Tjékov.
Drengjalið skólans vann fram-
haldsskólamót í körfubolta, lið
skólans komst í undanúrslit í
spurningakeppninni Gettu betur
og nemandi úr skólanum varð í 2.
sæti í Söngkeppni framhaldsskól-
anna.
Fram kom í máli rektors að
brýnt er að taka á húsnæðisvanda
Stór útskrift-
arárgangur
skólans. Hann segir nærri Iáta að
stækka þurfi húsnæði skólans um
2.000 fermetra til að við megi
una. Eiríkur segir menntamála-
ráðherra hafa viðurkennt vand-
ann og rætt hann við borgaryfir-
völd. Rektor sagðist vona að yfir-
völd tækju á húsnæðismálunum af
myndarskap, nýbygging væri
besti kosturinn.
Tveir kennarar, Skúli Þór
Magnússon og Sveinn Árnason,
hafa starfað við skólann í 25 ár og
voru heiðraðir af því tilefni.
Hápunktur athafnarinnar var
brautskráning stúdenta. Alls voru
brautskráðir 184 stúdentar, 92
stúlkur og 92 piltar. Aðeins
tvisvar hafa fleiri nemendur
brautskráðst frá skólanum, 191
árið 1977 og 185 árið 1979.
Að þessu sinni fékk enginn f
nemandi ágætiseinkunn. Þrír
nemendur, Auna Sigríður Árna-
dóttir og Pétur Valsson úr eðlis-
fræðideild og Þóra Gunnur Isak-
sen af nýmáladeild, voru jafnir og
hæstir með fullnaðareinkunnina
8,8. Anna Sigríður Árnadóttir
telst þó dúx skólans með fullnað-
areinkunnina 8,81.
Funi Sigurðsson ávarpaði sam-
komuna fyrir hönd nýstúdenta.
Fulltrúi 25 ára stúdenta var Guð-
mundur Guðmundsson, gæða-
sljóri Lýsis hf. Hann færði skólan- V
um tölvuórðabækur að gjöf.
UNIFEM á íslandi
Morgunblaðið/Þorkell
FRÁ fyrsta stjórnarfundi UNIFEM. Frá vinstri, fremri röð: Anna Sigríður Einarsdóttir, Kristjana Þ. Sigur-
björnsdóttir og Sigríður Margrét Guðmundsdóttir, formaður UNIFEM. Frá vinstri, aftari röð: Þórgunnur
Skúladóttir, Kristjana Milla Thorsteinsson, Margrét Einarsdóttir, fráfarandi formaður, Sigrún K. Oskars-
dóttir varaformaður og Kristín Jónsdóttir.
Á SÍÐASTA aðalfundi UNIFEM á
íslandi tók Sigríður Margi-ét Guð-
mundsdóttir við formennsku í UNI-
FEM af Margréti Einarsdóttur sem
gegnt hefur því starfi um árabil.
Margrét situr þó enn í stjórninni
sem meðstjórnandi. Einnig kom
Kristín Jónsdóttir ný inn í stjómina
og tók hún við starfi gjaldkera. Á
miðvikudaginn var kom nýja stjóm-
in í fyrsta skipti saman í nýja hús-
næðinu að Laugavegi 7.
„UNIFEM á íslandi var stofnað
18. desember árið 1989 og mun því
fagna 10 ára afmæli í desember nk.
Aðaltilgangur félagsins er að vera
málsvari kvenna í þróunarlöndun-
um, kynna starfsemi UNIFEM og
afla fjármagns frá hinu opinbera og
frá einkaaðilum. Á þessum 10 árum
Nýr formaður
og mikið starf
framundan
hefur félagið vaxið og dafnað og
tekur nú virkan þátt í því alþjóðlega
hjálparstarfi sem Unifem um allan
heim vinnur að.
Félagið er nú nýflutt í húsnæði
Mannréttindaskrifstofu íslands að
Laugavegi 7 og skapast þar algjör-
lega nýtt starfsumhverfi og miklir
möguleikar á auknu starfi, sérstak-
lega í kynningar- og fræðslumálum.
Að þessu sinni kemur félagið
með beinum hætti að tveimur verk-
efnum; í Indlandi og í Mexíkó.
Bæði þessi verkefni hafa það að
meginmarkmiði (eins og reyndar
öll verkefni UNIFEM) að styrkja
konur til sjálfsbjargar. Verkefnið í
Mexíkó felst í því að mennta og
fræða bændakonur í Campeche-
héraði um býflugna- og hunangs-
framleiðslu en markmið verkefnis-
ins á Indlandi er að fræða konur
um lýðræðisleg réttindi sín og að
hvetja konur til að nýta sér þau.
Þetta verkefni er unnið í samvinnu
við Svíþjóð og Japan. Auk þessa
leggur UNIFEM á íslandi fjár-
magn í alheimsátak UNIFEM
gegn ofbeldi á konum.
I ágúst er ráðgert að halda nor-
rænan fund UNIFEM-félaganna á
Norðurlöndunum hér á Islandi,“
segir í fréttatilkynningu.
VOGATUNGA 17 KÓPAVOGI
|
Opið hús í dag frá kl. 15 til 17
Sími 533 4040 Fax 588 8366
Fallego innréttað 127 fm parhús ú einni hæð
með innbyggðum bílskúr. Húsið stendur innst í
botnlonga og er þaðon gott útsýni. Fallega
ræktuð lóð með nuddpotli. Hiti í stéttum og
innkeyrslu. Eignin er lous strax.
Verð 13,9 millj. Húsið verður til sýnis í dag,
laugardog, frú kl. 15 til 17.
Maggý og Tómas bjóða
ykkur velkomin.
Armúla 21
DAN V.S. WIIUM, hdl. lögg. fasteignasali.
BARNASANDALAR
Verö
kr 1.995
Teg. La Gear sandalar. Stærðir 28-38. Litur: Svartir
DOMUS MEDICA
vlð Snorrabraut - Reykjavík
Sírnl 551 8519
KRINGLAN
Krlnglunni 8-12 ■ Reykjavik
Sírnl 568 9212
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS - 5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR