Búnaðarrit - 01.01.1952, Page 17
BÚNAÐARRIT
15
um er slík jörð talin í eyði. Eins eru nokkrar jarðir
fullnytjaðar af mönnum, sem búa í húsum, sem
standa á sérmetinni lóð í kauptúni. Jörðin er af sum-
um talin í eyði, en af öðrum í byggð. Ýmis fleiri af-
brigði eru kunn, og orsaka þau, að bæði tala jarða
og tala bænda er nokkuð á reiki, og tölur fyrir árið
1930 eru því ekki fyllilega sambærilegar við tölur
eftir þann tíma.
Um aldamótin voru bændurnir nálægt 0800, en i
þeirri tölu voru allmargir, sem voru útvegsbændur
en slunduðu landbúnað einungis að litlu leyti. Um
fjölda þeirra er ekki hægt að segja með vissu, en
trúlega hafa 200—300 bændur verið taldir árin 1910
og 1920, sem þannig var ástatt með og ekki eru
taldir árið 1930 og síðar, þó eins sé ástatt
með þá.
Eftir því sem næst verður komizt iná telja að um
1900 liafi bændur verið um 6800
1910 — — — — 6796
1920 — — — —• 6856
1930 — — — — 5856
1940 — — — — 5862
1950 — — — — 5402 (6100)
Talan fyrir árið 1950 er tekin eftir tölu lnisa á sér-
metnum jörðum, sem t'ólk bjó á 1. des. 1950, þegar
manntalið var gert. Þar sem fleiri hús voru á sömu jörð
var aðeins lekið eitt, ef jarðarhlutarnir, sem bændurnir
bjuggu á voru ekki sérmetnir — ekki taldar sjálf-
stæðar jarðir —. Þar sem fleiri bændur bjuggu saman
í sama húsi, var búsið talið eitt. Bijygðar jarðir crn
þvi Tiokkuð fleiri cn tala húsanna. Auk þess má oft
deila um það hvort telja beri jörð í eyði eða ekki, og má
sem dæmi nefna jarðir, sem eru nytjaðar að fullu af
fólki, sem býr á annarri jörð eða í kaupstað, en slík
tilfelli munu vera nálægt 80 á öllu landinu. Þá er ekki
í tölunni 5402 þær jarðir, sem byggðar eru taldar i