Tímarit lögfræðinga - 01.04.1986, Blaðsíða 52
hefur verið að samskipti ríkis og sveitarfélaga varðandi verkefni sem
sveitarfélögum hafa verið falin geti farið fram að mestu eða öllu leyti
heima í héraði og að ákvarðanir verði í sem ríkustum mæli teknar þar
fremur en á stjórnarskrifstofum höfuðborgarinnar. Þá hefur verið gert
ráð fyrir að flutningur verkefna til umboðsmanna gæti orðið undan-
fari þess að sveitarstjórnum væru falin ný verkefni. Nú nefnast sýslu-
menn commissaires de la République, en heitið préfet er þó enn notað í
vissum samböndum. 1 öðrum samböndum er talað um représentents de
l’État eða délégués du gouvernement (umboðsmenn ríkisstjórnarinnar).
Engar sérstakar kröfur um menntun eru gerðar til sýslumanna, en
flestir munu hafa hlotið menntun sína í stjórnsýsluskóla ríkisins (École
nationale d’administration — ENA). Ekki er lengur nauðsynlegt að
skipun miðist við tiltekið embætti, heldur eru jafnan nokkrir sýslu-
menn án sýslu við ýmis stjórnsýslustörf, t.d. í ráðuneytunum, eða þeim
eru falin sérstök verkefni. Jafnvel kann að vera að maður sé skipaður
yfir tiltekna stofnun eða sem stjórnandi ríkisfyrirtækis með starfs-
kjörum sýslumanns (préfet). T.d. er járnbrautaþjónustan „sýsla“ í
þessum skilningi.
Nú á dögum er lögð áhersla á óhlutdrægni sýslumanna, og þeir mega
því ekki vera félagar í neins konar stjórnmálasamtökumS4). Jafnframt
hefur stjórn Pierre Mauroy mótað þá fordæmisreglu að þegar nýir
valdhafar taki við séu sýslumenn fluttir milli embætta til að auðvelda
þeim að vinna að framkvæmd nýrrar stjórnarstefnu85). Á ráðherra-
fundi 9. apríl 1986, 24 dögum eftir sigur hægri flokkanna í þingkosning-
unum 16. mars, staðfesti stjórn Jacques Chirac regluna á ráðherra-
fundi með flutningi nokkurra sýslumanna milli embætta, en búist er
við að fleiri fylgi á eftir.
IV. FRAMTlÐIN
Togstreita um verkefni sýslumanna
Þrátt fyrir mjög róttækar breytingar á flestum sviðum, þar á meðal
í stjórnmálum og stjórnsýslu, eru sýslumannsembættin enn í fullu
gildi 700 árum eftir stofnun þeirra, og enn fara sýslumenn að verulegu
leyti með sömu kjarnaverkefni og þeim voru falin í upphafi. Sýsluskip-
84) Bernard s. 66
85) Bernard s. 68.
46