Búnaðarrit - 01.01.1952, Page 79
BÚNAÐARRIT
77
sem slúti'að hefur verið, svo aðeins hefur verið hægt
að reikna xxt kjötprósentu sláturlambanna í heild, en
elcki sér fyrir tvílembinga og einlembinga. Nú er það
staðreynd að tvílembingar hafa lægri kjötprósentu en
einlembingar, sjá töflu 5. Sá munur nemur um 1,75%.
Þetta veldur því, að reiknað kjöt eftir hverja tvílembu
verður aðeins meira en rétt er á Hrafnkelsstöðum,
Rangá og Valdalæk, en minna eftir einlemburnar. Er
því munurinn í töflu 4 á kjöti eftir tvílembu og ein-
lembu á þessum þremur búum nokkru meira en hann
hefur raunverulega verið.
Tafla 5. Kjötprósenta tvílembinga og einlembinga.
Bú
Svanshóll: a. Kollótta féð ..
b. Þingeyska féð.
Þykkvibær: a. Ivleifaféð ....
h. Þingeyska féð
Stafafell .................
Brekka.....................
Ólafsdalur ................
Óvegið meðaltal
Procent kjöt
af lifandi þunga
tvílembinga einlembinga
40,46 42,00
38,71 39,68
39,56 41,82
37,93 40,88
38,69 40,40
39,62 41,60
40,06 41,00 • .
39,29 41,05
Tvílemburnar gefa af sér frá 58,5—73% meira kjöt
en einlemburnar. Aðrar sláturafurðir, svo sem gærur,
mör og slátur má reikna í svipuðum lilutföllum og
kjötið, en ull verður beldur minni af tvílembunum.
En gæta ber þess að tvílembingaföllin flokkast ver,
en einlembingaföllin, a. m. k. þar sem dillcar eru
rýrir. Samt sem áður er óhætt að fullyrða að tví-
lembur geta víðast gefið af sér meira en 50% meiri
brúttóarð en einlembur, og hægt er að fá af þeim
a. m. k. 70% meiri brúttóarð.
En hver verður þá munurinn á nettóarði eftir tví-
lembur og einlcmbur? Ekki er unnt að svara því með