Búnaðarrit - 01.01.1952, Page 74
72
BÚNAÐARRIT
hvort þær hafa etið jafnt fóður í húsi eða ekki. Hálf-
blóðsærnar eru nokkru léttari bæði árin, um 2,7 kg
lyrra árið, en 2 kg síðara árið. Þetta getur orsakazt
að nokkru leyti af því, að hálfblóðsærnar eru yngri
að meðaltali, allar á öðru ári fyrra árið, en á 2. og 3.
vetri síðara árið, en í íslenzku ánum eru ær á öllum
aldri. Hálfblóðsærnar hafa gefið aðeins minni afurðir
í dilkum (tafla 1), en það orsakast eingöngu af því,
að þær voru hlutfallslega færri tvílembdar en ísl.
ærnar. Það getur verið vegna þess, að þær fyrrnefndu
eru yngri. Reiknaður kjötþungi eftir hverja tvílembu
annars vegar og hveija einlembu hins vegar er að-
eins hærri hjá hálfblóðsánum fyrra árið en alveg jafn
hjá báðum flokkum síðara árið. Einhverri skekkju
kann það að valda, að ég hefi ekki fengið fallþunga
af hverju lambi fyrir sig þessi ár. Hef ég því orðið að
reikna með því, að lömbin undan hálfblóðsánum hafi
haft sömu kjötprósentu af þunga á fæti og hin lömbin,
en líklega hafa þau fyrrnefndu aðeins hærri kjöt-
prósentu. Hálfblóðsærnar hafa tvö undanfarin ár gefið
0,9 kg eða um 50% meiri óhreina ull en íslenzku
ærnar. Getur það orsakast að einhverju leyti af því,
að þær hálfskozku eru allar ungar, en nokkuð af hin-
um ánum er roskið. Ávallt munu þó hálfblóðsærnar
hafa nokkru meiri ull en hreinræktaðar ísl. ær. Þegar
ullarverð er eins liátt og nú, munar mikið um þennan
mismun.
Helgi Haraldsson lofar mjög hálfblóðsærnar i allri
reynzlu. Telur hann þær sérstaklega góðar á fóðri á
húsi, einkum fyrir, hve óvandætnar þær eru. Enn
fremur telur hann þær þægar og skemmtilegar í um-
liirðu allri, góðar mæður og minna næmar fyrir
mæðiveikinni en íslenzku ærnar. Álit Helga gengur
enn fremur í þá átt, að þessum kynblendingum sé sízt
slysahættara en öðrum kindum, og er það gagnstætt
áliti flestra, sem hafa reynt þessa kynblendinga. 1111