Búnaðarrit - 01.01.1952, Page 34
32
BÚNAÐARRIT
1900—1910 er að meðaltali sléttað 23G,5 ha 2365 lia.
1910—1920 -----
1920—1930 -----
1930—1940 -----
1940—1950 -----
201,9 — 2019 —
201,2 — 2012 —
329,0 — 3290 —
455,2 — 4552 —
Samtals 14238 ha.
Auk þessa hafa túnin verið þurrkuð nokkuð, en þar
brestur þó á að fullnægjandi sé, og gefur stór hluti
túnanna ekki þá uppskeru, sem skyldi, vegna lélegrar
eða engrar framræslu. Þessar umbætur á túnunum
hafa kostað bændur mikið fé. Ættu þær að gerast í
ár, þ. e. ælti í ár að slétta um 15000 lia í túnum og
gera 28435 ha túnauka mundi það kosta (15000
+ 28435) X 5000= 222 milij. króna, og þess virði
getum við sagt að túnin séu þjóðinni í dag, með nú-
verandi verðgildi peninganna.
Á þessari hálfu öld fer gaddavír að flytjast til iands-
ins. Með komu hans óx möguleikinn til að friða túnin
fyrir ágangi —- girða þau.
Árið 1940 voru 94,2% túnanna girt og tæpur þriðj-
ungur af byggðum jörðúm hafði land sitt afgirt. Þetta
mun lítið hafa hreytzt síðan, því bæði liefur verið illt
að fá gaddavir, og eins hefur hann þótt dýr. Þó hefur
síðan verið girt nokkuð, en varla meira en gengið
hefur úr sér af eldri girðingum. Alls hafa verið girtir
yfir 20 þús. kílómetra langar girðingar.
Það á vafalaust að vera takmarkið, sem að ber að
stefna, að hver jörð liafi sitt land afgirt, því „garður
er granna sættir“. Og væntanlega tekst það á næstu
áratugum, því það er ekki meira átak, en það, sem
gert hefur verið í girðingarmálunum á þeim helming
aldarinnar, sem liðinn er.
XII.
Töðufall túnanna hefur eðlilega aukist með stækk-
un þeirra og verið sem hér segir, talið í 100 kíló hest-
burðum: